Fréttatíminn - 29.10.2016, Síða 56
alla föstudaga
og laugardaga
Ekki gleyma að kjósa
Hægt er að finna upplýsingar um kjörstaði og fleira inni á kosning.is
Matthews og Middleton í hnappelduna í maí
Biðin senn á enda.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi (við hliðina á Bónus) - Sími 544 2121 - www.rumgott.is
50% afsláttur
af völdum vörum
HAUST ÚTSALA
Legugreining Rúmgott
Komdu og fáðu fría legugreiningu og
faglega ráðgjöf við val á þínu rúmi
Heimsbyggðin - í það minnsta
þau sem hafa áhuga á málefnum
bresku konungsfjölskyldunnar -
heldur niðri í sér andanum yfir
brúðkaupi Pippu Middleton, systur
Katrínar hertogaynju. Hún trú-
lofaðist James Matthews í sumar
en fram að því hafði henni verið
spyrnt saman við mann og annan
að ósekju, meðal annars Harry
prins, mág sinn en engar sannan-
ir eru fyrir því að þau hafi nokkru
sinni átt neitt saman að sælda. Nú
hefur það komið upp úr kafinu að
brúðkaup Middleton og Matthews
verður í maí á næsta ári og búast
má við að það verði allt hið glæsi-
legasta, ekki síst brúðurin sem
þykir með huggulegri konum. Að-
dáendur bíða með öndinni í háls-
inum eftir því hvernig brúðarkjóll-
inn mun líta út enda brúðarkjólar
sérlegt áhugamál margra. Hönnuð-
ur brúðarkjóls Díönu prinsessu
heitinnar, David Emanuel, lét hafa
eftir sér að hann myndi vilja sjá
hana í mjúkum kjól, ef til vill úr
siffoni - að sjálfsögðu með löngu
slöri. Slíkt kemur reyndar ekki á
óvart úr þeirri átt; slóðinn á kjól
Díönu var tugir metra að lengd.
Enginn vafi er á því að það verður
slegist um að hanna brúðarkjól
Middleton og því spennandi að sjá
hver verður fyrir valinu. Gárungar
velta því einnig fyrir sér hvort Kata
systir verði aðalbrúðarmærin og
Georg litli prins hringaberi. Þetta
kemur allt í ljós innan skamms.
Pippa Middleton Aðdáendur bíða með
öndina í hálsinum eftir brúðkaupi hennar
og James Matthews.
Seldi 200 bækur á
einu kvöldi
Hér heima er jólabókaflóðið
nú komið á fullt og íslenskar
sögur streyma í bókabúðir. Ein af
þeim bókum sem mun eflaust
njóta mikilla vinsælda þessi jólin
er Nóttin sem öllu breytti, saga
Sóleyjar Eiríksdóttur sem lifði af
snjóflóðið á Flateyri 1995, fólks
hennar og þorpsins. Sóley skrifar
bókina í félagi við Helgu Guðrúnu
Johnson. Útgáfuhóf var haldið á
Kex Hostel á fimmtudagskvöld og
var þröng á þingi í Gym &
tonik-salnum. Um 200 eintök
seldust af bókinni og þurfti að
kalla eftir aukasendingu á staðinn
til að allir sem vildu fengju eintak.
Bók Auðar Jóns seld
til Þýskalands og
Ungverjalands
Fjölmargir Íslendingar úr
bókmenntaheiminum sóttu
Bókamessuna í Frankfurt á
dögunum. Þangað fara útgefend-
ur bæði til að
kynna ís-
lenskar
bókmenntir og
til að tryggja
sér útgáfurétt
að vænlegum
erlendum
bókum. Mikill
áhugi var á
íslenskum
skáldsögum á sýningunni og strax
á fyrsta degi handsöluðu fulltrúar
Forlagsins samning við Random
House í Þýskalandi um útgáfu
Stóra skjálfta eftir Auði Jóns-
dóttur og við S.Fischer Verlag um
Svartalogn eftir Kristínu Marju
Baldursdóttir. Stóri skjálfti Auðar
var sömuleiðis seldur til forlags-
ins Gondolat í Ungverjalandi.
Þetta voru ekki einu íslensku
skáldsögurnar sem erlendir útgef-
endur keyptu í Frankfurt. Daginn
fyrir sýninguna keypti breska
forlagið Orenda útgáfuréttinn
að Gildrunni og Netinu eftir Lilju
Sigurðardóttur með svokölluðu
„preempt“ tilboði. Einnig voru
bækur Árna Þórarinssonar, 13
dagar, og Lilju Sigurðardóttur,
Netið, seldar til Frakklands. Bæk-
ur Arnaldar Indriðasonar njóta
vitaskuld áframhaldandi vinsælda
og gengið var frá fjórum samning-
um á sýningunni sjálfri.