Fréttablaðið - 11.02.2017, Qupperneq 2
Sögulok hjá sumarhúsi
Hafist hefur verið handa við að rífa niður og fjarlægja fimmtíu ára sumarbústað við vatnsbakkann í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Ríkið keypti húsið
2014. Ekki á að fjarlægja tré af lóðinni líkt og grenilund umhverfis bústað sem ríkið keypti við Valhallarreitinn í fyrrahaust. Fréttablaðið/Garðar
Veður
Hvöss suðvestanátt norðvestan til í dag
og stormur seinnipartinn með talsverðri
rigningu um tíma á Breiðafirði og á Vest-
fjörðum. sjá síðu 46
samfélag Bjarni Benediktsson for-
sætisráðherra hefur beðið öll þau
börn sem vistuð voru á Kópavogs-
hælinu og fjölskyldur þeirra afsök-
unar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
Tilefnið er svört skýrsla um aðbún-
að barna og ofbeldi gegn þeim á
Kópavogshælinu sem fram kom
fyrr í vikunni.
„Sömuleiðis bið ég afsök-
unar allt fatlað fólk, börn og
fullorðna, sem hefur verið
vistað á stofnunum hér á
landi og sætt þar ofbeldi
eða illri meðferð. Sár reynsla
verður aldrei bætt að fullu,
en á grundvelli laga
u m s a n n -
girnisbæt-
ur verður
nú unnið
að því að
bæta þeim
sem urðu fyrir ofbeldi eða illri með-
ferð þann skaða sem af því hefur
hlotist, að því marki sem það er
unnt,“ segir í tilkynningu frá for-
sætisráðherra.
Bjarni segir nauðsynlegt að horf-
ast í augu við það hversu slæmar
aðstæður fatlaðra einstaklinga
voru á hælinu og draga
lærdóm af skýrslunni um
stöðu fatlaðra barna og
foreldra þeirra, og almennt
um aðbúnað fatlaðs fólks á
stofnunum. – snæ
Forsætisráðherra biður
fólk með fötlun afsökunar
öryggismál Vegna vaxandi fjölda
erlendra ferðamanna þarf að upp-
færa ýmsar viðbragðsáætlanir vegna
hugsanlegra náttúruhamfara. Ekki er
síst litið til Kötlu en gríðarleg fjölgun
í umferð ferðamanna um Suðurland
á stuttum tíma er staðreynd.
Þetta er meðal niðurstaðna fundar
undirbúningshóps viðbragðsaðila,
þar á meðal Almannavarna, sem
kom saman á fimmtudag.
„Ef Katla gysi á þessu ári gæti þurft
að koma þúsundum ferðamanna
burt af hættusvæðum en ekki þarf
að fara mörg ár aftur í tímann til
að finna viðbragðsáætlanir sem
gerðu ráð fyrir rýmingu tiltölulega
fámenns hóps íbúa og að erlendir
ferðamenn heimsóttu Suðurland
aðeins á sumrin,“ segir í tilkynningu
undirbúningshópsins.
Víðir Reynisson, verkefnastjóri
almannavarna hjá lögreglunni á
Suðurlandi, segir fundinn hafa snúist
um upplýsingagjöf til ferðamanna;
breyttar áherslur og hvernig mætti
nýta reynslu síðustu ára. „Við erum
að samræma hvað við viljum gera
þegar Katla fer af stað,“ segir Víðir
og jafnframt hvernig samstarfi við
fjölmiðla verði best háttað.
Þörfin er rík, segir Viðir, enda
séu um 3.000 manns búsettir á
rýmingar svæðum Kötlu en á góðum
sumardegi fjór- til fimmfaldist sú tala
vegna umferðar ferðamanna.
Til eru samtímaheimildir um ein
níu Kötlugos, frá 1580 að telja, sum
stór eins og það síðasta sem kom upp
úr jökli árið 1918. Jökulhlaupin eru
gríðarstór, um 100-falt vatnsmeiri en
úr Eyjafjallajökli 2010 og að minnsta
kosti fjórum til fimm sinnum öflugri
en vatnsflóðin á Skeiðarársandi
1996, eftir eldgosið í Gjálp. Eins að
Gæti þurft að flytja
þúsundir frá Kötlu
Gjósi Katla á háannatíma ferðaþjónustunnar gæti þurft að flytja 15 þúsund
manns burt á stuttum tíma. Viðbragðsáætlanir og leiðir til upplýsingagjafar eru
í endurskoðun. Eldri áætlanir gerðu ráð fyrir flutningi fámenns hóps af svæðinu.
Vinnumarkaður Vinnumálastofn-
un opnaði í gær nýjan vef, posting.
is, þar sem nálgast má helstu upp-
lýsingar um réttindi og skyldur
starfsmannaleiga sem senda erlent
starfsfólk til starfa á Íslandi.
„Hvernig menn eiga að haga
sér þegar þeir eru með starfsemi
á Íslandi og hvenær þeir eiga að
borga kaup og hvað mikið að lág-
marki og þess háttar,“ segir Gissur
Pétursson, forstjóri Vinnumála-
stofnunar.
Gissur segir að einn tilgangurinn
með þessari síðu sé að sporna gegn
vinnumansali. – jhh
Ný síða gegn
vinnumansali
Gissur Pétursson,
forstjóri Vinnu
mála stofnunar
bjarni benediktsson forsætisráð
herra hefur beðist afsökunar
fyrir hönd ríkisstjórnar
innar á aðbúnaðinum
á Kópavogshæli.
Fréttablaðið/GVa
Kötlugos hefur ekki náð upp úr jökli í 99 ár – en heimildir vitna um eyðileggingar
mátt eldfjallsins. Skjálftavirkni í fjallinu frá því í sumar er ástæða áætlanagerðar.
Fréttablaðið/Vilhelm
stundum hefur öskufall verið afar
mikið næst eldfjallinu og um og yfir
milljarður rúmmetra af gjósku ruðst
upp um jökulinn.
Í frétt Fréttablaðsins fyrir nokkr-
um árum kom fram að þegar ferða-
menn við Kötlurætur voru spurðir að
því hvað þeir vissu um svæðið sem
þeir voru að skoða var svar þeirra
flestra á þeim nótum að þeir vissu
einfaldlega ekki að undir jöklinum
sem þeir stóðu við var eldstöð – hvað
þá að þeir vissu um afl hennar eða
eyðingarmátt. svavar@frettabladid.is
Við erum að sam-
ræma hvað við
viljum gera þegar Katla fer af
stað.
Víðir Reynisson,
verkefnastjóri
hjá lögreglunni á
Suðurlandi
1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
1
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
7
-0
D
2
8
1
C
3
7
-0
B
E
C
1
C
3
7
-0
A
B
0
1
C
3
7
-0
9
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K