Fréttatíminn - 17.12.2016, Side 72
Y
lfa Helgadóttir hefur stað-
ið í ströngu á aðventunni
enda veitingastaðurinn
Kopar, sem hún á og rek-
ur, með vinsælustu stöð-
um borgarinnar.
„Það hefur gengið rosalega vel.
Veitingastaðir geta farið tvær leið-
ir á aðventunni, jólahlaðborð eða
jólamatseðil. Við höfum alltaf farið
í jólamatseðilinn og reynum að út-
búa seðil sem höfðar til allra. Við
reynum að vera skilningsrík á gæj-
ann sem vill halda í hefðirnar þó að
allir aðrir vilji prófa eitthvað nýtt
og erum með purusteikina og lax-
inn meðal nýstárlegri rétta,“ seg-
ir Ylfa en jólamatseðllinn er aldrei
eins milli ára.
Ylfa segist aldrei hafa viljað hafa
opið á aðfangadag og jóladag og í
ár verður ekki breyting þar á. „Ég
er kannski svolítið íhaldssöm hvað
þetta varðar en ég gæti ekki hugs-
að mér að vinna á aðfangadag og
jóladag svo ég ætla ekki að biðja
mitt fólk að gera það.“
Hins vegar verður hægt að koma
í mat á gamlárskvöld og þá mynd-
ast alltaf verulega notaleg stemn-
ing. Þrátt fyrir að flestir séu er-
lendir ferðamenn slæðast alltaf inn
Íslendingar líka sem kjósa að njóta
þess að láta elda fyrir sig um ára-
mót. „Við höfum verið með opið á
gamlárskvöld frá því við opnuðum
og það hefur alltaf verið mjög gam-
an. Stundum hafa fjölskyldur starfs-
manna komið og borðað og þetta er
bara mjög notalegt.“
Gott og hefðbundið
En hvað skyldi kokkurinn borða
heima um jólin? Hjá fjölskyldu Ylfu
er alltaf borðaður hamborgarhrygg-
ur í aðalrétt en forrétturinn er
breytilegur milli ára – eftir að Ylfa
tók við stjórninni. „Þegar ég fór að
læra kokkinn fór ég að pæla í því
hvað við borðuðum á jólunum en
við vorum yfirleitt með aspassúpu
í forrétt – aspassúpu úr pakka,
kannski með smá rjóma. En þetta
er kannski dálítið undarlegur for-
réttur á heilagasta deginum. Ég hef
því fengið að grúska dálítið í hon-
um gegnum tíðina en er aldrei með
það sama. En ég held að ég ætli ekki
að fikta í eftirréttinum núna en við
erum með sjerrítrifle með ís.“
A ð s p u r ð h v o r t h a m -
borgarhryggurinn sé með hefð-
bundnu sniði á heimilinu segir Ylfa
svo vera og ekki góð reynsla af því
að fikta í. „Ég borða ekki svona mat
nema einu sinni á ári, mig langar
virkilega í þennan mat þennan
eina dag. Einu sinni sá ég uppskrift
í Nóatúnsbæklingi að sveskjugljáa
og ætlaði að vera rosalega flott á því
og prófa það en það gekk ekki. Síðan
hef ég bara látið hann vera. Þetta er
náttúrulega í grunninn mjög ein-
föld matargerð. Flestir borða bara
Ora með alla leið en það flóknasta
er kannski að brúna kartöflurnar
og gera sósuna. Ég myndi ekki vilja
hafa þetta öðruvísi.“
Heldur veganboð í ár
Ylfa reynir að halda eitt boð á að-
ventunni og í fyrra bauð hún fjöl-
skyldunni í veglegt boð rétt fyr-
ir jól. „Það er alltaf svolítið erfitt
að bóka sig á þessum tíma. Í fyrra
fluttum við rétt fyrir jól og héldum
boð fyrir nánustu fjölskyldu sem
var að koma í fyrsta sinn til okk-
ar eftir að við fluttum. Ég vildi að
allir sætu við borð og við myndum
vera lengi að borða og njóta sam-
verunnar. Við vorum með kaldan
hamborgarhrygg og kalt hangi-
kjöt en ekkert heitt meðlæti. Svo
vorum við með súpu, baunasalat,
flatkökur og graflax. Þetta var ótrú-
lega skemmtilegt og ég ætla að gera
þetta líka núna rétt fyrir jól,“ segir
Ylfa sem ætlar þó að hafa boðið með
töluvert ólíkara sniði í ár. „Ég ætla
að vera með veganþema í ár, prófa
að gera súpu og steikur og þessi
salöt með rauðbeðum sem eru svo
jólaleg. Það er uppsveifla í þessu í
samfélaginu og maður hrífst með,“
segir Ylfa sem óttast ekki viðbrögð
fjölskyldunnar en ætlar þó kannski
að lauma einum bakka á kantinn
með hangikjöti og graflaxi – fyrir
afa. „Hann er samt mjög opinn fyrir
öllu, myndi kannski spyrja „finnst
mér þetta gott“ og ég segi bara já og
hann treystir því!“
Ylfa er langt því frá ókunn því að
prófa nýjan mat og fjölskyldan öllu
vön. Þegar hún byrjaði að fá áhuga
á matreiðslu eldaði hún svo mikið
að hún bauð fjölskyldunni gjarnan
í mat. „Mamma sagði alltaf „þú get-
ur ekki verið að elda eitthvað sem
þú hefur ekki eldað áður og vera að
fá fólk í mat – hvað ef það heppnast
ekki?„ Ég sagði alltaf bara: „Hvað
ertu að segja, auðvitað heppnast
það.“ – Ég skildi ekki pælinguna um
að þetta myndi ekki heppnast! Núna
eru allir komnir yfir þetta og treysta
mér algerlega.“
Ylfa gefur okkur hér uppskrift að
eftirrétti sem þarf að nostra dálítið
við en er algerlega þess virði.
Jólakúlan á Kopar við
Gömlu höfnina
Súkkulaðimúskúla
3 matarlímsblöð
500 g dökkt súkkulaði
500 g hrásykur – mulin í duft
500 g smjör
300 g eggjarauður
500 g rjómi
1l rjómi
Leggið matarlímið í bleyti. Bræðið
súkkulaði sér og geymið. Hitið
sykur og smjör upp í ca. 70°C.
Blandið rjóma út í, þannig úr verði
karamella.
Takið af hita og hrærið eggjarauð-
um út í. Blandið matarlími saman
við og blandið svo súkkulað-
inu varlega saman við. Leyfið að
standa þar til blandan kólnar að-
eins. Þeytið rjóma meðan bland-
an kólnar. Blandið öllu varlega
saman. Sprautið í kúluform eða
gerið litla plastfilmu búta, spraut-
ið u.þ.b. ½ dl á bútinn og bindið
upp í kúlu. Frystið.
Rifsberjagel
1 kg rifsberjapure
14 g agar
Setjið hvort tveggja í pott og hitið
að suðu. Hellið leginum í skál og
látið stífna. Tekur u.þ.b. 15 mín-
útur í kæli. Lögurinn verður að
hlaupi og síðan settur í blandara
og verður að hlaupi.
Takið kúluna úr frysti og setjið í
skál eða á disk og skreytið með
berjum og súkkulaðisósu ef vill
áður en borið er fram.
Heldur vegan
aðventuboð
Ylfa á Kopar hræðist ekki ótroðnar slóðir.
Ylfa Helgadóttir
ætlar að bjóða fjöl-
skyldunni í vegan-
veislu fyrir jólin.
Mynd | Hari
„Ég ætla að
vera með
veganþema í ár,
prófa að gera súpu
og steikur og þessi
salöt með rauð-
beðum sem eru
svo jólaleg. Það er
uppsveifla í þessu í
samfélaginu og mað-
ur hrífst með.“
4 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016MATARTÍMINN
Gómgleðjandi
Gjafaöskjur
- sérsniðnar eða staðlaðar
að hætti hússins
Grandagarður 35 · 101 Rvk · 551 8400 · www.burid.is
Gefðu upplifun.
Gjafabréf í ostaskóla
Búrsins er tilvalinn
í skóin.
Ostajól
Hillur svigna undan
gómgleðjandi ostum
og girnilegum
kræsingum.