Fréttatíminn - 17.12.2016, Qupperneq 64
Fegin þegar
17 ára dóttirin
varð þunguð
Lilja var farin að fikta við kannabisneyslu og
Kristrún, móðir hennar, óttaðist um hana.
Henni var því létt þegar dóttirin varð óvænt
þunguð og hætti neyslunni. Lilja er nú komin
13 vikur á leið og þjáist af meðgönguþung-
lyndi, en hún leyfir fólki að fylgjast með sér
á snapchat. Kristrún er dóttur sinni stoð og
stytta, enda þekkir hún þunglyndi af eigin
raun og varð sjálf ung móðir.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Evonia eykur hárvöxt með því að
veita hárrótinni næringu og styrk.
Evonia er hlaðin bætiefnum sem
næra hárið og gera það gróskumeira.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Evonia
www.birkiaska.is
viðtal.
fylgjast með dóttur sinni og því
sem hún er að ganga í gegnum.
Þjáist af aðskilnaðarkvíða
Meðgönguþunglyndið gerði
snemma vart við sig Lilju. „Ég var
mjög leið og alltaf grátandi og er
enn. Mér leið mjög illa, en það var
mamma sem áttaði sig á því að lík-
lega væri ég með meðgönguþung-
lyndi. Þá fór ég sjálf að kynna mér
það og öll einkennin eiga við mig,“
segir Lilja, en hún ætlar að ræða
þessi mál við ljósmóðurina sína í
mæðraverndinni og fá þá aðstoð
sem hún þarf. „Ég vil reyna að laga
þetta, bæta líðanina,“ segir hún
ákveðin.
Kvíðinn hjá Lilju hefur ýmsar
birtingarmyndir, en hún þjáist
til að mynda af aðskilnaðarkvíða
gagnvart foreldrum sínum og á
erfitt með að vera annars staðar en
heima hjá sér. Hún fór til dæmis
til Parísar með kærastanum sín-
um á dögunum og þótti það ansi
erfitt. „Mér finnst alltaf best að
vera heima,“ segir hún hálf feimn-
islega og lítur á móður sína, sem
hefur fullan skilning á því hvernig
dótturinni líður.
Handtekin og kannabis í blóði
Þungunina bar óvænt að, enda
var Lilja ekki á þeim buxunum að
verða móðir strax þó vissulega
langaði hana að eignast barn ein-
hvern tíma. Jafnvel fyrr en síðar.
En hún var í öðrum hugleiðing-
um fyrir nokkrum mánuðum og
stefndi út af beinu brautinni. Var
farin að neyta kannabisefna endr-
um og sinnum, og undir vökulu
auga móður sinnar sem lét hana
reglulega skila til sín þvagprufum
til að fylgjast með ástandinu. „Ég
var búin að taka prufur hjá henni
sem komu alltaf neikvæðar, en
svo í ágúst í fyrra þá kom jákvætt.
Þá tók hún sig á og það gekk vel
þangað til það kom aftur jákvætt
núna fyrr á þessu ári. Hún fékk
að vita að þetta væri ekki í boði,“
segir Kristrún sem reyndi að taka
á vandanum frá upphafi og beina
dóttur sinni aftur inn á rétta braut.
„Ég hlustaði alveg á mömmu en
ég gerði þetta samt,“ segir Lilja og
viðurkennir að hafa verið í smá
uppreisn, sem betur fer náði ekki
að vara lengi. „Mig langaði bara að
prófa og mér fannst þetta gaman.
En ég var bara að nota kannabis,“
segir hún hreinskilin.
„Það er mjög erfitt að passa upp
á börnin þegar þau vilja ekki hjálp.
Hún vildi ekki hjálp og hlustaði
ekki á mig fyrr en ég greip til að-
gerða, eins og að færa kærastann í
annað herbergi. Næsta skref var að
drengurinn flytti út. Það kom þó
aldrei til þess.“
Einn góðan veðurdag var Lilja
handtekin. „Ég var ölvuð og með
kannabis í blóðinu,“ segir Lilja
hálf skömmustulega. „Hún var að
byrja í veseni,“ segir Kristrún. „En
það hætti um leið og ég komst að
því að ég væri ólétt,“ segir Lilja.
Kristrúnu fannst það því að mörgu
leyti jákvætt að dóttirin yrði
þunguð, þó hún væri ung að árum.
„Mömmu fannst þetta jákvætt,“ ít-
rekar Lilja og þær hlæja báðar. Það
má því með sanni segja að örlögin
hafi gripið í taumana.
Sagði frá á löggustöðinni
Nokkrum dögum eftir að Lilja var
handtekin fór hana að gruna að
hún gæti verið ólétt og tók óléttu-
próf. „Það var mjög mikið sjokk að
sjá tvær skýrar línur á prufunni.
Ég var mjög hissa, en spennt á
sama tíma, því mig hefur dreymt
um að verða móðir síðan ég var
lítil. Ég var reyndar hrædd líka.“
Lilja segist alls ekki hafa verið
stressuð yfir því að segja móður
sinni frá þunguninni, hún kveið
meira fyrir því að segja föður sín-
um. „En þó tóku þessu bæði vel,“
segir Lilja sem hefði þó viljað segja
foreldrum sínum frá þunguninni
með öðrum hætti en raun bar
vitni.
„Ég var tekin aftur upp á stöð
tveimur dögum eftir að ég tók
óléttuprófið því lögreglan sá bílinn
minn og vildi fá mig niður á stöð.
Þar átti ég að skila þvagprufu en
þá fór að blæða,“ útskýrir Lilja.
„Lögreglan hringdi strax í mig
en þetta var bara eftirlit. Hún
hafði ekkert verið að gera af sér en
þeir vildu samt taka aftur blóð- og
þvagprufu. Svo hringdi Lilja í mig
því hún varð hrædd þegar fór að
blæða,“ segir Kristrún, en það var
þannig sem hún komst að því að
hún væri að verða amma.
Vissi að hún yrði ung móðir
„Ég var á sama aldri þegar ég varð
ólétt að elstu dóttur minni og ekki
með kærasta. Þannig það var að-
eins öðruvísi. En Lilja sagði auðvit-
að að ég gæti ekki sagt neitt við því
að hún væri ólétt því ég var á sama
aldri,“ segir Kristrún og skellir upp
úr. „Mér kom þetta ekkert á óvart.
Ég vissi alltaf að hún yrði ung
móðir. Ég vissi það líka um leið
og hún fæddist að hún yrði erfið-
ur krakki. Hún hefur alltaf verið
þannig. Hún fór til dæmis í hjart-
aðgerð þegar hún var þriggja ára
og rak hjúkkurnar út þegar þær
ætluðu að vesenast meira í henni.
„Út með ykkur,“ sagði hún.“
Kristrún viðurkennir að hún
hafi verið orðin hrædd um dóttur
sína og óttaðist að kannabis-
neyslan gæti þróast út í neyslu á
harðari efnum. „Frændi hennar
dó ungur, vegna fíkniefnaneyslu.
Hann var fíkill. Þannig að ég hef
alltaf verið á tánum.“ Lilja segist
þó alls ekki hafa verið orðin háð
kannabis. Hún fann ekki fyrir stöð-
ugri löngun, að eigin sögn. Fannst
neyslan meira bara spennandi og
skemmtileg. „Mig hefur ekkert
langað í meira eftir að ég komst
að því að ég væri ólétt. Ég hætti
strax.“
Ætlar að klára stúdentsprófið
Lilja stefnir á að byrja í Mennta-
skólanum í Kópavogi eftir áramót
og klára nokkra áfanga áður en
barnið kemur í heiminn í júní.
Hún tók þá ákvörðun eftir að hún
komst að því að hún væri ólétt.
„Mig langar að vera búin með
eitthvað og svo þegar barnið fer í
leikskóla þá ætla ég að halda áfram
í náminu. Þetta er allavega planið.
Mig langar að klára stúdentspróf.
Mér gengur reyndar frekar illa að
vakna snemma á morgnana og
veit ekki hvernig það verður. En
ég er ekkert stressuð fyrir náminu
sjálfu. Ég þarf að bara að ná að
mæta.“
Kristrún og Lilja eru duglegar að
ræða málin og þær breytingar sem
eru að fara að eiga sér stað á lífi
þeirra beggja. Þær mæðgur hafa
alltaf verið nánar og eru góðar
vinkonur, en það á reyndar við um
Kristrúnu og allar dætur hennar.
Lilju þykir mjög dýrmætt að eiga
mömmu sem skilur nákvæmlega
hvað hún er að ganga í gegn um,
bæði hvað varðar meðgönguna og
þunglyndið.
Þær eru aðeins byrjaðar að
undirbúa komu barnsins með því
að kaupa það sem þarf, eins og
bílstól. „Ég er líka búin að kaupa
ömmustól og leikteppi,“ segir
Kristrún og spenningurinn fyrir
fyrsta ömmubarninu leynir sér
ekki. „Hún er meira að segja kom-
in með smá kúlu,“ bætir hún við
og lítur kímin á dóttur sína.
4 | helgin. LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is • Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn:
Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri
og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. helgin. er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Það er líklega ekki alltaf tilfellið að mæður finni fyrir feginleika þegar sautján ára dætur þeirra verða þungað-
ar. Það var þó tilfinningin sem
Kristrún Úlfarsdóttir upplifði
þegar dóttir hennar, Lilja Dögg
Eysteinsdóttir, sagði henni að
hún væri ólétt. Hún hafði verið
að fikta við kannabisneyslu um
tíma og Kristrún óttaðist að hún
leiddist út í harðari efni. Þungunin
gerði það hins vegar að verkum að
Lilja tók sig á og hefur ekki snert
kannabis síðan hún varð meðvituð
um ástand sitt. Hún er nú gengin
þrettán vikur og önnur vandamál
hafa tekið við. Lilja glímir við með-
gönguþunglyndi og kvíða, en hef-
ur ákveðið að deila reynslu sinni
og upplifun af meðgöngunni með
alþjóð í gegnum snapchat undir
nafninu: mommytobe-june.
Blaðamaður hitti þær mæðgur á
fallegu heimili þeirra í Hafnarfirði,
sem sannarlega er komið í jóla-
búning.
Verða átta á heimilinu
„Ég frétti að það væru stelpur sem
hefðu áhuga á að fylgjast með mér
og sjá hvernig það er að vera 17 ára
og ólétt í skóla. Svo langaði mig
líka að sýna að meðganga er ekki
dans á rósum. Það eru stelpur sem
fá snemma meðgönguþunglyndi,
eins og í mínu tilfelli. Ég er líka
með kvíða og er að reyna að kljást
við þetta.“
Lilja býr heima hjá foreldrum
sínum ásamt barnsföðurnum,
Daníel Ottó Viney, og þau stefna á
að búa þar áfram eftir að barnið
fæðist – allavega fyrst um sinn.
Þau eru sjö á heimilinu nú þegar,
Kristrún, maðurinn hennar, þrjá
dætur og tveir kærastar. Þannig
það verður fjör þegar ungbarn
bætist í hópinn.
Viðbrögðin við snappinu hafa
verið góð og fjölmargir hafa bæst í
fylgjendahópinn á síðustu dögum.
Lilja viðurkennir að hún viti ekki
alltaf hvað hún eigi að tala um,
en gerir ráð fyrir að efniviðurinn
verði meiri eftir því sem líður á
meðgönguna. Annars ætlar hún
bara að leyfa fólki að fylgjast með
lífi sínu sem ung, ólétt stúlka sem
glímir við meðgönguþunglyndi og
kvíða. Sumar þeirra sem fylgj-
ast með Lilju eru í svipaðri stöðu
en aðrar vilja einfaldlega fylgjast
með.
Líka með kvíða og þunglyndi
Lilja hefur glímt við kvíða í tíu ár
og hefur gengið til sálfræðings
vegna þess. „Fyrst áttaði ég mig
ekki á því hvað var að hrjá hana.
Þetta virtist tengjast því þegar við
vorum að borða. Þá lagðist hún í
sófann, hélt um magann og titr-
aði öll. Fyrst hélt ég að hún væri
kannski með mjólkuróþol. Það
var ekki fyrr ég sjálf fékk kvíða-
kast að ég áttaði mig á því að þetta
gæti verið kvíði hjá henni,“ segir
Kristrún
Hún þekkir því kvíða af eig-
in raun, en hún hefur leitað sér
hjálpar og náð þokkalegum tök-
um á honum. „Ég fékk líka mikið
fæðingarþunglyndi eftir að ég
eignaðist börnin mín þrjú. Þannig
ég veit hvað hún er að ganga í
gegnum. Það var samt ekkert gert
fyrir mig fyrr en yngsta dóttir mín
var fimm ára. Þetta var þá búið að
vera mjög erfitt. Mér var alltaf bara
sagt að fara út að hreyfa mig eða
hætta þessari leti. Ég hef sjálf verið
dugleg að skrifa um mitt þung-
lyndi og því fannst mér fínt að
kynna Lilju aðeins,“ segir Kristrún
en hún setti í vikunni færslu inn
í hóp á netinu og hvatti fólk til að
Þegar barnið kemur í heiminn verða þau átta á heimilinu, en Lilja og Daníel ætla að búa heima hjá Kristrúnu og fjölskyldunni fyrst um
sinn. Mynd | Rut