Fréttatíminn - 17.12.2016, Blaðsíða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016
þegar hún talaði við menntamála-
ráðuneytið á Íslandi fékk hún þær
upplýsingar að ráðuneytið hefði lent
áður í svipuðum vandræðum með
þennan sama skóla sem gæfi sig út
fyrir að vera eitthvað annað en hann
stæði fyrir.
„Við erum þrjú í skólanum sem
erum hætt í náminu og aðrir nem-
endur eru að bíða og sjá hvort eitt-
hvað breytist. Ég fékk hinsvegar
gjöldin endurgreidd núna í vik-
unni og vinkona mín frá Úkraínu
fær líka endurgreitt en það fylgdi
endurgreiðslunni bréf um að það
væru strangar reglur hjá skólanum
að endurgreiða aldrei goldin skóla-
gjöld.“
Olíver og kókflaska
Þegar nemendurnir voru orðn-
ir verulega óánægðir og ósáttir og
kvörtuðu við deildarstjórann sí-
fulla og kröfðust þess að fá að heyra
í nemendum frá fyrra ári um gang
mála þá hurfu allar upplýsingar um
fortíðar nemendur skólans „Deildar-
stjórinn tjáði okkur að honum
fyndist þetta allt mjög leiðinlegt og
spurði okkur nemendurna, hvaða
kennara hann ætti að reka. Sem var
skondið af því hann sjálfur var aðal
vandamálið.“ segir Gréta. Það end-
aði samt með því að hann rak Oliver,
kennarann sem kenndi hópnum að
taka mynd af kókflösku. Oliver sagð-
ist að jafnaði nota 10 klukkustundir í
eina myndatöku af kókflösku. Hann
snérist í kringum viðfangsefni sitt,
og fólk fylgdist með honum gera til-
raunir með lýsingu á flöskunni þang-
að til að einn af öðrum missti þolin-
mæðina. En það kom berlega í ljós
að hann kunni ekki til verka.
„Rétt áður en téður Oliver var
rekinn sendi hann okkur verkefni
til þess að útfæra, sem var meira
en flestir aðrir kennarar við skól-
ann gerðu. Það leið korter þang-
að til að við fengum póst frá skrif-
stofunni sem sagði að við skyldum
ekki gera verkefnið frá Oliver af
því hann væri hættur sökum anna.
Þessi skóli er algjört skrípó,“ seg-
ir Gréta og hlær. „Ég fékk til dæm-
is gagnrýni á myndirnar mínar frá
einum kennaranum að þær væru
ekki nógu persónulegar. Kennarinn
opnaði eina af myndunum mínum í
photoshop (myndvinnsluforritinu)
og lagaði hana til og sagði svo: „Jæja
gjörðu svo vel, nú er myndin meira
svona „þú“.“
Með hnút í maganum
Gréta flutti til Hollands og lærði ljós-
myndum í framhaldi af menntaskól-
anum á sínum tíma. Eftir námið í
Hollandi flutti hún heim í harkið
með drenginn Gauk sem gengur
undir listamannsnafninu GKR. Hún
hefur kennt ljósmyndun í tuttugu
ár en hefur jafnframt haft ofan af
sér við að ljósmynda giftingar og
fermingar. Árið 2011 tók hún einn af
sínum viðsnúningum og lauk námi
við Leiðsögumannaskólann og hef-
ur síðan verið fjallaleiðsögumaður
á Íslandi og Grænlandi meðfram
kennslunni. „Það kom nú aðallega
út af því að ég vildi halda við tungu-
málakunnáttu minni segir Gréta
Gréta hefur reynslu af fjallgöngum á hæstu tinda. Hún gekk á Kilimanjaro árið 2008, sem er í 5.800 metra hæð.
Lausn Grétu á hinu umrædda blóma-
verkefni. En mynd hennar endaði þó
ekki á heimasíðu deildarstjórans.
Eftir að Gréta hætti í skólanum
hefur hún haft meiri tíma til þess
að ganga um og ljósmynda það
sem fyrir augum ber. En Gréta seg-
ir Madríd vera stórkostlega borg.
Fleiri myndir Grétu
frá Madríd má sjá
á frettatiminn.is
„en ég tók eftir því að ég talaði ekki
erlend tungumál lengur nema á
hálendinu.“ Gréta talar þýsku, hol-
lensku, norsku, sænsku og ensku.
„En svo er alltaf gott að takast á við
eitthvað nýtt. Fá þennan hnút í mag-
ann til þess að geta slakað á inn á
milli.“ segir Gréta.
Gangandi ljósmyndari
Gréta er ekki dottin af baki með
námið og er hún með aðra skóla í
huga. En hún hafði hugsað sér að
vinna ljósmyndabók með mynd-
unum af Dúnu, ömmu sinni, í
mastersnáminu. En Gréta hélt fyrir
nokkrum árum sýningu á Laugaveg-
inum á dásamlega fallegum mynd-
um af ömmu sinni sem var orðin
mjög öldruð og lasburða þegar
myndirnar voru teknar. „On the
road in Iceland“ er hinsvegar nýút-
komin ljósmyndabók Grétu og fæst
í næstu bókabúð og hefur að geyma
glæsilegar landslagsmyndir Grétu.
„Þegar ég hætti í skólanum þá
poppaði upp auglýsing um frekar
ódýra ferð á Everest og ég tók
ákvörðun um að fara á tindinn í ljósi
þess að tíminn væri réttur, jólafrí og
ekki get ég farið heim af því íbúð-
in er í útleigu. En engar áhyggjur,
segir Gréta, Dúna fer heim í jólin til
pabba síns og þau fá meira að segja
að vera í friði“
Gréta hefur reynslu af fjallgöng-
um á hæstu tinda. Hún gekk á Kil-
imanjaro 2008, sem er í 5.800 metra
hæð. „Ef þú hefur farið í þessa hæð
áður og ert í góðu líkamlegu ásig-
komulagi þá er ekkert því til fyrir-
stöðu að fara á Everest í 5.500 metra
hæð,“ segir Gréta sem er 68 mód-
el og hljóp Laugaveginn þegar hún
var 45 ára en er ekki búin að ákveða
hvað hún gerir þegar hún verður
fimmtug. „Ég er að velta fyrir mér
að hlaupa Laugaveginn með gópró
myndavél á hausnum og „gæda“ á
fimm tungumálum.“ Gréta leggur
af stað eftir nokkra daga á Everest
en kemur við í Abu Dhabi og hittir
gamlan kærasta sinn, sem er safn-
stjóri í borginni en var að eignast
sitt fyrsta barn sem Gréta verður að
hitta. „Vinur minn heitir Walter og
er ljósmyndari en við vorum saman
í námi í Hollandi á sínum tíma, hann
kom með mér heim eftir námið en
svo rak ég hann aftur til Hollands,“
segir Gréta og brosir sínu breiðasta.
Madríd
„Hvað gerist svo þegar ég kem til
baka frá Everest á eftir að koma í
ljós en ég hef augastað á skóla í New
York sem ég gæti stundað í fjarnámi.
En við mæðgur munum samt pott-
þétt halda áfram að búa hérna í Ma-
dríd því okkur líður svo vel hérna.
Ég er svo fegin að vera laus við kapp-
hlaupið heima. Ég get loksins sest
niður og skoðað mín eigin persónu-
legu ljósmyndaverkefni. Ég finn svo
sterkt hvað lífið er miklu afslapp-
aðra hérna en á Íslandi. Allir sem
ég hitti hérna á meginlandinu eru
hugfangnir af Íslandi og halda að þar
sé einhver paradís á jörðu en stress-
ið og samkeppnin er mikil á Íslandi
og gott að fá hvíld frá því um skeið,
en ég sakna þess að geta ekki hlaup-
ið og gengið um íslenska náttúru,“
segir Gréta sem er á leiðinni í Retiro
Park að undirbúa sig fyrir Everest.
Snappið hjá Grétu er gretasgu-
djons en instagramið er gretagu-
djonsdottir þar sem hægt verður
að fylgjast með ferðalaginu henn-
ar á Everest í gegnum Amman og
Abu Dhabi. Gréta leggur af stað um
helgina.
7.499 kr.
BRISTOL f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a rs 2 0 1 7
7.499 kr.
EDINBORG f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
5.999 kr.
STOKKHÓLMUR f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
7.999 kr.
FRANKFURT f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - m a í 2 0 1 7
7.999 kr.
BERLÍN f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - m a í 2 0 1 7
7.999 kr.
AMSTERDAM f rá
T í m a b i l : j a n ú a r 2 0 1 7
WOW
takk!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.