Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 17.12.2016, Blaðsíða 72

Fréttatíminn - 17.12.2016, Blaðsíða 72
Y lfa Helgadóttir hefur stað- ið í ströngu á aðventunni enda veitingastaðurinn Kopar, sem hún á og rek- ur, með vinsælustu stöð- um borgarinnar. „Það hefur gengið rosalega vel. Veitingastaðir geta farið tvær leið- ir á aðventunni, jólahlaðborð eða jólamatseðil. Við höfum alltaf farið í jólamatseðilinn og reynum að út- búa seðil sem höfðar til allra. Við reynum að vera skilningsrík á gæj- ann sem vill halda í hefðirnar þó að allir aðrir vilji prófa eitthvað nýtt og erum með purusteikina og lax- inn meðal nýstárlegri rétta,“ seg- ir Ylfa en jólamatseðllinn er aldrei eins milli ára. Ylfa segist aldrei hafa viljað hafa opið á aðfangadag og jóladag og í ár verður ekki breyting þar á. „Ég er kannski svolítið íhaldssöm hvað þetta varðar en ég gæti ekki hugs- að mér að vinna á aðfangadag og jóladag svo ég ætla ekki að biðja mitt fólk að gera það.“ Hins vegar verður hægt að koma í mat á gamlárskvöld og þá mynd- ast alltaf verulega notaleg stemn- ing. Þrátt fyrir að flestir séu er- lendir ferðamenn slæðast alltaf inn Íslendingar líka sem kjósa að njóta þess að láta elda fyrir sig um ára- mót. „Við höfum verið með opið á gamlárskvöld frá því við opnuðum og það hefur alltaf verið mjög gam- an. Stundum hafa fjölskyldur starfs- manna komið og borðað og þetta er bara mjög notalegt.“ Gott og hefðbundið En hvað skyldi kokkurinn borða heima um jólin? Hjá fjölskyldu Ylfu er alltaf borðaður hamborgarhrygg- ur í aðalrétt en forrétturinn er breytilegur milli ára – eftir að Ylfa tók við stjórninni. „Þegar ég fór að læra kokkinn fór ég að pæla í því hvað við borðuðum á jólunum en við vorum yfirleitt með aspassúpu í forrétt – aspassúpu úr pakka, kannski með smá rjóma. En þetta er kannski dálítið undarlegur for- réttur á heilagasta deginum. Ég hef því fengið að grúska dálítið í hon- um gegnum tíðina en er aldrei með það sama. En ég held að ég ætli ekki að fikta í eftirréttinum núna en við erum með sjerrítrifle með ís.“ A ð s p u r ð h v o r t h a m - borgarhryggurinn sé með hefð- bundnu sniði á heimilinu segir Ylfa svo vera og ekki góð reynsla af því að fikta í. „Ég borða ekki svona mat nema einu sinni á ári, mig langar virkilega í þennan mat þennan eina dag. Einu sinni sá ég uppskrift í Nóatúnsbæklingi að sveskjugljáa og ætlaði að vera rosalega flott á því og prófa það en það gekk ekki. Síðan hef ég bara látið hann vera. Þetta er náttúrulega í grunninn mjög ein- föld matargerð. Flestir borða bara Ora með alla leið en það flóknasta er kannski að brúna kartöflurnar og gera sósuna. Ég myndi ekki vilja hafa þetta öðruvísi.“ Heldur veganboð í ár Ylfa reynir að halda eitt boð á að- ventunni og í fyrra bauð hún fjöl- skyldunni í veglegt boð rétt fyr- ir jól. „Það er alltaf svolítið erfitt að bóka sig á þessum tíma. Í fyrra fluttum við rétt fyrir jól og héldum boð fyrir nánustu fjölskyldu sem var að koma í fyrsta sinn til okk- ar eftir að við fluttum. Ég vildi að allir sætu við borð og við myndum vera lengi að borða og njóta sam- verunnar. Við vorum með kaldan hamborgarhrygg og kalt hangi- kjöt en ekkert heitt meðlæti. Svo vorum við með súpu, baunasalat, flatkökur og graflax. Þetta var ótrú- lega skemmtilegt og ég ætla að gera þetta líka núna rétt fyrir jól,“ segir Ylfa sem ætlar þó að hafa boðið með töluvert ólíkara sniði í ár. „Ég ætla að vera með veganþema í ár, prófa að gera súpu og steikur og þessi salöt með rauðbeðum sem eru svo jólaleg. Það er uppsveifla í þessu í samfélaginu og maður hrífst með,“ segir Ylfa sem óttast ekki viðbrögð fjölskyldunnar en ætlar þó kannski að lauma einum bakka á kantinn með hangikjöti og graflaxi – fyrir afa. „Hann er samt mjög opinn fyrir öllu, myndi kannski spyrja „finnst mér þetta gott“ og ég segi bara já og hann treystir því!“ Ylfa er langt því frá ókunn því að prófa nýjan mat og fjölskyldan öllu vön. Þegar hún byrjaði að fá áhuga á matreiðslu eldaði hún svo mikið að hún bauð fjölskyldunni gjarnan í mat. „Mamma sagði alltaf „þú get- ur ekki verið að elda eitthvað sem þú hefur ekki eldað áður og vera að fá fólk í mat – hvað ef það heppnast ekki?„ Ég sagði alltaf bara: „Hvað ertu að segja, auðvitað heppnast það.“ – Ég skildi ekki pælinguna um að þetta myndi ekki heppnast! Núna eru allir komnir yfir þetta og treysta mér algerlega.“ Ylfa gefur okkur hér uppskrift að eftirrétti sem þarf að nostra dálítið við en er algerlega þess virði. Jólakúlan á Kopar við Gömlu höfnina Súkkulaðimúskúla 3 matarlímsblöð 500 g dökkt súkkulaði 500 g hrásykur – mulin í duft 500 g smjör 300 g eggjarauður 500 g rjómi 1l rjómi Leggið matarlímið í bleyti. Bræðið súkkulaði sér og geymið. Hitið sykur og smjör upp í ca. 70°C. Blandið rjóma út í, þannig úr verði karamella. Takið af hita og hrærið eggjarauð- um út í. Blandið matarlími saman við og blandið svo súkkulað- inu varlega saman við. Leyfið að standa þar til blandan kólnar að- eins. Þeytið rjóma meðan bland- an kólnar. Blandið öllu varlega saman. Sprautið í kúluform eða gerið litla plastfilmu búta, spraut- ið u.þ.b. ½ dl á bútinn og bindið upp í kúlu. Frystið. Rifsberjagel 1 kg rifsberjapure 14 g agar Setjið hvort tveggja í pott og hitið að suðu. Hellið leginum í skál og látið stífna. Tekur u.þ.b. 15 mín- útur í kæli. Lögurinn verður að hlaupi og síðan settur í blandara og verður að hlaupi. Takið kúluna úr frysti og setjið í skál eða á disk og skreytið með berjum og súkkulaðisósu ef vill áður en borið er fram. Heldur vegan aðventuboð Ylfa á Kopar hræðist ekki ótroðnar slóðir. Ylfa Helgadóttir ætlar að bjóða fjöl- skyldunni í vegan- veislu fyrir jólin. Mynd | Hari „Ég ætla að vera með veganþema í ár, prófa að gera súpu og steikur og þessi salöt með rauð- beðum sem eru svo jólaleg. Það er uppsveifla í þessu í samfélaginu og mað- ur hrífst með.“ 4 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016MATARTÍMINN Gómgleðjandi Gjafaöskjur - sérsniðnar eða staðlaðar að hætti hússins Grandagarður 35 · 101 Rvk · 551 8400 · www.burid.is Gefðu upplifun. Gjafabréf í ostaskóla Búrsins er tilvalinn í skóin. Ostajól Hillur svigna undan gómgleðjandi ostum og girnilegum kræsingum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.