Fréttatíminn - 17.12.2016, Qupperneq 54
54 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 17. desember 2016
Myndasagan er alltaf
að stækka
Myndasöguráðstefnur (e. Comic Con) tíðkast víða um heim. Gróskan í
íslenskum myndasögum hefur aukist mikið á síðustu árum og nú er að
myndast grundvöllur fyrir slíkar samkomur hér á landi.
KOMMIK KON verður haldið í
fyrsta sinn í Reykjavík á laugar-
dag milli 14 og 18 á Hlemmi Squ-
are. Þar bjóða nokkrir af helstu
myndasöguhöfundum landsins
fram bækur sínar og árituð prent.
Inn á milli verða höfundarnir
teknir tali um verk þeirra.
„Við ætlum að hafa þetta létt og
skemmtilegt,“ segir Þórey Mjall-
hvít H. Ómarsdóttir, talsmaður
hópsins, sem stendur að við-
burðinum. „Möguleikarnir eru að
aukast í þessu og höfundarnir eru
með betri tækifæri til að gefa sín
verk út sjálfir. Þetta er allt að verða
auðveldara. Áhugi á myndasögum
er að aukast og margir hæfileik-
aríkir teiknarar að koma fram.
Umhverfið styrkist hægt og þétt,
til dæmis er komin til teiknideild
í Myndlistarskólanum í Reykjavík
og svo hefur vinnustaður eins og
CCP, sem er með marga teiknara á
sínum snærum, líka áhrif.
Hugmyndin er að byrja smátt
og hver veit nema eftir nokkur ár
verði komin upp risastór KOMMIK
KON ráðstefna í
Reykjavík,“ seg-
ir Þórey Mjall-
hvít.
Fréttatím-
inn fékk að
skoða myndir
frá nokkrum höf-
undanna.
Lóa Hjálmtýsdóttir
„Ég valdi þessa myndasögu því hún lýsir
lífi mínu mjög nákvæmlega. Mér finnst
svo fyndið hvað ég er miklu verra for-
eldri en ég ætlaði mér.“
Sandra Rós Björnsdóttir fékk heiðurinn að gera kynningarmynd KOMMIK KON 2016. „Ég vildi gera mynd sem var innblásin af
myndasögum án þess að vera of bókstafleg. Svo mér datt í hug að gera eitthvað aðeins meira „surréal“. Það var gaman að prófa
eitthvað nýtt.“
Hugleikur Dagsson
„Vélpáfi gegn skýhákörlum“
„Ég teiknaði einu sinni tólf bar-
daga fyrir dagatal. Fyrir hverja
mynd reyndi ég að finna and-
stæðinga sem ég hafði ekki
hugsað áður. Vélpáfinn er ágæt-
ur en ég er gífurlega stoltur af
skýhákörlunum.“
Andri Kjartan
Andersen
„Draumóri“
„Tvískipt tilvist; Það eina
sem getur slökkt eldana
hennar Skaða, er róandi
geðslag Alfjeders.“
Sunna Sigurðardóttir
„Saga“
„Úr algerlega textalausri bók. Í raun er ekki
hægt að misskilja frásögnina því hver og einn
skilur þráðinn út frá sjálfum sér. Ég vil skoða
þær miklu víddir sem myndasögur hafa upp
á að bjóða. Þroska, húmor, drama, einlægni;
sögur ætlaðar jafn mismunandi markhópum
og skáldsögur almennt. Það eru engar reglur,
þetta er bara enn eitt listformið sem nota má
til tjáningar.“
Bjarni Hinriksson
„Hvað mælti Óðinn?“
„Í myndasögunni mætast jöt-
unninn Vafþrúðnir og Óðinn
í spurningaleik upp á líf og
dauða. Á þessari síðu vildi
ég undirbúa dauðann í lok
sögunnar með endurtekningu
ramma, einföldun lita og ster-
kri nærveru hvítra flata.“
Þórey Mjallhvít H.
Ómarsdóttir
„Ormhildarsaga“
„Stundum er gott að líta á
skrímsli úr fjarlægð og velta
fyrir sér hvort þau séu ekki
bara svoldið sæt.“
Þórey Mjallhvít
H. Ómarsdóttir
– gerir lífið bjartara
Stækkunarglerslampar
Ármúla 19 · Sími 568 1620 · www.gloey.is · gloey@gloey.is
Vandaðir stækkunar
glerslampar í föndur
og fína vinnu.
Góð birta.
kr. 14.990,-
kr. 19.900,-
kr. 39.990,-
Farið með svarið í ferðalagið
Vegahandbókin • Sundaborg 9 • Sími 562 2600
• Vegakort
• Þéttbýliskort
• Ítarlegur hálendiskafli
• 24 síðna kortabók
• Vegahandbókar App
• Þjóðsögur
• Heitar laugar o.fl. o.fl.
GAGNLEG GJÖF
App
Snjalltækjaútgáfa (App)
fylgir bókinni en í
henni er að finna alla
þá staði sem eru í bók-
inni ásamt þúsundum
þjónustuaðila um land
allt.
Snyrtistofan Ha lik
Okkar sérsvið er
Háræðaslitsmeðferðir
andlit - háls - bringa - hendur
Fyrir Eftir
Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
og demantshúðslípun.
Húðin verður þéttari, mýkri, hreinni og unglegri.
Fyrir Eftir