Fréttablaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 98
KannsKi er þetta
að einhverju leyti
líKa saga fólKs sem Kemur á
nýjan stað og frumbyggj-
anna sem voru þar fyrir.
NÝTT
Styrkir húðina innan frá með því að auka teygjanleika og fylla upp
í hrukkur. Stinnir húðina, gefur henni ferskleika og eykur útgeislun.
BÆTIR
FYLLIR UPP Í DJÚPAR HRUKKUR
Til sjávar og sveita með Hallgerði
langbrók er yfirskrift tónleika í 15:15
tónleikasyrpunni í Norræna húsinu
nk. sunnudag, 12. febrúar, kl. 15:15.
Einsöngvarar á tónleikunum eru
Hanna Dóra Sturludóttir og Ingi-
björg Guðjónsdóttir en hljóðfæra-
leikur er í höndum Caput hópsins
undir stjórn Guðna Franzsonar.
Hanna Dóra og Snorri Sigfús
Birgisson munu frumflytja lagaflokk
Snorra Sigfúsar sem nefnist Níu lög
að vestan en Snorri segir að hér
séu á ferðinni níu þjóðlög sem eru
varðveitt hljóðrituð í þjóðfræðisafni
Stofnunar Árna Magnússonar. „Þetta
eru upptökur frá sjöunda áratug síð-
ustu aldar og heimildarmennirnir í
þessum lögum voru allir fæddir á
ofanverðri nítjándu öld. Þetta er allt
saman úr Dalasýslu, Hanna Dóra
er ættuð þaðan og þessar útsend-
ingar eru tileinkaðar henni. Það er
ómetanlegt hugsjónastarf sem þau
Hallfreður Örn Eiríksson, Jón Sam-
sonarson og Helga Jóhannsdóttir
unnu þegar þau ferðuðust um landið
á sjöunda áratugnum og tóku upp
alls konar efni. Þar á meðal eru um
sjö hundruð klukkustundir af tón-
list.“
Snorri Sigfús segir að það eigi
afskaplega vel við sig að vinna með
þetta efni. „Lögin eru mjög ólík og
fjölbreytileg. Síðan eru þau líka
sungin á mismunandi vegu á upp-
tökunum þannig að þetta vekur upp
ýmsar ólíkar hugsanir. En Hanna
Dóra syngur þetta allt af mikilli list
enda fádæma fín söngkona.
Svítan Hallgerður langbrók eftir
Finn Torfa Stefánsson er á síðari
hluta tónleikanna. Svítan var gerð
fyrir Caput hópinn og Ingibjörgu
Guðjónsdóttur söngkonu og byggð
á samnefndri óperu Finns í fullri
lengd. Finnur segir að þar sem hann
sé að vinna með Hallgerði Langbrók
þessa dagana þá passi hann sig sér-
staklega vel á þjófssögum og á því að
gefa engum kinnhest þessa dagana
og hlær við. „Upprunalega er þetta
ópera sem ég samdi og þetta eru
sýnishorn úr henni. Auk Caput hóps-
ins og Ingibjargar þá kemur Edda
Þórarinsdóttir leikkona inn og segir
söguþráðinn til að setja tónlistina í
samhengi.“
Finnur Torfi segir að það sé afar
skemmtilegt að semja tónlist við
Njálu. „Það er reyndar stórhættulegt
því það er svo mikil vinna og fæst
ekki króna fyrir. Þetta er bara eins og
hver önnur della og ég er með músík-
dellu, það er óhætt að segja það. En
Hallgerður var fyrst kvenréttinda-
konan en hún liggur í Laugarnesinu
og þar malbikaði Reykjavíkurborg
yfir hana svo að hún gengi ekki
aftur.“ magnus@frettabladid.is
Dalasöngvar og Hallgerður
Snorri Sigfús Birgisson tónskáld hefur útsett níu laga flokk sem verður frumfluttur
á 15:15 tónleikunum á sunnudaginn. FréttaBlaðið/Hanna
„Við erum búin að forsýna í heima-
byggð á Hvammstanga. Við búum
í Húnaþingi vestra en ég er þaðan
upphaflega, en bjó reyndar í London
í tuttugu ár og kynntist þar konunni
minn. Hún er brúðulistamaðurinn á
bak við sýninguna og hún er reyndar
orðin ágætlega þekkt innan þess
geira í Bretlandi,“ segir Sigurður
Líndal Þórisson, leikstjóri og einn
að aðstandendum brúðuleikhúss-
ins Handbendi sem í dag frumsýnir
sýninguna Tröllin í Samkomuhús-
inu á Akureyri. Það er Greta Clough
sem handgerir brúðurnar, er höf-
undur sögunnar og sér um brúðu-
leikinn ásamt Aldísi Davíðsdóttur,
hljóðmynd og tónlist er eftir breska
tónskáldið Paul Mosley, listakonan
Kathleen Scott sem hefur undanfarið
haft listamannadvöl að Nesi á Skaga-
strönd sér um skuggamyndir og
ljósahönnun er í höndum Aðalsteins
Stefánssonar en leikstjórn er eins og
áður sagði í höndum Sigurðar.
„Við hjónin fluttum heim fyrir rétt
um einu og hálfu ári og höfum síðan
verið að búa til sýningar á Hvamms-
tanga. Vonandi er það að bæta í
menningarflóruna á staðnum. En
við höfum líka verið að flytja inn
brúðuleikara og listamenn, sem
mörgum þykir sérstakt, en þá höfum
við æft sýningarnar hér og sýnt þær
svo á nokkrum stöðum og m.a. farið
í leikferð um Bretland. Þannig að
Handbendi er alþjóðlegt samstarfs-
verkefni og að lokinni frumsýningu
hér í Samkomuhúsinu þá förum við í
félagsheimilin á Norðurlandi vestra,
svo er það Frystiklefinn á Rifi, þaðan
í Tjarnarbíó og seinnipart sumars
og í haust þá verða Tröllin á ferð í
London og víðar um Bretland.“
Sigurður segir að þau hafi byrjað
ferlið fyrir sýninguna með því að
lesa vandlega tröllasögurnar sem er
að finna í þjóðsögunum eins og þær
koma fyrir af skepnunni. „Við keyrð-
um líka um landið og mynduðum
tröllakletta og andlit í klettunum og
brúðurnar byggja soldið á þessum
myndum. Mér finnst skemmtilegt
að þegar maður fer að lesa þetta í
heild sinni, þá sér maður hvað þetta
er mikið um komu kristninnar til
landsins. Hvítserkur er nú eitt fræg-
asta dæmið um það, sagan um tröllið
sem bjó á Ströndum og þoldi ekki
hljóminn í kirkjuklukkunni á Þing-
eyri svo hann rauk af stað til þess að
þagga niður í henni. Greyinu entist
þó ekki náttmyrkrið, brann inni á
tíma og varð að steini. Átök á milli
nýja tímans og þess gamla eru þann-
ig algengt þema í þessum sögum. Það
má líka sjá þarna átök á milli upp-
lýsingaaldarinnar og óheftrar nátt-
úra, vísindi versus bábilja. Kannski
er þetta að einhverju leyti líka saga
fólks sem kemur á nýjan stað og
frumbyggjanna sem voru þar fyrir.
Því alltaf er það þannig að tröllin
þurfa einhvern veginn að hörfa með
einum eða öðrum hætti.“
Sigrurður segir að þegar þau hafi
verið komin með sögurnar sem þau
völdu að vinna með sem grunn þá
hafi þau farið að skoða hvernig væri
best að setja saman söguna. „Við
reyndum ýmsar nálganir og end-
uðum með því að fara alveg aftur til
þess tíma þegar paparnir koma til
landsins. Í okkar sögu kemur ung
stúlka til landsins með þeim og sög-
urnar koma svo til okkar í gegnum
þessa stúlku. Hún er bæði hugrökk
og ævintýragjörn og fer að fara um
landið. Upp á fjöllum rekst hún svo
á þessa skelfilegu óvætti Truntum
Runtum úr samnefndri þjóðsögu.“
Alltaf þurfa tröllin að hörfa undan mannfólkinu
handbendi er alþjóðlegt brúðuleikhús sem er starfrækt á hvammstanga. í dag frumsýna þau verkið tröll
í samkomuhúsinu á akureyri og í framhaldinu eiga þau eftir að ferðast víða og meðal annars um bretland.
Greta Clough, Sigurður líndal Þórisson og aldís Davíðsdóttir með allt klárt fyrir frumsýningu í Samkomuhúsinu á akureyri.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r50 M e n n i n G ∙ f r É T T a b L a ð i ð
1
1
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
7
-0
D
2
8
1
C
3
7
-0
B
E
C
1
C
3
7
-0
A
B
0
1
C
3
7
-0
9
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K