Fréttatíminn - 18.11.2016, Síða 54
Auk þess að tryggja örugga skjalaeyðingu sér Efnamóttakan um mót-
töku, meðhöndlun og frágang spilliefna, s.s. rafhlaðna, prenthylkja og
raftækja og kemur þeim í farveg til viðurkenndra aðila. Í starfseminni
er lögð mikil áhersla á endurvinnslu enda er umhverfisvernd eitt af að-
alsmerkjum fyrirtækisins. Efnamóttakan var stofnuð árið 1998 af Sorpu
og Aflvaka en núverandi eigandi fyrirtækisins er Gámaþjónustan hf.
Efnamóttakan býr því að góðum grunni á sínu sviði og hefur öflugan
bakhjarl að starfsemi sinni. Hjá Efnamóttökunni hf. starfa að jafnaði 15
manns í fullu starfi. Starfsfólkið hefur flest áralanga reynslu, menntun
og þjálfun við spilliefnaeyðingu, förgun og endurnýtingu. Efnamóttakan
hf. er eina fyrirtækið á landinu sem sérhæfir sig í spilliefnaþjónustu.
Hvað sér Efnamóttakan um?
…endurvinnsla kynningar 10 | amk… FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016
Öruggt ferli , „Þegar gögnin eru
komin í hús eru þau tætt niður í
litlar flögur, 1-2 cm á hvern kant,
sem síðan er blásið út í gám.
Þegar hann er fullur er pappírinn
pressaður og sendur sína leið í
endurvinnslu.“ Mynd | Rut
Jón H. Steingrímsson ,
framkvæmdastjóri
Efnamóttökunnar „Við tökum
á móti trúnaðarskjölum,
bókhaldi og öðru því sem fólk
vill ekki henda í venjulega
tunnu eða óvarið í venjulega
pappírssöfnun.“ Mynd | Rut
Örugg
og viðurkennd
skjalaeyðing
Efnamóttakan tryggir að viðkvæm skjöl
rati ekki í rangar hendur
Unnið í samstarfi við
Efnamóttökuna.
Skjalaeyðing Efnamóttökunn-ar tryggir að viðkvæm skjöl og pappírar frá fyrirtækj-um og stofnunum, sé eytt
með öruggum hætti. „Við tökum á
móti trúnaðarskjölum, bókhaldi og
öðru því sem fólk vill ekki henda í
venjulega tunnu eða óvarið í venju-
lega pappírssöfnun,“ segir Jón H.
Steingrímsson, framkvæmdastjóri
Efnamóttökunnar.
„Við bjóðum upp á allan feril-
inn, læst ílát til söfnunar, öruggan
flutning í bíl með þjófavörn, örugga
eyðingu og endurvinnslu.“ Við
flytjum gögnin til okkar þar sem
þau fara í sérstaka aðstöðu sem
er afmörkuð frá öllu öðru og er að-
gangsstýrð, þangað komast ekki
aðrir en þeir sem eiga erindi. Ör-
yggismyndavélar eru til staðar og
viðskiptavinurinn getur fylgst með
eyðingunni ef hann kýs það,“ segir
Jón. Þegar gögnin eru komin í hús
eru þau tætt niður í litlar flögur, 1-2
cm á hvern kant, sem síðan er blás-
ið út í gám. Þegar hann er fullur er
pappírinn pressaður og sendur sína
leið í endurvinnslu.
Efnamóttakan leggur sig fram
við að veita faglega þjónustu eftir
ítrustu og ströngustu kröfum. „Við
vinnum eftir sérstökum skjala-
eyðingastaðli og höfum fengið út-
tekt hjá viðurkenndum aðila um við
séum að fylgja honum,“ segir Jón.