Fréttablaðið - 09.03.2017, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 09.03.2017, Blaðsíða 8
Krónan mælir með! 249 kr.kg Ferskur ananas, Kosta Ríka PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 70 23 8 20–25% afsláttur af öllum barnavörum hjá Lyfjum & heilsu. Barnadagar BANDARÍKIN Bandaríska leyniþjón- ustan CIA vissi af öryggisgöllum í fjölda snjalltækja en gerði framleið- endum ekki viðvart heldur nýtti sér þá til að njósna um eigendur tækj- anna. Tæknin er nú ekki aðeins í höndum leyniþjónustunnar. Þetta er meðal þess sem lesa má úr Vault 7, nýjasta gagnaleka Wiki- Leaks. Samtökin halda því fram að þau hafi fengið gögnin send frá verktaka sem starfaði eitt sinn fyrir leyniþjónustuna. CIA hefur neitað að tjá sig um málið á meðan kannað er hvort gögnin innihaldi réttar upplýsingar. Utanaðkomandi sér- fræðingar segja hins vegar ýmislegt benda til þess að svo sé. Opinber rannsókn á birtingu gagnanna er þó hafin. Greindi CNN frá því í gær eftir heimildum sínum innan úr leyniþjónustum Banda- ríkjanna. Standa bæði alríkislög- reglan FBI  og CIA sömuleiðis að rannsókninni. Meðal þess sem finna má í gögn- unum eru tæki sem CIA hefur notað til að stela gögnum úr iPhone-snjall- símum og önnur sem eru notuð til að taka yfir tölvur frá Microsoft. Enn önnur voru notuð til að breyta Sam- sung-snjallsjónvörpum í hlerunar- tæki og þá virðist leyniþjónustan hafa þróað búnað ætlaðan til að taka yfir tölvur bifreiða. Tæknirisar heimsins brugðust við lekanum með því að senda frá sér yfirlýsingar um efnið. Í yfirlýsingu Apple sagði að fyrirtækið hefði nú þegar lokað fyrir fjölda galla sem nefndir eru í lekanum. Þá ítrekaði fyrirtækið að notendur væru ávallt með nýjustu útgáfu stýrikerfanna í tækjum sínum. „Að verja einkalíf notenda er helsta forgangsmál okkar. Við vitum af göllunum og erum að vinna í að lagfæra þá eins hratt og unnt er,“ sagði í yfirlýsingu Sam- sung. Microsoft tók í sama streng. Google hefur hingað til neitað að svara fyrir galla í Android-stýri- kerfinu. „Hver sá sem heldur að mál Chel- sea Manning og Edwards Snowden hafi verið einsdæmi hefur rangt fyrir sér,“ segir Joel Brenner, fyrr- verandi yfirmaður gagnnjósna Bandaríkjanna. Fjögur ár eru liðin síðan WikiLeaks sendi frá sér gögn Edwards Snowden. Sá leki hafði mikil áhrif á samstarf Bandaríkja- stjórnar og Kísildalsins. Líklegt þykir að lekinn nú geti haft svipuð áhrif. johannoli@frettabladid.is Rannsaka lekann til WikiLeaks Gögn frá WikiLeaks, Vault 7, benda til þess að leyniþjónusta Bandaríkjanna nýti sér öryggisgalla í snjall- tækjum til að fylgjast með notendum. CIA vill ekki svara fyrir lekann. FBI leitar að uppruna lekans. Samsung-sjónvörpum hefur verið breytt þannig að hægt sé að nota þau til að hlera samtöl. NordicphotoS/Getty SAmfélAg „Við erum að skoða þræði sem við getum unnið úr, það er eins og liggur í augum uppi erfitt að átta sig á fjölda dreifinga,“ segir Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kyn- ferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, um rannsókn á dreifingu myndbands sem var tekið upp á skemmtistaðnum Austri fyrir rúmri viku. Á myndbandinu mátti sjá par hafa samfarir á opnum klósettbás á skemmtistaðnum og fór það síðar í mikla dreifingu á internetinu og var hún kærð. „Kæran beinist gegn því að þarna hafi efni verið dreift án vit- undar og samþykkis,“ segir Árni Þór. Hann vildi ekki tjá sig um það hvort einhver hefði verið handtekinn eða yfirheyrður vegna málsins. Árni Þór segir að það muni ekki skýrast fyrr en rannsókn málsins er lokið hvaða lagaákvæði eiga við í málinu. – bo Erfitt að átta sig á dreifingu kynlífsmyndbandsins frá Austri mAltA Þekktasti ferðamannastaður Möltu, Azure-glugginn svokallaði, glæsilegur steinbogi, hrundi í sjóinn í gær. Forsætisráðherra Möltu segir að fregnirnar séu „átakanlegar“ sam- kvæmt frétt BBC. Veður hefur verið slæmt undan- farna daga á Möltu og segja sjónar- vottar frá því að steinboginn hafi hrunið í heilu lagi í miklum öldu- gangi. Varað hefur við því að veðrun og landrof myndi sverfa að stein- boganum þótt niðurstöður skýrslu frá árinu 2014 gæfu til kynna að steinboginn myndi þola áganginn í nánustu framtíð. Staðurinn er afar vinsæll ferða- mannastaður, ekki síst eftir að steinboganum brá fyrir í Game of Thrones þáttunum vinsælu. Yfir- völd á Möltu höfðu reynt hvað þau gátu til þess að minnka ágang ferða- manna á steinbogann og voru lagðar sektir við því að ganga yfir hann, án teljandi árangurs, en vinsælt var að stökkva af steinboganum í sjóinn. Heimamenn flykktust að eftir að fregnir bárust af því að steinboginn væri horfinn um aldur og ævi og sagði ráðherrann Anton Refalo að hvarf steinbogans væri líkt því að „missa hluta af sjálfum sér“. – tpt Glugginn hvarf í hafið Azure-glugginn eins og hann leit út. NordicphotoS/AFp AfgANIStAN Fleiri en þrjátíu létu lífið þegar árásarmenn, klæddir sem læknar, réðust á stærsta herspítala Kabúl, höfuðborgar Afganistans, í gær. Yfirvöld þar í landi greindu frá árásinni í gær. Voru árásarmennirnir vopnaðir skotvopnum og handsprengjum. Sprengdu þeir upp hlið að spítal- anum áður en þeir hófu skothríð á starfsfólk og sjúklinga. Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki lýstu yfir ábyrgð á árásinni. Talíbanar hafa neitað ábyrgð. Rúmlega fimmtíu særðust í árásinni. – þea Mannskæð árás á sjúkrahús 9 . m A R S 2 0 1 7 f I m m t U D A g U R8 f R é t t I R ∙ f R é t t A B l A ð I ð 0 9 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 9 -C 3 1 4 1 C 6 9 -C 1 D 8 1 C 6 9 -C 0 9 C 1 C 6 9 -B F 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 7 2 s _ 8 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.