Fréttatíminn - 29.10.2016, Síða 48
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
V iðbrögðin hafa verið rosalega góð. En ég var alveg pínu smeyk, ég verð að viður-kenna það, þetta er
mikill heiður og ábyrgð og þessu
vill maður ekki klúðra,“ segir Sig-
yn Blöndal, nýr umsjónarmaður
Stundarinnar okkar. Hún tók við
keflinu í haust en þá hafði verið
ákveðið að gera þær breytingar að
hætta með leikið efni í þættinum
og leyfa börnunum að njóta sín
meira.
Stoppuð í sundi
Fimmti þátturinn af nýju Stund-
inni fer í loftið á sunnudaginn
þannig smá reynsla er komin hug-
myndina og virðist hún leggjast
vel bæði í börn og fullorðna. Sig-
yn hefur meira að segja nú þegar
verið stoppuð í sundi á Selfossi af
nokkrum krökkum sem vildu að-
eins ræða þáttinn við hana. „Það
var alveg gott korter sem fór í að
ræða ýmis málefni Stundarinnar
okkar við hóp af tíu ára krökkum.
Það var mjög skemmtilegt. Þau
hafa svo miklar skoðanir og það
er gaman að geta brugðist við því
sem þau segja og tekið mið af því í
þáttunum.“
Þrátt fyrir að þættirnir séu stíl-
aðir inn á börn á aldrinum sex til
tólf ára, þá veit Sigyn til þess að
heilu fjölskyldurnar setjist fyrir
framan sjónvarpið og horfi saman
á Stundina, allt niður í tveggja ára
börn og upp í fullorðið fólk, sem
henni finnst alveg frábært. Þó hún
hafi lítið spáð í annað en þann
áhorfendahóp sem stílað er inn á.
Sagt að allt myndi breytast
Í gegnum tíðina hefur sú mýta
reyndar verið lífseig að pabbarnir
séu duglegri að setjast niður með
börnum sínum og horfa á Stund-
ina okkar þegar umsjónarmaður-
inn er kvenkyns. Á sú mýta á lík-
lega rætur sínar að rekja nokkra
áratugi aftur í tímann þegar færri
tækifæri gáfust fyrir karlmenn til
að horfa á fallegar konur í sjón-
varpi. Hvort þetta er raunin skal
látið liggja á milli hluta. En er
þetta eitthvað sem Sigyn hefur
leitt hugann að?
„Ég verð að viðurkenna að
þetta er ekki eitthvað sem ég
spáði í sjálf, en ein samstarfskona
mín benti mér á að nú myndi allt
breytast. Ég fer ekki einu sinni
þangað í huganum,“ segir Sigyn
og hlær. Henni finnst þetta aug-
ljóslega spaugileg umræða.
„Mér finnst eiginlega mikil-
vægara að það sem ég segi komist
til skila heldur en eitthvað annað,
og ég hugsa meira um það. Svo
klæði ég mig bara eins og mér
finnst þægilegast að klæða mig, í
Skreið út um glugga til að
reyna að vera kúl
Sigyn Blöndal er nýr umsjónarmaður Stundarinnar okkar. Hún viðurkennir að hafa verið pínu smeyk yfir því hvernig
viðbrögðin við þættinum yrðu, enda vill hún alls ekki klúðra þessu verkefni. Hún var tíu ára þegar hún stýrði fræðslu
þætti fyrir börn á Stöð 2 og tók starfið þá líka mjög alvarlega. Neitaði sér jafnvel um að horfa á Simpson til að
undirbúa sig fyrir vinnuna.
Áskorun Sigyn segist vissulega vera að ögra sjálfri sér með því að sjá um Stundina okkar,
en verkefnið sé líka alveg ótrúlega skemmtilegt. Mynd | Hari
strigaskó, gallabuxur og bol. Ég er
bara ég í þáttunum.“
Ögrar sjálfri sér
Sigyn var fyrst ráðin inn á RÚV
fyrir ári síðan og var þá bæði að
vinna í barnaefni og efni fyrir Víð-
sjá. Fljótlega fór hún líka að starfa
við KrakkaRÚV og því lá beinast
við að hún tæki bara við Stundinni
okkar þegar starfið losnaði. „Þetta
þróaðist allavega þannig að ég var
beðin um að taka við. Ég sagði
auðvitað strax já en fór svo að
hugsa hvort þetta væri örugglega
eitthvað sem ég gæti gert. En það
er um að gera að ögra sjálfum sér
og þetta gerir það svo sannarlega,“
segir hún og hlær.
„Þetta er samt alveg rosalega
skemmtilegt og ég fæ tækifæri
til að taka mig ekki of alvarlega.
En lang skemmtilegast er að fá
að vinna efnið með krökkunum.
Ég er sjálf danskennari og var
með dansskóla á Akureyri í níu
ár, þannig þetta er ekki í fyrsta
skipti sem ég er að vinna með
börnum. Þetta er auðvitað annað
platform en svipuð vinna. Það er
margt sem ég lærði þegar ég var
með dansskólann sem nýtist mér
í Stundinni. En það rosalega gef-
andi að vinna með börnum, núm-
er eitt, tvö og þrjú.“
Sigyn er reyndar ekki alveg
hætt í útvarpinu því hún er líka
með Útvarps-stundina á Rás 1
á fimmtudögum, þar sem einn
grunnskólabekkur sér um dag-
skrárgerð hvers þáttar.
Sá um sjónvarpsþátt 10 ára
Sigyn er fædd á Akureyri og bjó
þar fyrstu níu árin. Þá flutti hún
suður til Reykjavíkur. Hún snéri
hins vegar aftur til Akureyrar
þegar hún var 22 ára og kom þá á
fót áðurnefndum dansskóla. „Ég
kláraði Kvennaskólann og fór í
Háskóla Íslands, svo Háskólann á
Akureyri, en fann mig ekki. Þess
vegna ákvað ég að kýla á þetta
með dansskólann. En svo fluttum
við fjölskyldan til Englands árið
2012 þar sem ég fór í háskólanám
29 ára gömul.“ Námið sem varð
fyrir valinu heitir „media pract-
ice“ og þar lærði hún framleiðslu
á efni, með áherslu á útvarp. „Ég
er því eiginlega með BA gráðu
í því að framleiða efni fyrir út-
varp, podcast, og svona. Það er
því mjög óvænt að eftir eitt ár í
útvarpi sé ég komin í eitthvert allt
annað. En svona er lífið.“
Sigyn var þó ekki alveg óreynd
í sjónvarpi þegar hún tók við
Stundinni okkar. Hún var nefni-
lega með sjónvarpsþáttinn Kýr-
hausinn á Stöð 2 þegar hún var
tíu ára, ásamt Gunnari Helgasyni
leikara og Benedikti Einarssyni.
En um var að ræða fræðsluþátt
fyrir börn.
„Kannski var fræinu sáð þar.
Það að vinna barnaefni með börn-
um hefur alltaf verið svolítið bak
við eyrað á mér.“
Missti af Simpsons út af vinnu
Sigyn sá einfaldlega skjáauglýs-
ingu þar sem auglýst var eftir
börnum til að vera með sjón-
varpsþátt og hún tilkynnti móður
sinni það hátíðlega að hún ætlaði
að sækja um. „Þetta var algjörlega
geggjað, ótrúlega skemmtilegt.
Við fengum alltaf handritið heim
og þurftum að læra það utan að.
Þannig að þetta var töluverð-
ur undirbúningur. Svo var heill
tökudagur á viku. Við fengum
meira að segja ágætlega borgað
fyrir þetta og það var vel hugsað
um okkur,“ segir Sigyn sem tók
starf sitt sem sjónvarpskona mjög
alvarlega þó að hún væri ung að
árum. Mamma hennar passaði
líka upp á að hún sinnti vinnunni
af fullum hug þegar eitthvað ann-
að spennandi var innan seilingar.
„Það situr enn í mér að eitt mið-
vikudagskvöldið þá mátti ég ekki
horfa á Simpsons-þáttinn eins og
allir í bekknum af því ég þurfti
að vinna. Ég þurfti að undirbúa
mig heima. Það er eitt af því sem
mamma hefur kennt mér, að
mæta ekki óundirbúin í vinnuna.
Línurnar voru lagðar þarna,“ seg-
ir hún kímin.
Skreið út um gluggann
Aðspurð hvernig barn og ungling-
ur hún sjálf hafi verið segist hún
telja að hún hafi verið nokkuð
þægileg. Þó að hún hafi stundum
…viðtal 4 | amk… LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
„Það situr enn í mér að eitt
miðvikudagskvöldið þá mátti
ég ekki horfa á Simpsons-þáttinn
eins og allir í bekknum af því ég
þurfti að vinna. Ég þurfti að undir-
búa mig heima.“
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is.
Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.