Fréttablaðið - 09.03.2017, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 09.03.2017, Blaðsíða 44
Grindavík - Njarðvík 73-72 Stigahæstar: Angela Marie Rodriguez 21/8 stoðsendingar, María Ben Erlingsdóttir 19/12 fráköst - Carmen Tyson-Thomas 46/20 fráköst, Björk Gunnarsdótir 9. Keflavík - Skallagr. 72-51 Stigahæstar: Ariana Moorer 21/11 fráköst, Birna Valgerður Benónýsdóttir 10/5 fráköst - Tavelyn Tillman 22/4 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 9/8 fráköst. Stjarnan - Valur 72-68 Stigahæstar: Danielle Victoria Rodriguez 31/8 stoðsendingar, Bríet Sif Hinriksdóttir 23 - Mia Loyd 24/17 fráköst, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 11/4 varin skot. Haukar - Snæfell 60-75 Stigahæstar: Þóra Kristín Jónsdóttir 19/7 fráköst/5 stolnir, Rósa Björk Pétursdóttir 13/7 fráköst - Aaryn Ellenberg 26/6 stoð- sendingar, Bryndís Guðmundsdóttir 13. Efri Snæfell 40 Keflavík 38 Skallagrím. 36 Stjarnan 26 Neðri Valur 20 Njarðvík 20 Haukar 12 Grindavík 8 Nýjast Domino’s-deild kvenna Dortmund - Benfica 4-0 1-0 Pierre-Emerick Aubameyang (4.), 2-0 Christian Pulisic (59.), 3-0 Aubameyang (61.), 4-0 Aubameyang (85.). Dortmund komst áfram, 4-1 samanlagt. Barcelona - PSG 6-1 1-0 Luis Suárez (3.), Layvin Kurzawa, sjálfs- mark (40.), 3-1 Lionel Messi, víti (50.), 3-1 Edinson Cavani (62.), 4-1 Neymar (88.), 5-1 Neymar, víti (90+1.), 6-1 Sergi Roberto (90+5.). Barcelona komst áfram, 6-5 samanlagt. Meistaradeild Evrópu 16-liða úrslit, seinni leikir 17.55 Rostov - Man. Utd. Sport 3 17.55 FCK - Ajax Sport 5 19.00 Valspar Ch. Golfstöðin 19.00 Slaktaumatölt T2 Sport 19.00 Þór Þ. - Njarðvík Sport 2 19.05 ÍR - Keflavík Sport 4 20.00 Schalke - Gladbach Sport 3 20.00 Lyon - Roma Sport 5 Domino’s-deild karla: 19.15 ÍR - Keflavík Seljaskóli 19.15 Þór Ak. - Snæfell Höllin 19.15 KR - Stjarnan DHL-höllin 19.15 Haukar - Tindast. Ásvellir 19.15 Grindav. - Skallagr. Grindav. 19.15 Þór Þ. - Njarðvík IG-höllin Olísdeild karla: 18.30 ÍBV - FH Vestmannaeyjar 19.30 Stjarnan - Fram TM-höllin 19.30 Selfoss - Afturelding Selfoss Í dag Fh getur Farið á toppinn Þrír leikir fara fram í olís-deild karla í kvöld. Fh getur skotist á toppinn með sigri á ÍBV í eyjum. afturelding, sem hefur ekki unnið leik eftir áramót, sækir Selfoss heim. Þá mætast Stjarnan og Fram í afar mikil- vægum leik í fallbaráttunni. Fram, sem var nálægt því að vinna hauka í síðustu umferð, fer upp úr fallsæti og jafnar Stjörnuna að stigum með sigri í kvöld. Kraftaverk á Nývangi Stórskostleg endurkoma Barcelona er komið áfram í 8 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir sögulega endurkomu gegn PSG. Frönsku meistar- arnir unnu fyrri leikinn 4-0 en Börsungar gerðu hið ómögulega, skoruðu sex mörk gegn einu og tryggðu sig áfram. Þegar tvær mínútur voru eftir var staðan 3-1 en Barcelona skoraði þrjú mörk á ótrúlegum lokamínútum. Sergio Roberto skoraði sjötta og síðasta markið. NORDiCPHOTOS/GETTy Afrekssjóður Vinnuhópur sem framkvæmdastjórn ÍSÍ skipaði í september á síðasta ári skilaði af sér skýrslu með tillögum um breytingar á reglum afrekssjóðs ÍSÍ í vikunni. Skýrslan var kynnt fyrir formönn- um sérsambandanna í fyrradag og fyrir fjölmiðlum í gær. Vinnuhópinn skipuðu Stefán Konráðsson, formaður Íþrótta- nefndar ríkisins og fyrrverandi framkvæmdastjóri ÍSÍ, dr. Þórdís Lilja gísladóttir, íþróttafræðingur og fyrrverandi afrekskona í frjáls- íþróttum, Friðrik einarsson, fyrrver- andi formaður afreks- og Ólympíu- sviðs ÍSÍ og fyrrverandi formaður Skíðasambands Íslands, og andri Stefánsson, sviðsstjóri afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ. Stærsta breytingin, verði tillög- urnar samþykktar á íþróttaþingi í maí, er sú að vinnuhópurinn vill að sérsamböndunum 32 verði skipt upp í þrjá flokka. Setja sér langtímamarkmið Í skýrslu vinnuhópsins skipa átta sérsambönd efsta flokkinn sem kallast afrekssambönd og tólf eru í flokknum alþjóðleg sambönd og önnur tólf í flokknum Þróunarsam- bönd. efsti flokkurinn á að fá 45-70 prósent af hverri úthlutun, alþjóð- legu samböndin 35-45 og neðsti flokkurinn 10-15 prósent. Langmestu kröfurnar verða gerðar til þeirra sambanda sem eru í efsta flokknum og eiga að fá mesta peninga. Stefnt er á að þau sæki um styrki til fjögurra ára í einu því mikil orka og vinna fer í umsóknina hverju sinni. Sérsamböndin í miðflokknum sækja um til tveggja ára í einu og neðsti flokkurinn til eins árs. Öll sambönd eiga að vera með sína afreksstefnu og eins og í öðru í skýrslunni eru mestar kröfur gerðar til afrekssambandanna. gildistími stefnu þeirra á að vera til átta ára, fjögurra í næsta flokki og til tveggja ára í síðasta flokknum. Stefán Konráðsson, sem kynnti skýrsluna fyrir fjölmiðlum í gær, sagði að eftir að hafa skoðað afreks- stefnu allra sérsambandanna hafi komið í ljós að hún væri óraunhæf hjá þeim mörgum. Sum sérsam- bönd eru með háleit markmið en hafa ekki bolmagn til að ná þeim árangri sem þau vonast til og þetta þarf að laga. Vinnuhópurinn vill að sérsam- böndin og afrekssjóðurinn vinni saman að því að laga afreksstefnu sérsambandanna en sums staðar þurfi að hófstilla hana. Verða að hafa pung Vinnuhópurinn leggur til að hvert sérsamband fái lögfræðing til að fara yfir sinn samning og að meira aðhald og eftirfylgni verði með peningunum en áður. Þar sem meiri kröfur verði gerðar til sér- sambandanna verður afrekssjóður að gera meiri kröfur til sjálfs sín og það þýðir einfaldlega að meiri vinna leggst á herðar ÍSÍ. reglurnar eru að stórum hluta settar til fækka matsatriðum afreks- sjóðs þegar kemur að úthlutun en þessi vinnuhópur var skipaður vegna gríðarlega aukinna fjármuna sjóðsins á næstu árum. eftir tíma- mótasamning við mennta- og menn- ingamálaráðuneytið hækkar framlag ríkisins í sjóðinn úr 100 milljónum í 400 milljónir frá 2016-2019. gegnsæið verður meira en áður en tillaga vinnuhópsins er að sjóð- urinn verði með heimasíðu þar sem hver einasta úthlutun er rökstudd á opnum vettvangi. aðhaldið verður meira og matsatriðum fækkar en sjóðsstjórn verður samt alltaf að taka erfiðar ákvarðanir. „Sjóðsstjórn verður að hafa pung til að taka ákvarðanir og standa við þær en rökstyðja gegnsætt,“ sagði Stefán Konráðsson á fundinum í gær. Ítarlega fréttaskýringu um reglubreytingarnar sjóðsins má finna á Vísi. tomas@365.is Meiri kröfur til sérsambanda Tillögur um breytingar á reglum Afrekssjóðs voru kynntar í gær. Sérsamböndunum 32 verður skipt í þrjá flokka því þau sem gera mest eiga að fá mest. Meiri fagmennska þarf að vera hjá öllum sérsamböndum ÍSÍ. Andri Stefánsson, Þórdís Gísladóttir og Stefán Konráðsson, starfsmenn vinnuhópsins, með skýrsluna sem þau unnu fyrir ÍSÍ. FRéTTABLAðið/EyÞóR Tillaga að flokkaskipt- ingu vinnuhópsins: Afrekssambönd Frjálsíþróttir, fimleikar, golf, hand- bolti, körfubolti, kraftlyftingar, fótbolti, sund. Alþjóðleg sambönd Blak, badminton, dans, fatlaðir, íshokkí, júdó, karate, keila, hestar, skíði, skylmingar, skotfimi. Þróunarsambönd Akstursíþróttir, borðtennis, glíma, lyftingar, tennis, taekwondo, skautar, mótorhjól og snjósleðar, siglingar, hnefaleikar, þríþraut, hjólreiðar. Man. City - Stoke 0-0 Enska úrvalsdeildin 9 . m A r s 2 0 1 7 f I m m T u D A G u r32 s p o r T ∙ f r É T T A B L A ð I ð sport 0 9 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 9 -E 0 B 4 1 C 6 9 -D F 7 8 1 C 6 9 -D E 3 C 1 C 6 9 -D D 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 8 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.