Fréttatíminn - 24.09.2016, Side 32
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Það þarf heilt þorp á bak við svona glamúrdívu eins og Sigrúnu. Það er geðsjúklega mikið prógram í kringum hana,
sem er bara frábært. Hún er á brjál-
æðislegri uppleið, það gengur svo
sjúklega vel hjá henni núna,“ segir
Erla Kolbrún Óskarsdóttir, aðstoðar-
kona Sigrúnar Lilju Guðjónsdóttur,
eiganda Gyðju Collection, eða Gyðj-
unnar, eins hún gjarnan kölluð. Erla,
sem er tveggja barna móðir, hefur
starfað fyrir Gyðjuna í tæp tvö ár, en
þær kynntust skömmu áður og náðu
strax einstaklega vel saman.
Hlustaði af aðdáun
Erla hafði verið bloggari á lífs-
stílsvefnum Króm.is og var beðin um
að skrifa um nýja skartgripalínu sem
Sigrún var að senda frá sér. „Ég hafði
fylgst með Sigrúnu frá því hún byrj-
aði og dáðst að henni, þannig mér
fannst það þvílíkur heiður.“
Erla var boðuð á skrifstofu Gyðju
Collection og fyrir tilviljun var Sig-
rún sjálf á svæðinu. „Ég féll alveg
fyrir henni um leið og ég hitti hana.
Ég vissi ekki að hún yrði þarna, en
hún tók rosalega vel á móti. Ég sat
bara og hlustaði á hana með aðdá-
un, hún er svo yndisleg. Við náð-
um strax rosalega vel saman. Hún
gaf mér skart úr nýju línunni sinni,
sagði mér að fara heim, taka myndir
af mér með það og blogga um það.
Ég var ekki alveg með sjálfstraustið
í lagi á þessum tíma og fannst alveg
ótrúlegt að hún bæði mig um þetta
og að ég yrði með þeim fyrstu til að
skrifa um skartgripina.“
Dekrar við Gyðjuna
Skömmu eftir að Erla hitti Sigrúnu
fyrst hélt sú síðarnefnda til Balí þar
sem hún var með sjálfstyrkingar- og
hugleiðslunámskeið fyrir konur, en
þær héldu áfram að spjalla saman
í gegnum facebook. „Ég eiginlega
seldi Sigrúnu þá hugmynd að hana
vantað aðstoðarkonu. Það var svo
brjálæðislega mikið gera hjá henni.
Hún þurfti á aðstoð að halda og við
ákváðum að skoða þetta mál þegar
hún kæmi heim. Þegar við hittumst
aftur þá var ekki aftur snúið og ég
var eiginlega bara orðin aðstoðar-
konan hennar,“ segir Erla um hvern-
ig það kom til að hún fékk þetta starf.
Hún tók við fjölda verkefna sem
Sigrún hafði áður séð um og létti
þannig á henni, en það sem Erla ger-
ir er meðal annars er að halda utan
dagbókina hennar, bóka fundi og
viðburði, bæði innlenda og erlenda.
Starfinu fylgir því mikil ábyrgð „Ef
hún þarf að mæta á fundi þá hringi
ég í hana á morgnana, fer svo til
hennar og er með henni á meðan
hún er að gera sig til. Ég dekra líka
stundum við hana. Geri LKL kaffi
fyrir hana eða útbý boozt. Ég fæ mér
yfirleitt með henni og við spjöllum
um daginn sem er framundan. Þetta
er mikill gæðatími hjá okkur enda
erum við orðnar svo góðar vinkon-
ur. Þetta er eiginlega besti tími dags-
ins, að mínu mati.“
Upplifir glamúrinn
Erla fylgir Sigrúnu á marga viðburði
og fær hún því gjarnan að upp-
lifa glamúrinn beint í æð. Hún átti
einmitt að vera með henni á Miss
Universe Iceland keppninni og hafði
hjálpað til við undirbúninginn, því
Gyðja var einn af bakhjörlum keppn-
innar, en fékk í bakið nokkrum dög-
um fyrir keppni og komst ekki. „Ég
græði svo mikið á því að fara með.
Kynnist fólki og læri margt. Vinnan
verður því ótrúlega skemmtileg og
ég lít varla á þetta sem vinnu.“ Þá
fylgir Erla Sigrúnu líka í vinnuferð-
ir til útlanda, enda þarf einhver að
halda utan um dagskrána, sjá um að
hún ofkeyri sig ekki og borði rétt og
hreyfi sig.
„Það er svo nýtt á Íslandi að
glamúrkona í viðskiptum sé með
aðstoðarmanneskju. Ég meina,
stjórnmálamenn eru með aðstoðar-
menn, af hverju ekki fólk í viðskipt-
um? Fyrst þegar ég sagðist vera að-
stoðarkona Gyðjunnar þá rak fólk oft
upp stór augu en nú spyr fólk frekar
hvort það sé ekki gaman og nóg að
gera.
Endaþarmssig eftir fæðingu
Erla segir samstarf þeirra tveggja
ganga jafn vel og raun ber vitni af
því þær eru mjög góðar vinkonur.
Þær þurfa að eyða svo miklum tíma
saman að annað myndi ekki ganga
upp. „Ég hef verið til taks fyrir hana
„Gyðjan kom á fullkomnum
tíma inn í líf mitt“
Erla Kolbrún er aðstoðarkona Sigrúnar Lilju, eiganda Gyðju Colletion. Hún er öryrki eftir misheppnaða aðgerð sem
átti að laga endaþarmssig og glímir við heiftarleg verkjaköst, auk þunglyndis og kvíða. Erla segir Sigrúnu í raun hafa
bjargað lífi sínu og þær eru orðnar bestu vinkonur.
Þakklát Erla er Sigrúnu Lilju mjög þakklát fyrir að ráða sig sem aðstoðarmann. Það hefur gefið lífi hennar tilgang á ný að komast út af
heimilinu í allt annað umhverfi. Mynd | Hari
nánast allan sólarhringinn síðast-
liðin tvö ár. Auðvitað höfum við
gengið í gegnum ýmislegt saman.
Þetta er íslenskt hönnunarfyrirtæki
og reksturinn getur verið erfiður.
En Sigrún er snillingur í viðskipt-
um. Stundum þegar ég er að hlusta
á hana tala við erlenda framleiðend-
ur þá spyr ég sjálfa mig hvernig hún
fari að þessu. Ég hef lært svo mik-
ið af henni síðastliðin tvö ár,“ segir
Erla, en hún kynntist Sigrúnu eftir
mjög erfitt tímabil í sínu lífi. „Hún
kom á fullkomnum tíma inn í mitt
líf. Og við segjum í raun báðar að við
höfum komið inn í líf hvor annarr-
ar á fullkomnum tíma. Okkur líður
svolítið eins við hefðum verið leidd-
ar saman.“
Fyrir fjórum árum fór Erla í að-
gerð sem átti að vera einföld og smá-
vægileg. Tilgangurinn var að laga
endaþarmssig sem fór að gera vart
við sig eftir fæðingu yngri dóttur
hennar. „Sigið veldur því að það
slaknar á vöðvunum en stundum má
laga það með sjúkraþjálfun. Lækn-
irinn minn vildi hins vegar meina að
sigið væri svo mikið í mínu tilfelli að
ég þyrfti að fara í aðgerð.“ Löng bið
var eftir slíkri aðgerð á Landspítal-
anum þannig Erlu var bent á að hún
gæti farið í aðgerðina á Heilbrigðis-
stofnun Vesturlands á Akranesi, sem
hún gerði.
Úrskurðað sem vanræksla
„Aðgerðin mistókst og ég varð fyrir
varanlegum taugaskaða sem veld-
ur því að ég glími við mikla verki,“
útskýrir Erla sem er öryrki eftir að-
gerðina. En henni varð það ljóst um
leið og hún vaknaði upp af svæf-
ingunni að ekki var allt með felldu.
„Ég var með óbærilegustu verki sem
ég hef upplifað, og hef ég fætt tvö
börn án verkjalyfja. Þetta var eitt-
hvað sem ég gat ekki lifað með. Ég
var heila viku uppi á Akranesi en
læknirinn þar fann ekki út hvað am-
aði að mér, þannig ég endaði með
sjúkrabíl uppi á kvennadeild. Sér-
fræðingurinn sem tók á móti mér
þar vissi hins vegar nákvæmlega
hvað var að þegar hún komast að
því í hvaða aðgerð ég hafði verið.
Læknirinn uppi á Skaga var að nota
aðferð sem, að hennar mati, átti að
vera hætt að nota fyrir 30 árum, af
því hún getur valdið taugaskaða.“
Erla var hálf meðvitundarlaus af
verkjalyfjum á tímabili, en hún var
svo kvalin að það var ekki um annað
að ræða hjá læknunum en að reyna
að verkjastilla hana með öllum til-
tækum ráðum. Dagarnir liðu en
ekki dró úr verkjunum, og eftir viku
af sterkri verkjalyfjagjöf á kvenna-
deildinni var ákveðið að gera aðra
aðgerð á Erlu og rekja upp saumana
sem áttu að laga sigið. „Núna er ég
eins og níræð kona að neðan, ennþá
með sig og viðvarandi taugaverki.
Það létti töluvert á og dró aðeins úr
verkjunum þegar saumarnir teknir,
en skaðinn var skeður. Það var búið
að skemma taugar með því að nota
þessa gömlu aðferð.“
Erla kærði lækninn til Land-
læknisembættisins þar sem úrskurð-
að var að um vanrækslu hefði verið
að ræða, ekki læknamistök.
Sjálfsvígshugsanir
„Ég var í námi í lyfjatækni þegar
þetta gerðist og rétt náði að klára
það, en hef aldrei getað unnið sem
lyfjatæknir. Þegar manni er kippt
svona út úr lífinu þá fylgja því and-
legir sjúkdómar eins og þunglyndi
og kvíði. En að hitta svona frábæra
og framúrskarandi konu sem vinnur
við það að byggja upp konur, var al-
veg fullkomið. Ég var aðeins byrjuð
að rífa mig upp af koddanum þegar
ég hitti Gyðjuna fyrst og svo greip
hún mig þegar ég stóð upp. Að kom-
ast með henni út á daginn, í eitt-
hvað allt annað umhverfi, það hefur
bjargað lífi mínu. Gyðjan hefur verið
ein stærsta ástæðan fyrir því að ég
hef farið fram úr rúminu. Auðvitað
börnin mín líka, en þegar maður er
svona veikur þá þarf maður að kom-
ast út af heimilinu. Í eitt og hálft ár
eftir aðgerðina var maðurinn minn
í raun með þrjú börn. Ég var þriðja
barnið. Ég var tvisvar lögð inn á geð-
deild vegna þessara veikinda. Í fyrra
skiptið var það vegna sjálfsvígshugs-
ana. Ég var búin að kveðja börnin
mín. Sjúkraþjálfunin var ekki að
ganga og taugaverkjalyfin voru ekki
að virka sem skyldi.“
Erla finnur til alla daga en verkirn-
ir eru mismiklir. Það hefur komið
fyrir að hún hefur þurft að afboða
sig á viðburði með Sigrúnu vegna
þess, en ef hún þarf virkilega að
mæta eitthvert er eins og líkaminn
hlýði henni og sé til friðs. „Það er
alveg ótrúlegt að ég kemst yfirleitt
þangað sem mig langar og það sem
er mér mikilvægast. Sigrún er líka
mjög skilningsrík og umhyggjusöm
þannig hún passar hún vel upp á
mig, þó hún hafi í mörg horn að líta.
Ég er henni ótrúlega þakklát.“
Hægt er að fylgjast bæði með Erlu
og Sigrúnu á snapchat: erlak85 og
theworldofgydja
…viðtal 4 | amk… LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2016
Ég græði svo mikið á því að
fara með. Kynnist fólki og læri
margt. Vinnan verður því ótrúlega
skemmtileg og ég lít varla á þetta
sem vinnu.
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is.
Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.