Fréttatíminn - 17.12.2016, Síða 46
46 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
„Umbra er miðalda bílskúrsband
sem vill helst færa gamla tónlist
úr myrki fortíðar og inn í ljósið,“
segir Lilja Dögg Gunnarsdótt-
ir söngkona. Lilja myndar ásamt
tónlistarkonum Alexöndru Kjeld,
Arngerði Maríu Árnadóttur og
Guðbjörgu Hlín Guðmundsdóttur
þessa forvitnilegu litlu hljóm-
sveit. Arngerður leikur á kelt-
neska hörpu og orgel, Alexandra á
kontrabassa og Guðbjörg á barokk-
fiðlu. Allar syngja þær síðan þegar
svo ber undir en Lilja tekur aðal-
lega að sér sönginn auk þess sem
hún leikur á slagverk.
Þær stöllur í Umbru byrjuðu að
spila tónlist saman fyrir tveim-
ur árum. „Við Guðbjörg vorum
saman í meistaranámi í Lista-
háskóla Íslands sem að heitir
Sköpun, miðlun og frumkvöðla-
starf. Þar náðum við vel saman
og uppgötvuðum að við deildum
áhuga á því að vinna með gamla
tónlist og færa hana til nútímans.
Við fengum svo hinar tvær til liðs
við okkur sem voru á nákvæmlega
á sömu slóðum, þannig að þetta
smellpassaði. Ætli við leggjum
ekki stund á það sem kallast á
ensku „medieval revival“ og mætti
kalla endurlífgun á tónlistararfi
miðalda. Þessu skeytum við síðan
saman við nýrri tónlist sem getur
gengið upp í okkar hljóðheimi.“
Lilja Dögg segir að það grúska
og finna gamla tónlist sé góð
skemmtun sem meðlimir Umbru
deili. „Það er annað sem samein-
ar okkur, við höfum gaman af því
að finna eitthvað nýtt en erum
jafnframt óhræddar að gera tón-
listina að okkar eigin. Við útsetj-
um þannig mikið sjálfar og síðan
er spuninn líka mikilvægur. Við
syngjum í röddum og þá er sung-
ið frá hljóðfærunum. Þetta gerir
flutninginn líflegri. Lykilatriðið er
að við erum algjörlega óhræddar
við að prófa eitthvað nýtt. “
Ljós og skuggi
Umbra þýðir skuggi og Lilja Dögg
segir að sú staðreynd hafi kannski
litað eilítið fyrstu verkefni sveit-
arinnar. „Okkur finnst gaman að
vinna út frá ákveðnu „konsepti“
og þannig höfum við sett saman
tónleika sem hafa fjallað til dæmis
um dauðann og uppgjör mannsins
við lífið og fortíðina.“
Nú snúa Umbru konur sér að
jólunum sem auðvitað eru hátíð
á ljósaskilum. Þær fá góða gesti
til liðs við sig á tónleikunum sem
haldnir verða í Laugarneskirkju.
Þórdís Gerður Jónsdóttir selló-
leikari og Kristófer Rodriguez
Svönuson slagverksleikari koma
til liðs við sveitina. Á tónleikum
verða flutt bæði bæði sjaldheyrð
og velþekkt jólalög frá miðöldum
og lög eftir tónskáldin Báru Gríms-
dóttur og Hreiðar Inga hljóma
ásamt gömlum íslenskum jólalög-
um. „Jafnframt eru þarna lög sem
teygja sig aftur í heiðni en hafa síð-
an verið kristnuð. Það eru oft lög
sem tengjast árstímanum, vetrin-
um og stöðu himintunglanna um
þetta leyti árs.“
En æfir miðalda-bílskúrsbandið
Umbra í bílskúr? „Reyndar ekki í
augnablikinu,“ segir Lilja Dögg og
hlær. „Við æfum inn í stofu eins og
er, en það stendur allt til bóta. Ég
er að gera upp bílskúrinn minn og
þá flytjum við æfingarnar þang-
að inn. Þá verðum við alvöru bíl-
skúrsband með öðruvísi tónlist.“
Jólatónleikar Umbru og félaga
eru í Laugarneskirkju á sunnudag,
kl. 20.
Hljómsveitin Umbra veit hvað hún vill: Eigin blöndu af gamalli og nýrri tónlist. Hér eru þær meðlimir Umbru ásamt gestum
sínum á jólatónleikunum. Á myndinni eru Þórdís Gerður Jónsdóttir, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Lilja Dögg Gunnars
dóttir, Kristófer Rodriguez Svönuson, Arngerður María Árnadóttir og Alexandra Kjeld. Mynd | Hari.
Út um allan bæ fagna tónlistarmenn jólunum.
Tónlistin er alls konar en hljómsveitin Umbra
byggir sína tilvist á tónlistararfi miðalda. Fjórar
tónlistakonur vilja setja aldagamlan arf í nýtt
samhengi og móta hann í sínum hljóðheimi.
Bílskúrsband sem leikur
tónlist frá tímum kerruvagna
▲ Arngerður María
Árnadóttir.
▼ Lilja Dögg
Gunnarsdóttir.
◀ Guðbjörg
Hlín Guðmunds
dóttir.
▼ Alexandra
Kjeld.
byko.is
Allt í jólapakkann!
AUKINN
AFGREIÐSLUTÍMI
FRAM AÐ JÓLUM
SJÁ NÁNAR Á
BYKO.IS