Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 07.10.2016, Page 20

Fréttatíminn - 07.10.2016, Page 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 7. október 2016  Heimilisjógúrt með mangóbragði MANGÓ, MANGÓ, MANGÓ! NÝTT BRAGÐ Ég var skíthræddur við hann Nokkru eftir að dómurinn féll sneri maðurinn heim eins og ekkert hefði í skorist. Systir hans var þá flutt að heiman og móðir hans ein eftir í húsinu. „Hann var stór og luraleg- ur, alltaf í leðurjakka.  Hann var búin að fá sér stóran sjefferhund sem hann hafði alltaf með sér. Ég varð hrædd og forðaði mér ef ég sá honum bregða fyrir. Mér fannst hann ógeðslegur. Fjölskyldurnar töluðust aldrei við aftur,“ segir Anna María. „Hann hafði engin afskipti af okk- ur,“ segir faðir telpunnar. „Ég var skíthræddur við hann og hann var sjálfsagt sama sinnis. Hann gætti þess að verða ekki á vegi mínum. Fólk var sárhneykslað eftir að hann kom aftur með þennan hunddjöf- ul. Hann hefur sjálfsagt fundið það. Hann var allavega ekki lengi hérna.“ Hann segir að samfélagið hafi verið mjög slegið yfir málinu eftir að það kom upp því auðvitað hafi það spurst út þótt ekki væri um það fjallað. „En fólk vissi auðvitað ekki hvað þetta var hrottalegt og hvað áverkarnir voru miklir.“ Hann segir að systur mannsins hafi heimsótt þau nokkrum dögum eftir atburðinn og talað um hvað þeim þætti þetta sárt. „Þær virtust ekki efast um að bróðir þeirra væri sekur.“ Sárhneyksluð á vægum dómi Fjölskylda telpunnar hittist í gær og las dóminn yfir í fyrsta sinn, rúm- um þrjátíu árum eftir að brotið var framið. „Dómurinn er handskrifað- ur af Sigurði Briem og við þurftum að stauta okkur í gegnum þetta,“ segir faðirinn. Hann segir að það hafi komið mest á óvart að maður- inn hafi játað að hafa brotið gegn telpunni og þá hafi hann einnig ját- að á sig aðrar afbrigðilegar hneigðir í fortíðinni, því það var þeim aldrei sagt. Þá séu þau sárhneyksluð á því hversu vægan fangelsisdóm maður- inn fékk fyrir svo hrottafengið brot gagnvart varnarlausu barni, þótt hann hafi verið metinn sakhæfur. Anna María bendir á að málið hafi verið afar vandasamt í samfé- lagi þar sem allir þekki alla. Það sé rannsakað og dæmt heima í héraði og það sé ekki heppilegt í svona litlu samfélagi. „Þetta var auðvitað þöggun á vissan hátt,“ segir Anna María og bendir á að þetta hafi orðið til þess að foreldrar og börn vissu ekki að þetta gæti verið hættulegur maður. „Fólk vissi ekki heldur að hann hefði fengið annan fangelsisdóm fyrir að níðast á börnum síðar meir. Samfélagið hér var hálflamað eftir að greinin birtist í Fréttatímanum í síðustu viku. Fjöldi fólks hefur haft samband og allir segja sömu sögu. Þeir vissu að eitthvað hefði komið fyrir, en höfðu mjög óljósar upplýs- ingar. Það kom algerlega flatt upp á fólk hversu hrottalegt brotið hefði verið og að maðurinn hefði játað það á sig.“ Eins og gerst hefði í gær Anna María hefur sjálf rannsakað kynferðisbrot gagnvart fólki með þroskahömlun og skrifaði um það lokaritgerð í námi sínu. Hún segist ætla að fá sér lögfræðing og fá að sjá rannsóknargögnin í málinu. Hún segir að stóra spurningin sé hvort málið hafi fengið aðra meðhöndlun í kerfinu vegna þess að systir henn- ar var þroskahömluð og hvort það hafi haft áhrif á dóminn. Hún tel- ur alls ekki útilokað að svo sé, því miður. „Hann fékk náttúrulega alltof stuttan dóm og auðvitað getur það spilað inn í,“ segir faðir telpunnar. „En það er helvíti hart ef svo er. Þetta er sama brotið hvort sem telp- an var þroskaskert eða ekki.“ Anna María Þórðardóttir segir að systir sín hafi lokað á atburðinn og lítið vilja ræða um hann. Hún hafi því miður lent í öðru mis- notkunarmáli eftir að hún varð fullorðin en þá átti þroskaskertur maður á Húsavík í hlut. Úr því máli var unnið án atbeina dómstóla. „Eftir það ræddi hún ofbeldið úr bernskunni, sem hafði greinilega verið mun verra fyrir sálina. Það var augljóst að það sat mjög djúpt í henni og olli henni mikilli vanlíð- an að rifja það upp. Samt stóð allt svo ljóslifandi fyrir henni, hún gat lýst húsinu, Sveini Ríkarðssyni og svefnherberginu þar sem brotið var framið, eins og þetta hefði gerst í gær,“ segir Anna María. Fórnarlambið og systur hennar tvær um það leyti sem brotið var framið. Nokkru eftir að dómurinn féll sneri maðurinn heim eins og ekkert hefði í skorist. Systir hans var þá flutt að heiman og móðir hans ein eftir í húsinu. „Hann var stór og lura- legur, alltaf í leðurjakka. Hann var búin að fá sér stóran sjefferhund sem hann hafði alltaf með sér,“ segir Anna María.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.