Fréttablaðið - 09.03.2017, Blaðsíða 32
Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457
Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Sigga Soffia hefur haldið úti óvenjulegu tískubloggi á Instagrami sínu, siggasoffia
inc, en það er „minnst lesna tísku
blogg íslands“ að hennar sögn.
„Ég tískubloggaði fyrir vestan í
sumar og þarf klárlega að halda því
áfram,“ segir Sigga Soffía sem er
eigandi fyrirtækisins Níelsdætra en
fyrirtækið framleiðir verk Sigríðar
Soffíu, allt frá danssýningum til
flugeldasýninga.
Hún segist spá töluvert í tísku.
„Ég er alltaf að átta mig betur á því
hvað tíska getur skipt miklu máli til
dæmis í því að koma mikilvægum
málefnum í kastljósið. Svo margir
hafa áhuga á tísku og það er oft
ástæða þess að fólk skoðar og fær
áhuga á einhverju nýju í framhaldi,“
segir Sigga Soffía en hún fylgist
mikið með skúlptúrískri tísku og
myndlist sem nýtist skapandi vinnu
í sýningum, til dæmis þegar verið er
að gera „moodboard“ fyrir búninga.
Velur föt eftir tilefni
Hún segist elska föt með fallega
hreyfingu, eða úr áhugaverðum
efnum. „Ég vel föt mikið eftir tilefni.
Ef ég er nálægt flugeldum er gott
að vera í gallafötum því þau eru
tregbrennanleg. Flest sem ég fer í er
þeim kostum búið að ég get dansað
í því. Víðar buxur, stuttbuxur.
Stundum er ég að fela það að ég er
í æfingafötum með því að vera í
kápu yfir íþróttafötum með varalit
og loðhúfu … jafnvel í hælum, með
veski. Það er ekki gott lúkk,“ segir
hún glettin.
Hún segist klæðast mikið fötum
úr ull. „Það er alltaf kalt hér á þess
ari eyju, sumar sem vetur! Ég kann
að meta víð föt, og gaman þegar
mörg munstur og margir litir koma
saman,“ segir hún og bætir glaðlega
við að systir hennar fari í skápinn
hennar þegar hana vanti grímu
búning.
Innt eftir uppáhaldsflík er hún
fljót til svars. „Svartur fjaðrajakki
sem Hildur Yeoman hönnuður
hannaði fyrir danssýninguna Svart
ar fjaðrir sem ég gerði 2014 í Þjóð
leikhúsinu. Hún Hildur Yeoman er
afar hæfileikaríkur hönnuður en
hún hannaði líka rauða búninginn
sem ég dansa í í FUBAR,“ segir Sigga
Soffía en nefnir einnig loðhúfuna
sína og kraftgallann.
En hefur hún einhvern veikleika
þegar kemur að tísku og útliti?
„Sundföt. Þau eyðast svo hratt að
maður er alltaf að kaupa ný. Ég er
með biggorexíu þegar það kemur
að loðhúfum, ég er að vona að ég sé
búin að toppa þar núna, og ég elska
samfestinga.“
Ömmurnar tískufyrirmyndir
Þegar kemur að tískufyrirmyndum
nefnir Sigga Soffía ömmur sínar.
„Ég nota mikið af kjólum frá þeim
báðum. Föt frá þeim tíma eru oft
úr svo fallegum efnum og svo mikil
alúð lögð í gerð þeirra. Þá var þessi
hörmulegi einnota lífsstíll sem
einkennir okkar tíma ekki við lýði.
Ég nota líka mikið af kjólum og
skyrtum frá systrum ömmu minnar,
Níelsdætrum, sem fyrirtækið mitt
er nefnt eftir.“
Hún segist einnig elska búninga
í gömlum ballettum, og búninga úr
gömlum dans og söngvamyndum.
„Gulu sixtísfötin sem Vera Ellen
steppdansari klæddist oft eru æðis
leg. Svo ég held að ég hrífist meira
af tímabili heldur en ákveðnum
einstaklingi.“
Flytur dansinn út á land
Ýmislegt skemmtilegt er fram
undan hjá Siggu Soffíu. „Ég er að
dansa úti um allt land. Ég hlakka
mikið til helgarinnar en við erum
að sýna FUBAR í Samkomuhúsinu á
Akureyri á föstudaginn klukkan 20.
Dansnemendur fá afar ódýran miða
svo ég vona að ég sjái sem flesta
dansáhugadrengi og stúlkur,“ segir
Sigríður Soffía í verkinu FUBAR sem hún setur upp ásamt tónlistarmanninum Jónasi Sen. Þau flytja FUBAR í sam-
komuhúsinu á Akureyri á föstudaginn en styrktaraðilar sýningarinnar eru Vodafone, Flugfélag Íslands, Reykjavíkur-
borg og Menningarsjóður VÍB. Búningurinn er hannaður af Hildi Yeoman. MYndIR/MARInÓ THoRlAcIUS
Sigga Soffía
kann vel við sig í
kuldagöllum og
elskar loðhúfur,
því stærri því
betri. Hér er
hún með dóttur
sinni, Ísold
Freyju, á góðri
stund á Vest-
fjörðum.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
Flest sem ég fer í er
þeim kostum búið
að ég get dansað í því.
hún, en Sigga Soffía spáir mikið í
menningarmál barna á landsbyggð
inni og að koma dansi út á land. „Ég
er lengi búin að ætla að fara í dans
krossferð um landið og tókst það
nú í ár. Mér finnst afar mikilvægt
að krakkar sem alast upp úti á landi
sjái að starfsferill sem dansari eða
sjálfstætt starfandi listamaður sé
raunverulegur kostur. Börn í minni
plássum hafa stundum takmörkuð
tækifæri til að stunda listnám og þá
sérstaklega þegar kemur að dansi.
Það hefur verið ótrúlega skemmti
legt að sýna samtímadans fyrir
krakka bæði á Egilsstöðum, Ísafirði
og í Borgarnesi. Og það hefur verið
sérstaklega dýrmætt að margir
þessara krakka hafa haft samband
við mig gegnum Facebook og beðið
um ráðleggingar um dansnám,“
upplýsir hún.
Á laugardaginn flytur Sigga
Soffía svo fyrirlestur um verkið
Svartar fjaðrir sem hún samdi og
var opnunarsviðsverk Listahátíðar
2014. Dansverk byggt á ljóðum
Davíðs Stefánssonar. Fyrirlesturinn
er í Davíðshúsi klukkan 14. Þá sýnir
hún í Tjarnarborg í Fjallabyggð kl.
18 sunnudaginn 12. mars.
Framhald af forsíðu ➛
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Nýjar vörur í hverri viku
Sundfatnaður stærðir 36 - 56
#Anita #Miraclesuit #Speedo
Save the Children á Íslandi
2 KYnnInGARBlAÐ FÓlK 9 . m a r S 2 0 1 7 F I M MT U dAG U R
0
9
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
9
-C
8
0
4
1
C
6
9
-C
6
C
8
1
C
6
9
-C
5
8
C
1
C
6
9
-C
4
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K