Fréttatíminn - 17.12.2016, Blaðsíða 62
okkur. Það söfnuðust eitthvað í
kringum 1.300 þúsund krónur
sem renna óskiptar til Mæðra-
styrksnefndar,“ segir Theódór.
Nafnið á söfnuninni vísar til
vinsællar þjónustu þar sem fólk
fær hráefni til að elda gómsæt-
an mat sjálft, en í Eldum Réttó
var gengið lengra og lítið þurfti
að gera annað en að hita mat-
inn upp. Og maturinn var ekki af
verri endanum; hægt var að velja
um unaðslegan lambapottrétt frá
Túnis, gómsætan fiskrétt með
alsírsku ívafi og geggjaða Mexíkó-
súpu. Með þessu var gómsætt
meðlæti. Í öllum réttunum var
leynileg kryddblanda sem Ouzna,
samstarfskona Theódórs í eldhús-
inu, lagði til.
„Það fór mest af lambaréttin-
um. Hann seldist alveg upp og ég
þurfti að gera annan pott. Ætli
það hafi ekki farið um 350 kíló af
lambagúllasi í hann,“ segir Theó-
dór sem leitaði til birgja sinna um
hráefni. Þeir tóku allir vel í bón
hans og gáfu hráefnið. Öll vinna
Theódórs og samstarfsmanna var
gefins þannig að innkoman renn-
ur beint til Mæðrastyrksnefndar.
„Krakkarnir hjálpuðu mér að
elda og settu matinn í bakka. Svo
voru þau með mér í afgreiðslunni
og höfðu rosa gaman af þessu,“
segir matráðurinn.
Hann segist aðspurður ánægður
með hvernig til tókst og er alveg
til í að endurtaka leikinn síðar.
„Svo gæti vel verið að þetta verði
gert í fleiri skólum. Það mættu
alla vega margir skólastjórar og
fylgdust með. En það er kannski
ekki sniðugt að gera þetta í mörg-
um skólum á sama tíma. Birgjarn-
ir yrðu varla ánægðir með það!“
fjörið. 2 | helgin. LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Bókaormurinn iðar þessa dagana
Hvaða bækur langar þig mest að lesa?
„Í fæðingarorlofinu hefur gef-
ist lítill tími til lesturs svo bóka-
ormurinn í mér iðar þessa dagana.
Í jólabókaflóðinu í ár leynist margt
spennandi og mig langar t.d. að
lesa Ör Auðar Övu, Sofðu ást mín
eftir Andra Snæ og Eyland Sigríð-
ar Hagalín. Saga fjalldalabóndans
Heiðu er örugglega áhugaverð og
Hestvík Gerðar Kristnýjar kallar
á mig þar sem „afasveitin“ mín er
rétt hjá Hestvíkinni og ég þekki því
söguslóðirnar vel. Mér finnst líka
gaman að lesa vandaðar barna- og
unglingabækur og líst t.d. vel á
Doddi: Bók sannleikans og Pabbi
prófessor.“
Hrund Þórsdóttir, aðstoðarritstjóri
hjá 365 og bókaormur í fæðingar-
orlofi.
Söfnuðu
rúmri milljón
í Eldum Réttó
Theódór Gunnar Smith matráður og nokkrir
nemendur í Réttarholtsskóla seldu foreldrum
barna í skólanum girnilegan mat og ágóðinn
rennur til Mæðrastyrksnefndar.
Krakkarnir í Réttarholtsskóla sem tóku þátt í Eldum Réttó með Theódór matráði voru ánægðir með verkefnið. Mynd | Rut
Theódór Gunnar Smith skipulagði Eldum
Réttó og eldaði matinn ásamt Ouznu,
samstarfskonu sinni. Mynd | Rut
Maturinn þótti afar vel heppnaður og alls
söfnuðust um 1,3 milljónir króna. Mynd | Rut
Þetta gekk bara mjög vel, það rauk allt út á þremur tímum,“ seg-ir Theódór Gunnar Smith, matráður í Rétt-
arholtsskóla.
Theódór stóð fyrir söfnunar-
átaki í skólanum á fimmtudag sem
kallaðist Eldum Réttó. Foreldr-
um og öðrum aðstandendum í
Réttó bauðst að kaupa tilbúna
kvöldverði sem Theódór og
nokkrir nemendur í skólanum
útbjuggu.
„Ég taldi nú ekki gestina en
þetta voru sjálfsagt yfir 200
manns sem komu og keyptu af
Omaggio vasarnir frá Kähler hafa
verið eitt vinsælasta stofustáss
Íslendinga síðustu ár. Þeir hafa
komið í ýmsum litum og þú ert
varla maður með mönnum nema
eiga einn Omaggio. Vinsældir
vasanna hafa verið slíkar að fólki
hefur boðist að skrá sig á biðlista
í þeirri von að eignast vasa þegar
hann loksins kemur í búðir. En nú
er nýjasta flaggskipið í Omaggio
línunni mætt til Íslands. Um er
að ræða glervasa í þremur litum
sem eru töluvert frábrugðnir fyrri
vörum í línunni, en einstaklega
fallegir engu að síður og tilvaldir í
jólapakkann. Vasarnir fást meðal
annars í Epal og Casa.
Fallegir
Omaggio
glervasar
Gefðu sannar jólagjafir
Auðvitað viljum við flest gefa þeim
sem standa okkur næst fallegar gjaf-
ir en úti í heimi eru sveltandi börn á
flótta sem gleðjast eflaust ekki mikið
um hátíðirnar. Þú getur slegið tvær
flugur í einu höggi, hjálpað þeim
sem þurfa á því að halda og gefið
vinum og ættingjum fallegar gjafir
með því að kaupa Sanna gjöf hjá
Unicef. Slóðin er sannargjafir.is.
Boxar í prófatörn
Samfélagsmiðladrottningin og
fatahönnuðurinn Manuela Ósk
Harðardóttir flutti til Los Angeles í
haust þar sem hún leggur stund á
framhaldsnám í „social media“ við
FIDM (Fashion Institute of Design
and Merchandising), Sem stendur
er hún á kafi í lokaprófum. Hún
hefur reyndar aðeins litið upp úr
bókunum í vikunni til að fara á
boxæfingar, en í gegnum tíðina
hefur hún oft reynt að taka sig á
og fara í hina ýmsu líkamsrækt.
Kannski er hún búin að finna sína
hillu í boxinu. Það er allavega ljóst
að hún tekur vel á því og er öll
marin og blá eftir að hafa varist
höggum frá leiðbeinanda sínum.
Jólastemning
í Hafnarfirði
Nú er runnin upp síðasta helgi í að-
ventu og því tilvalið að drekka í sig
jólastemningu með fjölskyldunni
í Jólaþorpinu í Hafna rfirði sem er
opið frá 12 til 17. Metaðsókn hefur
verið í Jólaþorpið þetta árið, bæði
í fjölda gesta og söluaðila, en það
ættu allir að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi, bæði til að kaupa
og njóta. Syngjandi glaðir sölu-
menn bjóða fjölbreytta gjafavöru,
hönnun og íslenskt handverk. Þá
er boðið upp á hestaferðir um
miðbæ Hafnarfjarðar og hægt er
að fara í ókeypis fjölskyldumynda-
töku í boði Desæna setursins í
verslunarmiðstöðinni Firði. Einnig
er hægt að kíkja við á Popup
markað Íshúss Hafnarfjarðar og
listsýningu í Hafnarborg. Eitthvað
fyrir alla í miðbæ Hafnarfjarðar
um helgina og um að gera að njóta
síðustu helgarinnar í aðventu í
skemmtilegu umhverfi.
NÝ SENDING
MEÐ KJÓLUM
STÆRÐIR 14-26
KJÓLL * STÆRÐIR 14-20VERÐ 7.990 KR
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is