Fréttablaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 36
Harpa Ósk Björnsdóttir sem Næturdrottningin í Töfraflautu Mozarts. MyNd/erNir
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég tek
þátt í nemendaóperunni því ég hef
alltaf verið í tveimur skólum og
ekki haft tíma,“ segir Harpa Ósk.
Í þetta sinn vantaði einhvern til að
syngja hlutverk Næturdrottning-
arinnar og hún beðin um að taka
það að sér. „Ég ákvað að slá til því
þó að Næturdrottningin sé risa-
stórt hlutverk þá syngur hún að-
eins tvær aríur og það er hentugt
með skóla,“ segir Harpa og brosir.
Aríurnar tvær eru þó afar
flóknar og hlutverk Næturdrottn-
ingarinnar þykir eitt mest krefj-
andi sópranhlutverk í óperuheim-
inum. „Ég gerði mér sjálf ekki
grein fyrir að ég gæti þetta en
söngkennarinn minn ákvað að
prófa í einum söngtímanum og
það kom mér á óvart að þetta væri
hægt,“ segir hún.
Söngkonan þarf að ná afar háum
tónum í aríunum en Harpa segir
það þó ekki það erfiðasta. „Hæðin
kom nokkuð léttilega en svo syng-
ur Næturdrottningin langa skala
sem eru tæknilega erfiðir og erf-
itt að anda. Svo þarf hún líka allt-
af að vera svo rosalega reið,“ segir
Harpa og hlær. Hún þurfi því að
sýna miklar tilfinningar en passa
samt öndunina.
Góð fyrsta ópera
Æfingar á óperunni hafa staðið
síðan í haust og Harpa segir allt
smollið saman núna. Hún lofar
góðri skemmtun. „Þetta er ein
skemmtilegasta ópera sem hefur
verið samin. Hún er með einföld-
um boðskap, léttum og skemmti-
legum söguþræði og ekki mjög
löng. Þá eru í henni alls konar
furðuverur,“ lýsir hún og bætir
við að fínt sé fyrir þá sem ekki
hafa farið á óperur áður að byrja
á þessari. „Aldrei þessu vant
þori ég að bjóða vinum mínum að
koma,“ segir hún og segir hana
einnig henta öllum aldurshópum.
„Ég ætla til dæmis að bjóða litlu
frændsystkinum mínum.“
Vill ekki Velja á milli
Harpa byrjaði í söngnámi 15 ára
gömul hjá Þóru Björnsdóttur í kór-
skóla Langholtskirkju en þar áður
hafði hún verið lengi í kórstarfinu
hjá Jóni Stefánssyni í kirkjunni.
Þegar hún var 17 ára fór hún að
læra hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðar-
dóttur sem er kennarinn henn-
ar í dag. Harpa lauk framhalds-
prófi í söng síðasta vor og stund-
ar nú fullt söngnám á háskólastigi.
Flestum þætti það nóg en Harpa
er auk þess á öðru ári í rafmagns-
verkfræði við Háskóla Íslands.
Hún segir vissulega krefjandi að
vera í fullu námi í hvoru tveggja.
„Þetta er púsl en hefur virkað hing-
að til. Ég veit ekki hvort ég þurfi á
endanum að velja á milli en ég vona
ekki. Ég er alveg hætt að plana og
sé bara hvert lífið leiðir mig.“
reiðin kraumar í
næturdrottninGu
Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík flytur Töfraflautuna eftir
Mozart í Norðurljósasal Hörpu á sunnudaginn. Harpa Ósk
Björnsdóttir fer með hið krefjandi hlutverk Næturdrottningarinnar en
samhliða fullu söngnámi stundar Harpa nám í rafmagnsverkfræði.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Áhugasamir auglýsendur hafið samband við
Jóhann Waage sölumann Sérblaða:
johannwaage@365.is
Sími 512 5439
BLAÐ UM
FASTEIGNAGEIRANN
Kemur út 22. febrúar.
Í þessu blaði verður hægt að kaupa bæði
auglýsingar sem og kynningar.
Blaðinu er ætlað að fjalla um allt sem viðkemur
fasteignageiranum, allt frá hönnun, til byggingar,
til fjármögnunar, til sölu og viðhalds.
1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r4 f ó L k ∙ k y n n i n G a r b L a ð ∙ X X X X X X X Xf ó L k ∙ k y n i n G a r b L a ð ∙ h e L G i n
1
1
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
7
-6
F
E
8
1
C
3
7
-6
E
A
C
1
C
3
7
-6
D
7
0
1
C
3
7
-6
C
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K