Fréttatíminn - 17.12.2016, Síða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016
Óútskýrðum dauðsföllum fjölgar
Dánarmein Dauðsföllum þar sem
dánarmein er óþekkt eða ótilgreint
hefur fjölgað á síðustu þremur
árum. Framan af öldinni voru
þau um sex til sjö á ári hverju.
Síðustu þrjú ár hafa á bilinu 14 til
21 dauðsföll verið skráð í þessum
flokki, samkvæmt dánarmeinaskrá
Landlæknis.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@frettatiminn.is
Árið 2013 voru 21 dauðsföll óskýrð í
skráningu, ríflega helmingi fleiri en
á árunum á undan. Árið eftir voru
óskýrð dauðsföll fjórtán og í fyrra
voru þau sextán. Jón Gunnlaugur
Jónasson, yfirlæknir meinafræði-
deildar Landspítalans, segist í sam-
tali við Fréttatímann ekki geta gef-
ið neina afdráttarlausa skýringu á
þessari fjölgun.
Í fljótu bragði er engin augljós
skýring á þessu,” segir Jón Gunn-
laugur. Dauðsföll séu skráð í um-
ræddum flokki þegar það er ekki
haldbær skýring á andláti, hvort
sem það sé við krufningu eða þegar
það er gefið út dánarvottorð.
„Þetta getur farið eftir því hvað
lögregluyfirvöld og læknir ákveða í
sambandi við krufningu. Lögreglan
getur sleppt því að biðja um réttar-
krufningu. Ef það er ekki grunur
um neitt voveiflegt og læknir ákveð-
ur að skrifa dánarvottorð. Þá er það
mögulega skráð svona,“ segir Jón
Gunnlaugur. Önnur möguleg skýr-
ing, að hans sögn, sé að lögregla vilji
halda málum opnum með því að skrá
orsakir dauðsfalla sem óþekktar.
Önnur óvenjuleg skekkja í skrán-
ingu á dauðsföllum frá aldamótum
var á árunum í kringum hrun. Frá
aldamótum höfðu yfirleitt um fjögur
til fimm dauðsföll verið skráð þannig.
„Í fljótu bragði er ekkert
sem er augljós skýring á
þessu.“
Orsakir dauða óþekktar eða ótilgreindar
Árið 2007 voru 22 dauðsföll skráð í
þeim flokki, árið eftir 21 og árið 2009
voru þau 15. Síðan hefur fjöldi dauðs-
falla sem eru svo skráð snarminnk-
að og voru þau lengst af einungis eitt
eða tvö á ári. Fjöldi slíkra dauðsfalla
jókst þó aftur í fyrra þegar þau voru
tíu.
20
15
10
5
2014201220102008200620042002
Sýður upp úr í
skátahreyfingunni
Félagsmál Mikil óánægja er með-
al skáta eftir að Hermann Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Banda-
lags íslenskra skáta, var látinn
taka pokann sinn. Málið er sagt
tengjast ljótu eineltismáli sem
kom upp í skátahreyfingunni.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Guðmundur Pálsson, félagsmaður í
Skátahreyfingunni, segir uppsögn
Hermanns eiga rætur að rekja til
þess að bróðir Braga Björnssonar
skátahöfðingja var rekinn úr Skáta-
hreyfingunni eftir rannsókn á ein-
eltismáli sem framkvæmdastjórinn
bar hitann og þungan af. Brott-
reksturinn var síðar dreginn til
baka, samkvæmt heimildum Frétta-
tímans.
Í dag krefjast skátar þess á sínum
spjallþræði að skátahöfðingi segi af
sér. Meðal þeirra sem krefjast af-
sagnar eru félagsforingjar skátafé-
laga.
„Það er verið að reka fram-
kvæmdastjórann vegna skeleggr-
ar framgöngu í eineltismáli sem
tengist bróður skátahöfðingja,“
segir Guðmundur Pálsson, félags-
maður í skátahreyfingunni, sem
tjáði sig um málið á spjall-
þræði skáta. Í samtali við
Fréttatímann segir hann
að framkvæmdastjórinn
hafi borið ábyrgð á því að
fagmenn voru fengnir til
að skoða eineltismálið fyrir
hreyfinguna og það sé verið
að láta hann gjalda þess. „Þeir
komust að þeirri niðurstöðu
að þessi maður ætti
alls ekki að vinna
með börnum og unglingum. Það
er stöðug og vaxandi óánægja með
skátahöfðingjann og störf hans og
það verður að taka á þessu máli.
Það er ekki rétti tíminn til að reka
lykistarfsmann hreyfingarinnar
úr starfi fyrir upplognar og rangar
sakir núna þegar hreyfingin er að
taka á móti 6700 erlendum skát-
um næsta sumar vegna Heimsmóts
skáta.“
„Ég get ekki tjáð mig um
þessi starfslok, að svo
komnu máli,“ segir Her-
mann Sigurðsson en yf-
irlýsingu stjórnar seg-
ir að samkomulag sé um
starfslokin og staða fram-
kvæmdastjóra verði nú aug-
lýst. Bragi Björnsson skátahöfðingi
segist hinsvegar þekkja til þessar-
ar óánægju. Það sé hinsvegar frá-
leitt að þessi mál tengist á nokkurn
hátt. „Það mál er í réttum farvegi
innan hreyfingarinnar og sú stjórn
sem semur um starfslokin við fram-
kvæmdastjórinn er sama stjórnin
og tók á þessu meinta einelti, hann
var bara að framfylgja fyrirmælum
stjórnarinnar. Ég sé ekki hvernig
er hægt að leggja saman tvo og tvo
og fá út tíu. Það kom hinsvegar upp
trúnaðarbrestur á milli meirihluta
stjórnar og framkvæmdastjórans og
menn sáu ekki aðra leið færa en að
láta hann fara.“
Í hverju var sá trúnaðarbrestur
fólginn?
„Við viljum ekki tjá okkur um mál-
efni einstakra starfsmanna,“ segir
Bragi Björnsson.
Uppsögn Hermanns Sigurðssonar er sögð tengjast því að bróðir skátahöfðingjans
var sakaður um einelti.
Ég bara skil ekki hvernig
menn geta lagt saman 2 og
2 og fengið út 10, segir
Bragi Björnsson.
Stefnt að stofnun bataskóla
Geðheilbrigði Helgi Grímsson,
sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar, og Stefán Ei-
ríksson, sviðsstjóri velferðarsviðs,
leggja til að Reykjavíkurborg
komi á laggirnar svokölluðum
bataskóla. Markmiðið með slíkum
skóla er að veita þeim sem glíma
við geðraskanir úrræði til að
stunda nám til að læra að takast á
við vandamál sín.
Helgi og Stefán leggja til að Reykja-
víkurborg leggi til fjárframlag að
upphæð 15 milljónir króna á ári til
að stofna og reka slíkan skóla til
loka árs 2019. Í greinargerð Helga
og Stefáns er fullyrt að um 70 pró-
sent nemenda slíks skóla í Notting-
ham í Bretlandi hafi haldið áfram
námi eða ráðið sig í vinnu að loknu
námi.
Borgarfulltrúar hafa tekið vel í
þessa tillögu og herma heimildir
Fréttatímans að stefnt sé að sam-
þykkja tillöguna. Verkefnið verður
unnið í samstarfi við Geðhjálp.
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri samtakanna,
segir í samtali við Fréttatímann
að bataskóli geti mögulega sparað
bæði borg og ríki nokkuð fé vegna
velferðarþjónustu.
„Eitt af lykilhugtökum í batamið-
aðri nálgun er valdefling. Þannig
að fólk taki ábyrgð á eigin bataferli
sjálft og taki ákvörðun um hvað
geti hjálpað því að ná persónuleg-
um markmiðum sínum. Þau geta
verið ýmiskonar; að fá sér hluta-
starf, að koma yfir sig húsnæði,
lifa með röddunum, byggja upp
jákvæð samskipti eða eitthvað svo-
leiðis,“ segir Anna Gunnhildur. | hjf
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri Geðhjálpar,
segir að skólinn geti leitt til
sparnaðar fyrir ríkið.
Segja aðstöðu nemenda
óviðunandi
Menntamál Skólaráð Melaskóla
krefst þess að Reykjavíkurborg
leysi húsnæðisvanda skólans inn-
an tveggja ára í harðorðri ályktun
sem ráðið sendi meðal annars á
Dag B. Eggertsson borgarstjóra og
borgarfulltrúa í Reykjavík.
Skólaráðið fullyrðir að sú aðstaða
sem nemendum, kennurum og
öðru starfsfólki sé boðið upp á sé
algjörlega óviðunandi. Ráðið telur
að vandinn verði ekki leystur án
viðbyggingar. María Rán Guðjóns-
dóttir, sem situr í skólaráði, segir í
samtali við Fréttatímann að skólinn
sé algjörlega sprunginn.
„Þetta er stærsti grunnskólinn á
landinu, með um 630 börn, og það
er alltaf verið að taka sérgreinastof-
ur og annað undir bekkjarstofur af
því að það er verið að fjölga bekkj-
um. Það eru fimm bekkir, rúmlega
hundrað börn, sem byrja á skólan-
um á hverju hausti. Skólinn var ekki
byggður fyrir það. Til að gefa dæmi
þá er búið að breyta tölvustofum í
bekkjarstofu,“ segir María Rán. | hjf
Remi og Condis
– konfektið í kexinu