Fréttablaðið - 09.03.2017, Qupperneq 6
Fitul’til og
pr—teinr’k . . .
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
StjórnSýSla Fiskistofa greiðir tugi
milljóna í biðlaun vegna samninga
sem voru gerðir við starfsmenn
þegar þeir létu af störfum við flutn-
ing stofnunarinnar frá Hafnarfirði
til Akureyrar í ársbyrjun 2016.
Tveir starfsmenn, sem Fréttablaðið
ræddi við og voru báðir millistjórn-
endur hjá stofnuninni, fá hvor
um sig greidd laun í heilt ár vegna
starfslokanna. Þeir áætla að kostn-
aður stofnunarinnar vegna launa og
launatengdra gjalda sé samtals um
25 milljónir króna.
„Við erum ekki búin að taka
saman alla kostnaðarliði en í
þessu róti í kringum þetta þá var
náttúrlega fólk sem sá fram á að
það væri að missa vinnuna og það
voru fundnar leiðir til að lenda því
mjúklega. Hvort sem það heitir
starfslokasamningar eða annað þá
var reynt að gera það á mannlegan
hátt,“ segir Eyþór Björnsson fiski-
stofustjóri.
Eyþór segir að ellefu manns hafi
látið af störfum beinlínis vegna
flutninga stofnunarinnar. Hann
segir að ekki hafi allir fengið
greiðslur vegna starfsloka og þeir
sem fengu greiðslur hafi fengið mis-
jafnlega mikið. Það hafi farið eftir
starfslokarétti.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá
því í júní síðastliðnum um flutning
ríkisstarfsemi milli landshluta segir
að Ríkisendurskoðun telji ekki
tímabært að meta framkvæmd,
ávinning og árangur af flutningi
höfuðstöðva Fiskistofu til Akureyr-
ar. Áhrif flutningsins séu ekki enn
að fullu komin í ljós. „Samkvæmt
mati fiskistofustjóra verður mögu-
legt að meta áhrif flutninganna á
seinni hluta árs 2017 eða fyrri hluta
árs 2018 þó að þeim verði ekki að
fullu lokið. Áhrif fyrstu skrefanna
eru þó að einhverju leyti komin
fram og tilefni er til að skoða nánar
aðdraganda og undirbúning flutn-
inganna,“ segir í skýrslunni.
Þar kemur líka fram að í fjárlög-
um ársins 2015 voru 130 milljónir
króna veittar til flutningsins. Eyþór
segist ekki geta sagt til um hvort
kostnaðurinn verði umfram það.
Verið sé að hefja vinnu við að taka
saman kostnaðinn sem til fellur.
Skýrslan verði síðar kynnt, meðal
annars sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra.
jonhakon@frettabladid.is
Greiða tugi milljóna vegna uppsagna
Kostnaður Fiskistofu vegna uppsagna sem tengdust flutningi stofnunarinnar til Akureyrar nemur tugum milljóna. Stofnunin greiðir
tvær milljónir króna á mánuði fyrir húsnæði í Hafnarfirði sem stendur autt. Ríkisendurskoðun bíður með að fjalla um flutninginn.
Tvær milljónir
fyrir tómt húsnæði
Fiskistofa greiðir um tvær
milljónir króna á mánuði vegna
hæðar í Dalshrauni í Hafnarfirði.
Leigusamningurinn er bindandi
út árið 2025.
„Þetta eru á bilinu 700 til 750
fermetrar sem eru tómir núna
og við erum lítið sem ekkert að
nota og gætum tæmt. Það er
enginn starfsmaður þar með
starfsaðstöðu en við erum að
nýta fundarherbergið á meðan
enginn annar er að nýta þetta,“
segir hann.
Gasi varpað á bændur
Grískir bændur mótmæltu háum sköttum fyrir utan skrifstofur landbúnaðarráðuneytis landsins í höfuðborginni Aþenu í gær. Til átaka kom á milli
bænda og lögreglu er óeirðalögreglumenn vörpuðu táragasi á mótmælendur. Tveir mótmælendur voru handteknir. Nordicphotos/AFp
Hvort sem það
heitir starfsloka-
samningar eða annað þá var
reynt að gera það
á mannlegan
hátt.
Eyþór Björnsson,
fiskistofustjóri
tækni Samfélagsmiðillinn Pinterest
hefur fest kaup á sprotafyrirtækinu
Jelly. Frá þessu greindi Techcrunch
í gær.
Jelly er leitarvél sem byggir ein-
göngu á mannlegum svörum. Geta
notendur sett fram spurningu á
miðlinum sem aðrir notendur svara.
Í viðtali við stofnendur Jelly, þá Biz
Stone og Ben Finkel, lýstu þeir Jelly
sem „leitarvél sem gengur fyrir
mannafli“.
Pinterest er metið á ellefu millj-
arða bandaríkjadala, andvirði um
1,2 billjóna króna. Verðmat á Jelly
hefur ekki verið gert opinbert, né
heldur kaupverðið sem Pinterest
greiddi.
Þó hefur listi yfir aðila sem fjár-
fest hafa í sprotafyrirtækinu verið
opinberaður. Á meðal þeirra eru Al
Gore, fyrrverandi varaforseti Banda-
ríkjanna, og Jack Dorsey, stofnandi
og forstjóri Twitter. – þea
Pinterest kaupir
leitarvélina Jelly
Jelly er nú í eigu pinterest. MyNd/Jelly
Al Gore og Jack Dorsey
eru á meðal þeirra sem hafa
fjárfest í Jelly.
9 . m a r S 2 0 1 7 F i m m t U D a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
0
9
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
9
-A
F
5
4
1
C
6
9
-A
E
1
8
1
C
6
9
-A
C
D
C
1
C
6
9
-A
B
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K