Fréttablaðið - 11.02.2017, Blaðsíða 86
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sveinbjörg V. Karlsdóttir
Langholti 8, Keflavík,
lést á Hrafnistu, Nesvöllum,
Reykjanesbæ, miðvikudaginn 8. febrúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
mánudaginn 13. febrúar kl. 13.
Guðrún Pétursdóttir
Ingunn S. Pétursdóttir Kristinn Sverrisson
Sævar Pétursson Matthildur Einarsdóttir
Bragi Guðmundsson Valgerður Þorvaldsdóttir
Pétur Pétursson Sigríður K. Steinarsdóttir
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Okkar ástkæra
Guðný Magnúsdóttir
Silfurgötu 9, Ísafirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
þann 3. febrúar. Útförin fer fram í
kyrrþey að hennar ósk.
Vilberg V. Vilbergsson
Rúnar Vilbergsson Tamila Gámez Garcell
Sara Vilbergsdóttir Gísli Guðmundsson
Bryndís Vilbergsdóttir Garðar Erlingsson
Svanhildur Vilbergsdóttir Hjörtur Svavarsson
Ylfa Mist, Viðar Hákon, Guðný, Vilberg, Bjartur Dagur,
Björg, Sólrún, Vilberg Samúel og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þorsteinn Elías Kristinsson
kennari í Keflavík,
lést á Hrafnistu, Nesvöllum,
sunnudaginn 5. febrúar. Útför hans fer
fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn
14. febrúar kl. 11.
Helga Þorkelsdóttir
Þorkell V. Þorsteinsson Lydia Jósafatsdóttir
Kristinn Á. Þorsteinsson
Elín Þ. Þorsteinsdóttir Gísli Willardsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkæra amma mín, stoð mín og
stytta, langamma og langalangamma,
Jóna Margrét Halldórsdóttir
Hrafnistu, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum 28. janúar.
Útför hennar fór fram 6. febrúar frá
Hafnarfjarðarkirkju í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug.
María Jóhannsdóttir Börkur Valdimarsson
Róbert Barkarson
Íris Barkardóttir Arnar Atli Sigurgíslason
Óliver Arnarsson
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Guðmundur Baldvinsson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Örnólfur Thorlacius
fyrrverandi rektor MH,
verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn
15. febrúar klukkan 11.00. Þeim sem
vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Sigurður Thorlacius Sif Eiríksdóttir
Arngrímur Thorlacius Elísabet Axelsdóttir
Birgir Thorlacius Rósa Jónsdóttir
Lárus Thorlacius Þóra Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Við danskennararnir hjá World Class
í Laugum ákváðum að taka höndum
saman og standa að viðburði til ágóða
fyrir börn í Sýrlandi. Þátttökugjald er
2.000 krónur og rennur beint til Uni-
Cef,“ segir friðrik Agni Árnason um 90
mínútna Zumbadanstíma sem hann og
kollegar hans í Laugum hafa skipulagt
á morgun, sunnudag, klukkan 12.30.
Hann kveðst hafa sett sig í samband við
UniCef og þar hafi þessu framtaki verið
fagnað.
friðrik segir einn sal í Laugum tekinn
undir dansinn og reiknar með að koma
þar inn 80 til 90 manns. „fyrstir koma,
fyrstir fá en við erum opin fyrir því að
endurtaka leikinn nokkrum sinnum á
ári ef við komum ekki öllum að núna og
höfum búið UniCef undir það.“
Mikill áhugi er fyrir dansinum, að
sögn friðriks. „Það eru margir sem ætla
að dansa. Tvö þúsund kall er heldur ekki
mikið til að sjá af. Það er nú bara það sem
margir gefa í safnanir. Með þessu móti
erum við virk í að gefa til góðgerðarstarfs
og komum sjálfum okkur á hreyfingu,“
bendir hann á.
„Öllum rennur til rifja að sjá myndir frá
Aleppo í Sýrlandi, sérstaklega af litlum
börnum. Margir deila þeim á samfélags-
miðlum og finna til samúðar,“ segir frið-
rik og kveðst hafa verið í þeim flokki.
„Mér fannst ég svo ráðalaus en þegar ég
fór að skoða mitt daglega líf betur þá sá
ég að það eru leiðir til að gera eitthvað í
málunum, þótt það sé ekki mikið. Mér
fannst ekki nóg að deila myndum á fés-
bók og sendi því skeyti á alla danskennar-
ana í World Class og sagði að þarna væri
tækifæri fyrir okkur til að gera eitthvað
saman, þeir voru hjartanlega sammála.“
Hann segir hugmyndina þá að dansa
fyrir lífi barna sem nú líða skort og hörm-
ungar en eigi vonandi framtíðina fyrir sér
og dreifa um leið jákvæðni og gleði út í
stríðshrjáðan heim. „Það er þess virði,“
segir hann. „Og margt smátt gerir að
lokum eitt stórt.“
friðrik getur þess að allir sem mæti í
dansinn fái gjafapoka með Dr. Organic
vörum. gun@frettabladid.is
Ætla að dansa fyrir lífið
Zumbakennarar í World Class í Laugum ætla að leiða 90 mínútna dansgleðitíma í hádeg-
inu á morgun til styrktar UNICEF og verkefni þeirra í Sýrlandi. Pláss er fyrir 80-90 manns.
Friðrik Agni og aðrir danskennarar í World Class í Laugum í góðum gír. FréttAbLAðið/Anton brink
1411 Fyrsti friðarsamningurinn í Thorn milli Pólverja og Litháa
annars vegar og Þýsku riddaranna hins vegar.
1752 Fyrsta sjúkrahús Bandaríkjanna, Pennsylvania Hospital, er
opnað.
1814 Noregur lýsir formlega yfir sjálfstæði og þar með eru dagar
Dansk-norska ríkisins á enda.
1961 Réttarhöld yfir Adolf Eichmann hefjast í Jerúsalem.
1964 Bardagar á milli Grikkja og Tyrkja brjótast útí Limassol á
Kýpur.
1973 Sjónvarpið frumsýnir kvikmyndina Brekkukotsannál sem
gerð var eftir samnefndri sögu Halldórs Laxness.
1990 Nelson Mandela sleppt úr fangelsi í Suður-Afríku eftir að
hafa verið pólitískur fangi í 27 ár.
2011 Arabíska vorið: Hosni Mubarak Egyptalandsforseti hrökklast
frá völdum eftir margra daga fjölmenn mótmæli.
Merkisatburðir
1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r38 t í m a m ó t ∙ f r É t t a b L a ð i ð
tímamót
1
1
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
7
-3
E
8
8
1
C
3
7
-3
D
4
C
1
C
3
7
-3
C
1
0
1
C
3
7
-3
A
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K