Fréttablaðið - 11.02.2017, Qupperneq 16
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Raunar er það
svo að
hundalógík
og hræsni er
að finna
nánast hvert
sem litið er
við núverandi
fyrirkomulag.
Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina – allavega stundum – fáránlega. Það er gott að vera alvitur samtímamaður sem lítur í baksýnisspegilinn og
hlær góðlátlega að flónsku fortíðar, umvafinn öruggri
vissu um að nú séum við búin að negla þetta. Munið þið
þegar það var í lagi að hneppa fólk í þrældóm vegna þess
hvernig húð þess var á litinn? Vandræðalegt. Já, og þegar
blóðtaka þótti allra meina bót? Vitleysingar. Og guð,
munið þið eftir því þegar það þótti töff að vera með sítt
að aftan?
Við ættum þó líklega ekki að hlæja of dátt. Því sama
hvað við höldum verðum við, einn góðan veðurdag, flón
fortíðar. En hvað ætli það verði í fari okkar sem mun
vekja kátínu í bland við óhug með komandi kynslóðum?
Verður það skeggvöxtur karlmanna krúttkynslóðarinnar
sem líta út eins og fjöldaframleiddir tuskubangsar sem
erfitt er að þekkja í sundur? Verður það offjárfesting
okkar í vítamín-pillum sem sýnt er að geri lítið sem
ekkert gagn? Verða það ofhlaðnir skápar okkar af fatnaði
sem saumaður er af frelsissviptum börnum í Bangladess
með blóðuga fingur og tóma maga? Eða: verður það
meðferð okkar á mömmu hans Sölva Tryggvasonar?
Allt er sjötugum fært
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason greindi frá því í
vikunni að senn ætti móðir hans stórafmæli, hún væri að
verða sjötug. Móðir Sölva er kennari og starfar hjá hinu
opinbera. Sölvi sagði hana unga í anda, létta í spori og
elska vinnuna sína. En frá og með næsta vori fá nem-
endur ekki lengur að njóta leiðsagnar hennar og ákafa.
Mömmu Sölva langar ekki til að hætta að vinna. En
hún hefur ekkert um eigin örlög að segja. Því hún er
fórnarlamb lögbundinnar tímaskekkju sem kveður á
um að opinberir starfsmenn láti af störfum þegar þeir ná
sjötíu ára aldri.
Að reka fólk úr starfi vegna aldurs er mannvonska sem
hlýtur að jaðra við brot á jafnræðisreglu stjórnarskrár-
innar. Auðvitað á fólki að vera frjálst að láta af störfum
um sjötugt óski það þess. En að skylda fólk til að hætta
að vinna er æskudýrkun á sterum, fruntalegir fordómar
og mismunun sem ætti ekki að leyfast.
Eins og eftirfarandi dæmi sýna er sjötugt enginn aldur:
l Gladys Burrill frá Hawai hljóp sitt fyrsta maraþon
þegar hún var áttatíu og sex ára. Níutíu og tveggja ára sló
hún met er hún varð elst kvenna til að hlaupa maraþon.
l Þjóðverjinn Heinz Wenderoth var níutíu og sjö þegar
hann útskrifaðist með doktorsgráðu frá Háskólanum í
Hannover.
l Hollywood leikkonan Jessica Tandy var áttræð þegar
hún hlaut Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í kvikmyndinni
Driving Miss Daisy.
l Benjamín Franklín, stjórnmálafrömuður og einn
landsfeðra Bandaríkjanna, var sjötugur þegar hann
skrifaði undir sjálfstæðisyfirlýsinguna.
l Thor Vilhjálmsson var sjötíu og tveggja þegar hann
hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bók sína
Morgunþula í stráum.
l Málfríður Einarsdóttir frá Munaðarnesi var 78 ára er
hún gaf út fyrstu bók sína. Alls urðu bækur hennar sex.
l Bretinn Bertha Wood fékk fyrstu bók sína út gefna
þegar hún var hundrað ára.
l Barbara Hillary var fyrst svartra kvenna til að ganga
á Norðurpólinn. Hún var sjötíu og fimm ára. Þegar hún
var sjötíu og níu skellti hún sér á Suðurpólinn.
l Bandaríska myndlistarkonan Anna Mary Robertson
Moses, kölluð Grandma Moses, sem var í miklu uppá-
haldi m.a. hjá John F. Kennedy byrjaði ekki að mála fyrr
en hún var sjötíu og sex ára.
l Donald Trump er sjötugur (þótt meirihluti mannkyns
kysi líklega að honum yrði gert að setjast í helgan stein).
Sveigjanleg starfslok
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráð-
herra, segir að vinna sé hafin í ráðuneytinu við að
gera starfslok opinberra starfsmanna sveigjanlegri.
Óskandi er að sú vinna gangi hratt og örugglega fyrir
sig svo að mamma hans Sölva Tryggvasonar fái að
njóta góðs af henni.
Lögbundin tímaskekkja
#islenskaoperan · Miðasala: opera.is
HRÍFANDI UPPLIFUN
ÓPERA / LEIKRIT EFTIR POULENC & COCTEAU
TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA
LEIKGERÐ OG LEIKSTJÓRN:
BRYNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR
FLYTJENDUR AUÐUR GUNNARSDÓTTIR,
ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR OG
EVA ÞYRI HILMARSDÓTTIR
Áfengisfrumvarpið liggur enn einu sinni fyrir á Alþingi, og þykir nú líklegra en áður til að hljóta brautargengi.Samkvæmt frumvarpinu verður það í höndum sveitarstjórna að veita einkaað-
ilum leyfi til smásölu. Salan skal fara fram í afmörkuðum
rýmum og einungis frá 9 að morgni til 24 að kvöldi.
Áfengisauglýsingar verða sömuleiðis leyfðar.
Sem fyrr stendur styr um frumvarpið, og virðast þeir
sem mótfallnir eru í grófum dráttum skiptast í tvo hópa;
þá sem óttast að aukið aðgengi muni hafa neikvæð áhrif á
heilsu og hátterni landsmanna annars vegar, og hins vegar
þá sem telja að úrval, verðlag og þjónusta komi til með að
breytast til hins verra við brotthvarf vínverslana ÁTVR.
Þessir hópar virðast sammála í andstöðu sinni, en
ósammála innbyrðis um hvaða áhrif frjáls sala áfengis
komi til með að hafa, enda ætti hærra verðlag og minna
úrval samkvæmt öllum eðlilegum ályktunum að leiða til
minnkandi neyslu. Eða hvað?
Spurningin er því hvort fyrrnefndi hópurinn ætti ekki
fremur að beita sér fyrir því að núverandi fyrirkomulagi
verði breytt og aðgangur að áfengi takmarkaður enn
frekar, jafnvel að sala áfengis verði bönnuð með öllu?
Síðarnefndi hópurinn gæti þá barist fyrir því að ríkið taki
yfir aðra vinsæla neysluvöru, eins og sölu á fatnaði og
jafnvel matvöru líka, en samkvæmt þeirra hugmyndum
myndi slíkt leiða til stóraukins úrvals, bættrar þjónustu og
lægra verðs.
Raunar er það svo að hundalógík og hræsni er að finna
nánast hvert sem litið er við núverandi fyrirkomulag.
Verslanir ÁTVR sækja umboð sitt og hlutverk í lög, og
ber að búa til „umgjörð um smásölu áfengis sem byggist
á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð, að takmarka
og stýra aðgengi að áfengi og draga þannig úr skaðlegum
áhrifum áfengisneyslu“.
Verslanir ÁTVR eru 53 og hefur fjölgað um tæplega
fjörutíu prósent frá aldamótum. Varla telst slík fjölgun
umfram mannfjöldaþróun vænleg leið til að takmarka
aðgang að skaðvaldinum? Ótalið er framboð af áfengi á
veitingahúsum og börum. Aðgangur að áfengi er því sam-
bærilegur við það sem gerist annars staðar, þó að hér starfi
sérstök ríkiseinokunarverslun.
ÁTVR er líka bannað að auglýsa, en gerir það engu að
síður undir rós með yfirskini forvarna. Erlendir áfengis-
framleiðendur auglýsa sömuleiðis óáreittir, auk þess sem
netið gerir það að verkum að áfengisauglýsingar, beinar
og óbeinar, eru fyrir allra augum alla daga, þótt þær séu
bannaðar á blaði. Auglýsingabannið er því frauð eitt og
snertir einungis innlenda framleiðendur og heildsala, og
síðan náttúrulega innlendu fjölmiðlana sjálfa sem verða af
mikilvægum tekjum.
Ekki má þó loka augunum fyrir lýðheilsusjónarmiðum.
Engum blöðum er um það að fletta að áfengi er skaðvaldur
í lífi margra. Sannleikurinn er hins vegar sá að ÁTVR gegnir
engu raunverulegu hlutverki í því, eða við að bæta áfengis-
menningu landsmanna. Við ættum að geta tekið umræðu
um hvernig best er að haga umgjörð um áfengi í okkar
samfélagi án þess að ÁTVR sé þar upphaf alls og endir.
ÁTVR-laus umræða
1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r16 s k o ð U n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
SKOÐUN
1
1
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
7
-0
8
3
8
1
C
3
7
-0
6
F
C
1
C
3
7
-0
5
C
0
1
C
3
7
-0
4
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K