Fréttatíminn - 24.09.2016, Síða 46
Heilsudrykkur
vekur heimsathygli
Inniheldur collagen sem bætir heilsu
og hreyfigetu.
Alda er nýr heilsudrykkur frá Codland sem kom á markað í sumar.
Drykkurinn inniheldur collagen sem búið er til úr þorskroði, en um er
að ræða prótein sem við inntöku getur bætt heilsu og hreyfigetu. Það
örvar umbrot frumna í brjóski og liðum og stuðlar að endurnýjunarferli
í bandvefjum en efnið styður til dæmis vefi í beinum, húð, vöðvum og
sinum líkamans. Notkun collagens getur jafnframt dregið úr hrukku-
myndun.
Alda hefur vakið mikla athygli og lukku meðal neytenda og annarra.
Og þá ekki bara drykkurinn sjálfur, heldur líka umbúðirnar. Á dögun-
um var til að mynda fjallað um drykkinn í einu áhrifamesta umbúða- og
vöruhönnunarveftímariti heims, Dieline. Tímaritið hefur þann tilgang
að kynna áhugaverða og flotta hönnun frá öllum heimshornum, en
hönnuður umbúða Öldu er Milja Korpela.
Kvennakvótinn í góðu lagi
Samtökum félaga í sjávarútvegi, SFS, er að stærstum hluta stjórnað af
konum sem er nýlunda í þessum iðnaði þar sem karlar hafa gegnum
áratugina staðið í brúnni og haldið um stjórnartaumana.
Konurnar í brúnni Karen Kjartansdóttir, Hallveig Ólafsdóttir og Heiðrún Lind Marteinsdóttir.
Þ
rjár konur standa
fremst meðal jafningja
hjá SFS; Karen Kjartans-
dóttir samskiptastjóri,
Hallveig Ólafsdóttir hag-
fræðingur og Heiðrún Lind Mart-
einsdóttir sem tók við stöðu fram-
kvæmdastjóra SFS í ágúst. Auk
þeirra þriggja má geta kvenna
sem sinna ýmsum störfum innan
SFS, til að mynda Helgu Thors
sem hefur starfað að kortlagningu
markaðsverkefnis og í sama húsi
og SFS vinnur Hrefna Karlsdótt-
ir að vottunarmálum í fiskveið-
um. Þrátt fyrir að alvanalegt sé
að konur vinni í sjávarútvegi er
jákvætt skref að svo margar konur
sitji í stjórnunarstöðum. Að sögn
Karenar hefur þessi þróun verið
hröð en mikilvæg. „Nútímavæð-
ing sjávarútvegsins hefur skapað
konum fleiri tækifæri innan hans
og tengdum greinum. Það er svo
sérlega gleðilegt að sjá hve opn-
um örmum atvinnugreinin hefur
tekið þessari breytingu ef svo má
segja. Konur styðja hver aðra og
það hafa karlarnir líka gert. Von-
andi heldur þessi þróun áfram og
sérstaklega væri gleðilegt væri ef
stjórnmálin færu einnig á sömu
mið fljótlega,“ segir Karen.
Árið 2013 var félag kvenna í
sjávarútvegi stofnað, KIS. Félagið
var stofnað af 10 konum í sjávar-
útvegi og mynduðu þær stjórn
þessa félags sem hefur eflst og
stækkað frá ári til árs frá stofnun.
Tilgangur KIS er að efla og styrkja
konur innan iðnaðarins sem og
utan. Formaður KIS er Freyja
Önundardóttir, útgerðarstjóri Ön-
undar ehf.
FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 20166 SJÁVARÚTVEGUR
ÞEGAR GÆÐI SKIPTA MÁLI
KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK
590 5100
Lyftarar, loftpressur og bátavélar í hæsta gæðaflokki
ásamt bestu þjónustu sem völ er á.