Fréttatíminn - 17.12.2016, Side 42
42 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016
son. „Ný lönd og ný vitneskja
knúðu evrópska menntamenn til
að líta í eigin barm. Hefðir, upp-
bygging valdsins og aðrir þættir
samfélagsins voru skoðaðir með
nýjum og gagnrýnum hætti.“
Lýsingar á Útópíu og lífinu þar
eru nákvæmar og margt forvitni-
legt í þeim. Stærð eyjunnar er gefin
upp og á henni er að finna 54 borgir
sem hver skiptist í fjóra parta. Sex
þúsund heimili eru í hverri borg
en þar búa tíu til sextán fullorðnir
einstaklingar.
Engar einkaeignir er að finna á
Útópíu og heimili eru ólæst. Gæð-
um er deilt út til fólks úr sameig-
inlegum vöruhúsum. Landbún-
aður er aðalstarf íbúanna en auk
þess lærir hver og einn einhverja
ákveðna iðngrein. Allir vinna og
ganga til þeirra verka í áþekkum
fatnaði. Velferðarkerfi er til stað-
ar með ókeypis sjúkrahúsum og
líknarmorð er leyft með samþykki
yfirvalda.
Margt í lýsingunni tekur líka að
af heimsmynd og hefðum ritunar-
tímans, til dæmis er þrælahald á
eyjunni og hvert heimili er með tvo
þræla sem ýmist koma frá nærliggj-
andi löndum eða hafa gerst uppvís-
ir um glæp.
„Samfélagssýnin sem Tómas
More setur fram í Útópíu rímar að
miklu leyti við hugmyndir manna
á þeim tíma um frumkristið sam-
félag,“ segir Viðar Pálsson. „Mið-
stýring Rómarkirkjunnar var sums
staðar litin hornauga og stéttskipt-
ing í Evrópu líka. Margir veltu því
fyrir sér hvort meinlætalíf væri
ekki í betri samhljómi við frum-
kristnina sem menn vildu endur-
lífga í hreinni mynd. Þetta vakir
fyrir Tómasi með því að fella nið-
ur stéttskiptingu á Útópíu, leggja
áherslu á að allir vinni jafnt og upp-
skeri. Þeir sem leiða samfélagið,
að svo miklu leyti sem það er gert,
veljast til þess vegna sinna persónu-
legu einkenna og hæfileika. Þeir
einstaklingar eru skynsamir, rök-
vísir og dyggðum prýddir. Ætterni
og hefðir hjálpa mönnum ekki.
Ég efast um að þetta sé
draumaríki nokkurs manns. Þetta
er einsleitt samfélag og einhvers
konar staðalmynd, en það hefur
samt knúið áfram svona hugarleik-
fimi í gegnum aldirnar fimm sem
liðnar eru frá útkomu bókarinnar.“
Samfélagið sameiginlegt verkefni
„Tómas More lét sér ekki nægja
að tyggja upp möntru heimspek-
inga á miðöldum um að allt sem
þyrfti til að byggja upp samfélag
væri dyggðugur valdhafi og réttlát
stjórnskipan, heldur hafði hann
aðrar og meiri hugmyndir um hlut-
verk mannsins,“ segir Viðar Páls-
son. „Í Oxford komst hann ungur
í kynni við róttæka hugmynda-
strauma húmanismans sunnan úr
Evrópu þar sem talið var að maður-
inn væri í eðli sínu rökvís og skyn-
samur eða gæti að minnsta kosti
verið það. Menn hefðu því skyldur
til að rækta þá eiginleika sína og
móta samfélagið. Þetta skín í gegn
í Útópíu þegar More veltir því fyrir
sér hvernig er hægt að byggja sam-
félög upp frá grunni með skynsemi,
dyggðum og rökvísi.
Tómas More lagði áherslu á gagn-
rýna hugsun og hann gerir þá kröfu
til lesenda sinna í Útópíu. Það er
mikið svigrúm fyrir túlkun og
þarna er ekkert brytjað niður í les-
andann heldur verður lesandinn að
tyggja og melta þetta sjálfur. Þetta
gerir það að verkum að fimm alda
túlkunarsaga verksins er mjög lit-
rík.
Í Útópíu er rík áhersla á borgara-
lega köllun. Þeim sem mennta sig
ber siðferðisleg skylda til að taka
þátt í opinberri umræðu og vera
virkir þátttakendur í stjórnmál-
um. Bókin fjallar þannig að stórum
hluta um þessa skyldu og hvernig
menntamenn verða að beita sér
fyrir bættum heimi og gagnvart
valdinu í samfélaginu. Menntun-
in hefur þannig samfélagslegu
hlutverki að gegna. Vísindi, fræði
og stjórnmál eiga að ganga í eina
sæng. Þetta má telja aðalboðskap
ritsins,“ segir Viðar Pálsson.
Fljótlega fóru menn að gera tilraun-
ir til að draga upp kort af Útópíu
Tómasar More, þessari upprunalegu
staðleysu sem kveikt hefur margar
slíkar á þeim fimm öldum sem liðnar
eru frá útkomu bókarinnar.
Mynd Hans Holbein af Tómasi More sem í dag er, samkvæmt kaþólsku kirkjunni,
verndardýrlingur stjórnmálamanna. Ekki veitir þeim af einum slíkum.
Engar einkaeignir er að
finna á Útópíu og heimili
eru ólæst. Gæðum er deilt
út til fólks úr sameig-
inlegum vöruhúsum.
Landbúnaður er aðalstarf
íbúanna en auk þess lærir
hver og einn einhverja
ákveðna iðngrein. Allir
vinna og ganga til þeirra
verka í áþekkum fatnaði.
Velferðarkerfi er til staðar
með ókeypis sjúkrahúsum
og líknarmorð er leyft
með samþykki yfirvalda.
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
VERÐ FRÁ 255.000.- Í VIKU
MEXICO ALLT ÁRIÐ
PLAYA DEL CARMEN
Þú ferð þegar þú vilt eins lengi og þú vilt
Pálmatré, hvítar strendur og kristaltær sjór.
Karíbahafið eins langt og augað eygir. Þar má
auk þess sjá Maya pýramída, frumskóg, tær lón
og neðanjarðarhella, veitingahús, verslanir og
næturlíf. Þú finnur allt i Playa Del Carmen.
Er þetta aðeins hluti af því fjölmörgu í þessu
stórbrotna umhverfi sem heillar ferðamanninn.
Rétt utan við ströndina er svo næst stærsta
kóralrif heims með öllum sínum litaafbrigðum
og ótrúlegum fjölda fiska í öllum regnbogans
litum.
Við bjóðum uppá glæsilegt 4*hótel og allt
innifalið, yfir 40 atriði
Jólaskórnir
frá SixMix.
Skóhöllin Firði Hafnarfirði | s: 5554420 | Skóhöllin.
Opið frá 10-22 alla daga til jóla.
Verð frá kr. 16.995