Fréttablaðið - 11.02.2017, Side 106
„Það er mjög erfitt fyrir okkur að
gefa þér nokkur svör um hvernig
barneignir fræga fólksins í útlönd-
um eru til komnar. Ég geng út frá
því að þrátt fyrir frægðina hrærist í
þessu fólki svipaðar tilfinningar og
í okkur hinum. Samkvæmt reynslu
minni þýðir það að barneignir eru
eitthvað sem fólk þráir heitt og eru
kjarninn í lífi flestra. Það er vel þekkt
að aldur kvenna hefur mikil áhrif á
möguleika þeirra til þess að eignast
börn og eftir fertugt fer róðurinn að
verða þungur. Í hópi fræga fólksins
er trúlegt að margar konur fresti
barneignum sínum svo lengi að þær
þurfi á endanum hjálp með tækni-
frjóvgun. Ef börnin hafa orðið til
með aðstoð tæknifrjóvgunar er það
yfirleitt merki um að vandamál hafi
verið til staðar en ekki að um ein-
hvers konar „fjölburapöntun“ sé að
ræða," segir Snorri Einarsson, fæð-
inga-, kvensjúkdóma- og ófrjósemis-
læknir hjá IVF Klíníkinni Reykjavík,
spurður hvort það sé líklegt að fræga
fólkið fari í tæknifrjóvgun eða glasa-
frjóvgun til þess að reyna að eignast
tvíbura eða þríbura.
„Mér finnst að þá krísu og þær
erfiðu tilfinningar sem fylgja barn-
leysi eigi að virða og ekki setja það
fram sem eitthvað óeðlilegt ef fólk
hefur þurft að leita sér læknishjálpar
vegna þess. Frekar að samgleðjast og
fagna þessum nýju mannverum sem
eru svo hjartanlega velkomnar og
foreldrarnir eru væntanlega búin að
bíða lengi eftir,“ segir Snorri.
Fjölburabylgja
í Hollywood
George og Amal Clooney eiga von á tvíbur
um. Frá þessu greindu fjölmiðlar vestan
hafs í vikunni. Fræga fólkið virðist eiga
auðveldara með að eignast tvíbura heldur
en aðrir. Lífið heyrði í Snorra Einarssyni,
fæðinga og ófrjósemislækni hjá IVF Klíníkinni
Reykjavík, og grennslaðist fyrir um málið.
Leikkonan Sarah Jessica Parker
og eiginmaður hennar, Matthew
Broderick, eignuðust tvíbura
stelpurnar Marion Lorettu
Elwell and Tabithu Hodge Brod
erick í júní 2009 með aðstoð
staðgöngumóður.
Guðrún Jóna
Stefánsdóttir
gudrunjona@frettabladid.is
George Clooney
og Amal Clooney eiga
von á tvíburum í júní. Hjónin
hafa verið áberandi á sínum
sviðum undanfarin ár. George
Clooney er fimmtíu og fimm ára
gamall og Amal Clooney
er þrjátíu og níu ára.
nordiCPHoToS/GETTy
Pharrell Williams
og eiginkona hans,
Helen Lasichanh,
eignuðust þríbura
31. janúar.
Söngkonan Mariah Carey og
leikarinn nick Cannon eign uðust
tvíbura á þriggja ára brúðkaups
afmæli sínu 30. apríl.
Jennifer Lopez og fyrri eiginmaður
hennar, Marc Anthony, eignuðust
tvíbura í febrúar 2008 og skírðu þau
Max og Emme.
Stjörnuparið Beyoncé Knowles og Jay Z eiga
von á tvíburum á árinu, Engin mynd á instagram
hefur fengið jafn mörg „like“ og þegar Beyoncé
tilkynnti að hún ætti von á sér.
Angelina Jolie og Brad
Pitt eignuðust tvíbuarana
Vivienne og Knox þegar
allt lék í lyndi júlí 2008.
Söngvarinn vin
sæli og Miamibú
inn ricky Martin
eignaðist tvíbuara
strákana Matteo
og Valentino í
ágúst 2008.
1 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r58 L í f i ð ∙ f r É T T a b L a ð i ð
Lífið
1
1
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
7
-4
3
7
8
1
C
3
7
-4
2
3
C
1
C
3
7
-4
1
0
0
1
C
3
7
-3
F
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K