Fréttatíminn - 17.12.2016, Page 70
–Sulta
–Chutney
–Konfekt
–Biscotti
–Granóla
–Karamellur
–Sykurhúðaðar möndlur
–Hvítlauks- eða chiliolía
–Vanilludropar
–Fetaostur í olíu
–Piparmyntu „bark“
–Súkkulaðihúðaðar saltkringlur
–Sykurhúðaður appelsínubörkur
eða engifer
Eitt atkvæði sameinar fjölda veitingastaða
Nýir veitingastaðir og barir
spretta upp um alla borg, eins
ólíkir og þeir eru margir. En
óvenju margir þeirra eiga þó eitt
sameiginlegt – nefnilega eitt ein-
asta atkvæði! Stutt og laggott
er trendið þessa dagana eins og
þessi listi af nýlegum stöðum – í
bland við eldri – gefur sterkt til
kynna.
Ætar gjafir
fyrir þau sem
eiga allt
Fólk sem á allt getur valdið ást-
vinum sínum ótæpilegri ang-
ist þegar kemur að því að velja
handa því jólagjafir. Bestu gjaf-
irnar fyrir þau sem eiga allt eru
þær sem klárast upp til agna á
jólunum og ekki þarf að finna fyrir
þær pláss til framtíðar. Hér eru
nokkrar tillögur að ætum jólagjöf-
um sem tilvalið er að dedúa við
um helgina.
Nýstárlegt jólaglögg
með prosecco
Forsmekkurinn að Matbar á Jólatorginu Hljómalind.
Guðjón
ásamt
Fanneyju,
Kjartani
og Gísla
sem standa
vaktina á
Jólatorginu
fram að
jólum.
Mynd | Hari
V
eitingamaðurinn Guð-
jón Hauksson er nú
vakinn og sofinn yfir
opnun Matbars sem
verður, að hans sögn,
vonandi fyrir jól eða milli jóla og
nýárs. Á meðan biðinni stend-
ur geta gestir gætt sér á réttum
sem innblásnir eru af matseðli
Matbars á Jólatorgi Hljómalindar á
hjartareitnum. Þar er líka nýstár-
leg útgáfa af jólaglöggi sem sagan
segir að sé unun að smakka.
„Þetta er einstakt glögg sem er
með prosecco í stað rauðvíns. Við
gerum blóðappelsínusíróp sem er
með kanil, anís, vanillu og negul
og svo er fyllt upp með prosecco,“
segir Guðjón og lofar því að ekki
verði aftur snúið þegar þessi týpa
hefur verið smökkuð.
Tilvaldar jólagjafir
Maturinn sem hægt er að smakka
á Jólatorginu gefur forsmekk að
því sem koma skal á Matbar. „Við
erum til dæmis með grillað brauð
nautatartar og trufflumajónesi og
sultuðum rauðrófum og djúp-
steikrar arancini risottobollur
með villisveppum. Við erum líka
að selja barsnakkið okkar sem
eru þurrkaðar ólívur og ristaðar
möndlur og tvær tegund-
ir af trufflum sem
eru ekki af þessum
heimi. Það er um
að gera að koma
við í básnum okk-
ar og smakka,
þetta eru til
dæmis tilvaldar
jólagjafir,“ segir
Guðjón. Jólatorg-
ið verður opið alla
daga fram að jólum til
22 á kvöldin nema á Þor-
láksmessu þegar opið verður
til 23. Guðjón segir stemninguna
guðdómlega á torginu og mikill
áhugi á öllum þeim mat og matar-
tengdu básum sem þar eru.
Ítalía hittir Skandinavíu
Eins og áður sagði opnar Matbar
öðru hvoru megin við jól og nú
er allt á fullu við að setja staðinn
upp og gera hann kláran. „Gísli
Matthías Auðunsson tók að sér
pælingar sem við vorum með og
færði yfir í matseðil og gerði það
alveg snilldarlega. Seðillinn er
mjög spennandi og aðgengilegur
og hægt að púsla hon-
um saman á margan
hátt,“ segir Guðjón.
Heiðarleiki
ítalska eld-
hússins færður
yfir í hið hreina
skandínavíska
er þemað og
áhersla á gott
hráefni verður
í forgrunni. „Við
verðum síðan með
skemmtilegan kokteila-
lista með ítölsku ívafi og
góðan lista af prosecco og kampa-
víni.“ Opnað verður snemma
á morgnana á Matbar og hægt
verður að koma í morgunmat eða
kippa með sér kaffi og einhverju
góðu með. „Svo verðum við með
hágæða delíborð sem við notum
í matargerðina og hægt verður að
grípa með sér gómsætar samlok-
ur úr fyrsta flokks hráefni.“
„Það er
um að gera að
koma við í bás
num
okkar og smak
ka,
þetta eru til
dæmis tilvalda
r
jólagjafir.“
2 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016MATARTÍMINN
Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp
Við notum ekki MSG í súpuna okkar.
Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum
og stórmörkuðum landsins.