Fréttatíminn - 24.09.2016, Qupperneq 42
Niðursuðan góður kostur
Einar á sér langa og merka sögu í ný-
sköpun tengdri íslenskum matvæla-
iðnaði og sjávarútvegi, en hann hóf
fyrst störf hjá Ora árið 1972. Þá hafði
kviknað hjá honum áhugi á niður-
suðufræðum.
„Þetta byrjaði þannig að árið 1971
þá tók ríkisstjórnin ákvörðun um að
efla matvælaiðnað á Íslandi. Magnús
Kjartansson var þá iðnaðarráðherra
og við vorum nýgengin í EFTA. Það
voru fengnir sérfræðingar frá út-
löndum til að segja ríkisstjórninni
hvað væri best að gera í þessum
efnum. Þar kom fram að niðursuða
væri góður kostur fyrir Íslendinga.
Ég var þá 18 ára, heyrði þetta, greip
á lofti og fannst þetta vera eitthvað
fyrir mig,“ segir Einar um hvernig
það kom til að hann ákvað að læra
niðursuðufræði.
Lærði í Noregi
Skömmu síðar hélt hann svo til
Noregs þar sem hann lærði fræðin
við Norges Hermetikkfagskole í
Stavangri í Noregi. Þaðan lá leiðin
til Vardö í Norður-Noregi til náms
í fisktækni við Statens fagskola for
fiskeindustri. Einar starfaði sem
niðursuðufræðingur í Noregi í sex
ár að námi loknu, áður en hann hélt
Verðlaunaður
fyrir nýsköpun
í matvælaiðnaði
og sjávarútvegi
Aftur til Ora Einar er kominn hringinn. Hann réð sig nýlega til Ora, en þar hóf hann einmitt störf árið 1972.
Einar Þór hefur starfað
við matvælaiðnað frá
árinu 1972. Hann ákvað
að niðursuðufræði
væru eitt hvað fyrir
sig þegar ríkisstjórnin
tilkynnti það árið 1971
að efla skyldi mat
vælaiðnað á Íslandi.
Erlendir sérfræðingar
mæltu með niðursuðu
og Einar greip hug
myndina á lofti.
aftur til Íslands með þekkingu sína,
þar sem hann tók við verksmiðju-
stjórastöðu hjá nýstofnaðri niður-
suðuverksmiðju í Grindavík.
Viðurkenningin kom á óvart
Einar hefur starfað í Grindavík mest-
allan sinn feril ásamt því að sinna
vöruþróun hjá ýmsum fyrirtækj-
um, bæði hér heima og erlendis, frá
aldamótum. Nýlega réð hann sig þó
til starfa hjá Ora, Akraborg og Lýsi.
„Ég er búinn að fara hringinn,“ segir
Einar kíminn og vísar þar til þess að
hann er aftur kominn til Ora, þar
sem ferillinn hófst. Aðspurður hvort
það hafi ekki mikið breyst á þessum
rúmu fjörutíu árum, segir Einar að-
ferðirnar vera þær sömu, það eina
sem hafi breyst sé vélakosturinn.
Einar segir það mikinn heiður
að fá viðurkenningu fyrir sín störf.
„Það segir svo mikið út á við. Ham-
ingjuóskum hefur rignt yfir mig, líka
frá mönnum sem eiga stóran þátt í
því sem ég hef verið að gera. Maður
er aldrei einn. Það kom mér reyndar
mjög á óvart að fá þessa viðurkenn-
ingu. Maður er ekkert að hugsa út
í svona lagað, þannig ég var mjög
hissa.“
Sjávarútvegur 2016
Sýningin Iceland Fishing Expo fer fram
í Laugardalshöll um næstu helgi.
Sýningin Iceland Fishing Expo –
Sjávarútvegur 2016 verður haldin
í Laugardalshöll dagana 28.-30.
september næstkomandi. Um er
að ræða vettvang fyrir fagaðila og
aðra áhugasama til að kynna sér
framfarir og nýjungar innan sjáv-
arútvegsgeirans. Áhersla verður
lögð á að stilla verði sýningarbása
í hóf og einnig verður boðið upp
á þá nýjung að sýnendur fá eins
marga boðsmiða inn á sýninguna
og þeir óska, þeim að kostnaðar-
lausu. Þannig gefst fyrirtækjum,
jafnt stórum sem smáum, tækifæri
til að kynna vörur sínar fyrir inn-
lendum sem og erlendum aðilum.
Mikil uppsveifla hefur átt sér
stað í íslenskum sjávarútvegi.
Tæknibylting hefur orðið í útgerð
og vinnslu sem hefur komið ís-
lenskum sjávarútvegi í fremstu
röð. Fjöldinn allur af sprotafyr-
irtækjum hefur litið dagsins ljós,
fyrirtækjum sem þróað hafa að-
ferðir til að vinna úr fiskinum hin-
ar ýmsu afurðir. Má þar t.d. nefna
snyrtivörur, lyf, vítamín og vörur
unnar úr fiskroði. Það er því óhætt
að fullyrða að það verði af ýmsu að
taka á sýningunni.
HJALLABREKKA 1 - 200 KÓPAVOGUR
SÍMI: 564 3000 - www.loft.is - loft@loft.is
Við erum á
sjávarútvegs-
sýningunni
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Þ
etta er auðvitað viður-
kenning á mínum störfum
og gott til að láta vita af
mér, þó flestir í þessum
bransa viti nú reyndar
af mér,“ segir Einar Þór Lárusson
sem hlýtur Nýsköpunarverðlaun
Íslenska sjávarklasans sem afhent
verða við opnun Sjávarútvegssýn-
ingarinnar, þann 28. september
næstkomandi.
Það voru feng
nir sérfræðingar
frá útlöndum til að
segja ríkisstjórninni
hvað væri best að gera
í þessum efnum. Þar
kom fram að niðursuða
væri góður kostur fyrir
Íslendinga. Ég var þá
18 ára, heyrði þetta,
greip á lofti og fannst
þetta vera eitthvað
fyrir mig.
FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 20162 SJÁVARÚTVEGUR