Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 24.09.2016, Síða 40

Fréttatíminn - 24.09.2016, Síða 40
alla föstudaga og laugardaga 16 ár eru frá því breska hljómsveitin Suede tróð upp í Laugardalshöll. Sveitin endurtekur leikinn hinn 22. október næstkomandi. Justin Bieber nýtur þess að vera einhleypur Íslandsvinurinn geðþekki er hættur með Sofiu Richie. Hvorki íburður né glamúr Fegurðarsamkeppnin Miss Universe Iceland fór fram fyrr í þessum mánuði, en Manúela Ósk Harðardóttir sá um undir- búning keppninnar hér á landi. Hildur María Leifsdóttir bar sigur úr býtum og er hún nú komin til Bandaríkjanna ásamt Manúelu að sinna ýmsum verkefnum sem Miss Universe Iceland. Það fer ekki mikið fyrir íburði og glamúr á fyrstu dögum ferðarinnar, en þær hafa þurft að ferðast langar vegalengdir í bíl á milli staða. Reglulega er stoppað á bens- ínstöðvum og skyndibitastöð- um til að sækja orku, gjarnan í formi kartöfluflaga og sælgæt- is. Gistiaðstaðan er þó yfirleitt fín, en ef marka má myndir af snapchat virðast þær gista í heimahúsum frekar en á hótelum. Kristín Marja loks með nýja bók Einn alvinsælasti rithöfund- ur þjóðarinnar, Kristín Marja Baldursdóttir, sendir loks frá sér nýja bók fyrir komandi jól. Fjögur ár eru síðan síðasta bók Kristín- ar Marju, Kantata, kom út. Hún varð ein metsölubóka þau jólin en Kristín Marja hefur lengi átt stór- an og dyggan lesendahóp. Nýja bókin heitir Svartalogn og mun vera væntanleg í næsta mánuði, samkvæmt heimildum Fréttatím- ans. Bækur Kristínar Marju um Kar- itas urðu meðal mest seldu bóka landsins auk þess sem hún hefur átt velgengni að fagna víða er- lendis, svo sem í Þýskalandi þar sem bækur hennar hafa iðulega komist inn á metsölulista. Justin Bieber hætti með Sofia Richie fyrir nokkrum dögum, en Sofia Richie er dóttir söngvarans Lionel Richie. Justin virðist vera slétt sama þó þau séu hætt saman og heimildarmaður Hollywood- Life sagði: „Justin elskar að vera einhleypur og gerir hvað sem hann vill gera. Honum finnst gott að vera ekki ábyrgur fyrir því að þróa og hlúa að sambandi núna því hann er að einbeita sér að tónleikaferðalaginu sem hann er á núna. Hann ætlar ekki að fara í samband aftur á næstunni og vill bara vera einn. Hann vill alveg vera með stelpum og eiga þær sem vini en hann ætlar alls ekki í fast samband.“ Nýtur piparsveinalífsins Justin Bieber er á lausu og ætlar ekki að vera með stelpu á föstu á næstunni. Mynd | NordicPhotos/Getty

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.