Fréttablaðið - 11.02.2017, Page 36

Fréttablaðið - 11.02.2017, Page 36
Harpa Ósk Björnsdóttir sem Næturdrottningin í Töfraflautu Mozarts. MyNd/erNir „Þetta er í fyrsta sinn sem ég tek þátt í nemendaóperunni því ég hef alltaf verið í tveimur skólum og ekki haft tíma,“ segir Harpa Ósk. Í þetta sinn vantaði einhvern til að syngja hlutverk Næturdrottning- arinnar og hún beðin um að taka það að sér. „Ég ákvað að slá til því þó að Næturdrottningin sé risa- stórt hlutverk þá syngur hún að- eins tvær aríur og það er hentugt með skóla,“ segir Harpa og brosir. Aríurnar tvær eru þó afar flóknar og hlutverk Næturdrottn- ingarinnar þykir eitt mest krefj- andi sópranhlutverk í óperuheim- inum. „Ég gerði mér sjálf ekki grein fyrir að ég gæti þetta en söngkennarinn minn ákvað að prófa í einum söngtímanum og það kom mér á óvart að þetta væri hægt,“ segir hún. Söngkonan þarf að ná afar háum tónum í aríunum en Harpa segir það þó ekki það erfiðasta. „Hæðin kom nokkuð léttilega en svo syng- ur Næturdrottningin langa skala sem eru tæknilega erfiðir og erf- itt að anda. Svo þarf hún líka allt- af að vera svo rosalega reið,“ segir Harpa og hlær. Hún þurfi því að sýna miklar tilfinningar en passa samt öndunina. Góð fyrsta ópera Æfingar á óperunni hafa staðið síðan í haust og Harpa segir allt smollið saman núna. Hún lofar góðri skemmtun. „Þetta er ein skemmtilegasta ópera sem hefur verið samin. Hún er með einföld- um boðskap, léttum og skemmti- legum söguþræði og ekki mjög löng. Þá eru í henni alls konar furðuverur,“ lýsir hún og bætir við að fínt sé fyrir þá sem ekki hafa farið á óperur áður að byrja á þessari. „Aldrei þessu vant þori ég að bjóða vinum mínum að koma,“ segir hún og segir hana einnig henta öllum aldurshópum. „Ég ætla til dæmis að bjóða litlu frændsystkinum mínum.“ Vill ekki Velja á milli Harpa byrjaði í söngnámi 15 ára gömul hjá Þóru Björnsdóttur í kór- skóla Langholtskirkju en þar áður hafði hún verið lengi í kórstarfinu hjá Jóni Stefánssyni í kirkjunni. Þegar hún var 17 ára fór hún að læra hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðar- dóttur sem er kennarinn henn- ar í dag. Harpa lauk framhalds- prófi í söng síðasta vor og stund- ar nú fullt söngnám á háskólastigi. Flestum þætti það nóg en Harpa er auk þess á öðru ári í rafmagns- verkfræði við Háskóla Íslands. Hún segir vissulega krefjandi að vera í fullu námi í hvoru tveggja. „Þetta er púsl en hefur virkað hing- að til. Ég veit ekki hvort ég þurfi á endanum að velja á milli en ég vona ekki. Ég er alveg hætt að plana og sé bara hvert lífið leiðir mig.“ reiðin kraumar í næturdrottninGu Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík flytur Töfraflautuna eftir Mozart í Norðurljósasal Hörpu á sunnudaginn. Harpa Ósk Björnsdóttir fer með hið krefjandi hlutverk Næturdrottningarinnar en samhliða fullu söngnámi stundar Harpa nám í rafmagnsverkfræði. Sólveig Gísladóttir solveig@365.is Áhugasamir auglýsendur hafið samband við Jóhann Waage sölumann Sérblaða: johannwaage@365.is Sími 512 5439 BLAÐ UM FASTEIGNAGEIRANN Kemur út 22. febrúar. Í þessu blaði verður hægt að kaupa bæði auglýsingar sem og kynningar. Blaðinu er ætlað að fjalla um allt sem viðkemur fasteignageiranum, allt frá hönnun, til byggingar, til fjármögnunar, til sölu og viðhalds. 1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r4 f ó L k ∙ k y n n i n G a r b L a ð ∙ X X X X X X X Xf ó L k ∙ k y n i n G a r b L a ð ∙ h e L G i n 1 1 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 0 F B 1 1 2 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 7 -6 F E 8 1 C 3 7 -6 E A C 1 C 3 7 -6 D 7 0 1 C 3 7 -6 C 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 1 2 s _ 1 0 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.