Fréttatíminn - 24.09.2016, Side 28
Morgunn
Fyrir þá sem vilja vakna snemma
um helgar er gott að nýta tímann og
skapa eitthvað fallegt. Gott er að taka
upp skissubókina
og litina og teikna
eitthvað fallegt.
Stoltið af góðu verki
fer með manni inn í
helgina.
Hádegi
Bráðum fer að líða að því að snjór-
inn falli á jörðu. Gott er að taka
fjölskylduna eða makann niður á
strönd, dúða sig í úlpur og syngja
sólskinssöngva og
fagna að ekki sé
komin snjór.
Kvöld
Eftir fullan dag af fjöri er gott að spara
eldamennskuna og skella sér beint
á næsta pylsuvagn og fá sér
eina laugardagspylsu. Ódýrt,
gott og ekki of fyllandi
í magann fyrir
laugardags
nammihámið.
LAUGAR-
DAGS-
ÞRENNAN
Fólkið mælir með…
Arnar Eggert
Thoroddsen
Veitingastað-
urinn: Tuk-Tuk
í Edinborg.
Stórkostlegur
strætismatur frá
Indlandi, snilldar-
lega hannaður
og þjónustulundin í hámarki.
Lagið með Queen: Breakthrough
af plötunni The Miracle frá 1989.
Ekki augljóst val en ég er dálítið
þreyttur á þessu klassíska tímabili
þeirra. Lagið er nett hallærislegt
og þess vegna algerlega æðislegt.
Tímaritið: Record Collector er
fagtímaritið mitt og ég hef verið
dyggur lesandi í kvartöld. Þetta
er langt í frá svalt tímarit, það er
verið að rífast um katalógnúmer
á japönskum Bítlaútgáfum en að
lesa blaðið er eins og hugleiðsla
fyrir mig.
Ragna
Sveinbjörnsdóttir
Veitingastaðurinn:
Gló er mitt allra
besta uppáhald,
hamborgarinn
tekur mann til
tungls og til baka.
Lagið með Queen:
One Vision er lag
melodíuminninganna, mamma og
litli bróðir elskuðu Queen og því
var endalaust „blastað“ í minni
æsku. Dilli alveg bossa þegar ég
heyri þetta lag.
Tímaritið: Elska Kinfolk blaðið og
hugmyndafræðina þeirra. Þau
leitast við að einfalda lífið og búa
til fallegar dásemdir með vinum
og fjölskyldu.
Lilja Kristjánsdóttir
Veitingastaður: Coocoo‘s nest er
æðislegur staður.
Ég mæli sérstak-
lega með taco
tuesday, súr-
deigs pítsunni
og dögurðinum.
Ég mæli semsagt
með öllu.
Lagið með Queen: We Are
the Champions er uppáhaldslagið
mitt með Queen af því að þetta
er lag sem fólk setur á í fullri
einlægni þegar því finnst það
eiga það skilið. Eins og eftir fót-
boltaleik eða hundasýningu.
Tímaritið: Ég er mjög spennt fyrir
tímaritinu Blæti, ég veit ekkert
um það en nafnið og Instagramið
þeirra er nóg til að kveikja
áhuga minn.
Duft í kalt vatn, bragðlaust eða hylki
Náttúrulegt
Þörunga magnesíum
ENGIN
MAGAÓNOT
Mikil virkni
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
LJÓSADÖGUM
LÝKUR SUNNUDAGINN 25. SEPTEMBER
Cohen-loftljós
25 cm
19.995 kr.
14.995 kr.
Sparaðu 5.000 kr.
AF ÖLLUM
LÖMPUM OG LJÓSUM
25-
50%