Fréttatíminn - 17.12.2016, Blaðsíða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016
Karlmaður sem kom hing-að í annarlegum tilgangi, og ætlaði að lifa sældarlífi á kostnað skattgreiðenda
í nokkra mánuði og njóta góðs af
heilbrigðiskerfinu, endaði með
því að bera eld að fötum sínum
í yfirfullu gistiskýli Útlendinga-
stofnunar með þeim afleiðing-
um að hann beið bana af sárum
sínum.
Þetta virðist vera lærdómur gam-
als dómsmálaráðherra af harm-
leiknum sem varð nýlega í Víði-
nesi. Að minnsta kosti sér hann
tilefni til að stinga niður penna
og hvetja stjórnvöld til að grípa
til harðari aðgerða gegn straumi
innflytjenda frá Makedóníu eða
Albaníu og þeirri „ásókn í skattfé
almennings sem þeim fylgir.“
Það er stutt síðan Alþingi sam-
þykkti að snúa mætti hælisleit-
endum frá þessum löndum við á
flugvellinum án þess að þeir fái
að bíða eftir því að mál þeirra séu
skoðuð af þar til bærum yfirvöld-
um. Þeir sem komu fyrir þann
tíma mega eiga von á því að verða
fluttir úr landi með skömmum
fyrirvara.
Björn Bjarnason, sem eitt sinn var
dómsmálaráðherra og þarafleið-
andi yfirmaður málaflokks-
ins, virðist draga þá ályktun að
straumur þessara „annarlegu“
flóttamanna hafi hafist fyrir
alvöru þegar alþingismenn gripu
fram fyrir hendur Útlendinga-
stofnunar“ og hnekktu „lögmætri
afgreiðslu stofnunarinnar með því
að veita Dega-fjölskyldunni frá Al-
baníu ríkisborgararétt í desember
2015,“ en hingað höfðu þau hrak-
ist með dauðveikan son sinn í von
um heilbrigðisþjónustu. Þjóðin
fann til þegar þessari barnafjöl-
skyldu og annarri í sömu sporum
hafði verið hent úr landi um miðja
nótt án tillits til afdrifa barnanna.
Nú má þessi gamli ráðherra hafa
þá skoðun fyrir mér að yfirvöld
eigi að loka dyrunum á alla þá
innflytjendur sem hrekjast um
álfuna sökum fátæktar og mis-
skiptingar sem hefur náð slíkum
hæðum að það ógnar öryggi og
heimsfriði meira en flest annað.
Sem móðir og manneskja geri ég
þó stórkostlegar athugasemdir
við að örvæntingarfull tilraun fá-
tækra foreldra til að bjarga dauð-
veiku barni sínu frá því að veslast
upp af sjúkdómi í ónýtu heilbrigð-
iskerfi sé sagt vera „annarlegur
tilgangur“. Ég held að fólk sem
neytir ekki allra bragða til að
bjarga börnunum sínum við slík-
ar aðstæður sé frekar „annarlegt
fólk“.
Útlendingastofnun var í lófa
lagið á sínum tíma að veita þessu
fólki dvalarleyfi af mannúðará-
stæðum og taka þar með tillit til
aðstæðna barnanna. Foreldrarn-
ir bæði gátu og vildu vinna fyrir
sér eins og þúsundir fólks sem
hingað flytur árlega fyrir tilstilli
fyrirtækja sem vantar vinnuafl.
Í stað þess var ákveðið að flytja
Dega fjölskylduna úr landi að
næturlagi og senda þar með veikt
barn þeirra út í óvissuna. Þessi
fjölskylda hefði því ekki þurft að
taka fókusinn af hælisleitendum
sem hingað leita frá stríðshrjáð-
um svæðum eftir pólitísku hæli.
Enda heldur þessi skýring ekki
vatni, það er daglegt brauð að
senda fólk úr landi á grundvelli
Dyflinnarreglugerðarinnar sem
svo sannarlega er að flýja stríð og
ofsóknir. Það er ekki vegna þess
að annað fólk vinni hér og búi af
mannúðarástæðum.
Mér finnst þessar áhyggjur af
skattfé almennings annarlegar og
með því að setja þær fram í þessu
samhengi, er verið að reyna að
særa fram smásálina í þjóðinni
og læða að þeirri hugsun að allt
fólk sem þurfi á okkur að halda
sé að ræna Íslendinga og koma í
veg fyrir að við getum haldið uppi
samfélagi.
Slíkar hugmyndir eru, ásamt mis-
skiptingunni, orðnar raunveru-
leg ógn við friðinn og lífskjörin
í Evrópu. Fólk sem telur okkur
trú um að við höfum ekki efni á
mannúð og okkur stafi hætta af
annarlegu fólki, sem sveimi yfir
og allt um kring eins og engi-
sprettuplága, albúið að éta venju-
legt fólk út á guð og gaddinn.
Þeim fjölgar stjórnmála-
mönnunum sem eru tilbúnir til að
klappa þennan stein og uppskera
lófatak á samfélagsmiðlum, oft frá
fólki sem telur sig hafa orðið út-
undan í samfélaginu.
Það er einhver ódýrasta og
ómerkilegasta pólitík sem til er.
Og ef eitthvað er annarlegt, þá er
það þegar hún kemur frá skjól-
stæðingi íslenskra skattgreiðenda
til áratuga.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
ANNARLEG
PÓLITÍK
Á 200 ára afmæli Framsóknarflokksins
þakkaði Sigurður Ingi forsætisráðherra
(2016-) íslenskum vinstrimönnum kærlega
fyrir langan og farsælan valdatíma sinn.
Faxafeni 14 l Sími 5516646
Opið frá kl. 10-18 virka daga
11-17 laugardag
13-16 sunnudag
2 0 % A F S L Á T T U R A F F A T N A Ð I
1 5 . - 1 8 . D E S E M B E R
Eitt kort
35 vötn
6.900 kr
Frelsi til að veiða!
00000
JÓLAGJÖF VEIÐIMAN
NSINS!
Frábær jólagjöf fyrir
veiðimenn og veiðikonu
r.
www.veidikortid.is
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
5
11
07
2