Fréttablaðið - 09.03.2017, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 09.03.2017, Blaðsíða 58
Bíó Logan HHHHH Leikstjóri: James Mangold Framleiðendur: Hutch Parker, Lauren Shuler Donner Handrit: Scott Frank, James Man- gold, Michael Green Aðalhlutverk: Hugh Jackman, Pat- rick Stewart, Dafne Keen Eftir því sem ofurhetjumyndum hefur fjölgað í gegnum árin hafa þær óneitanlega, kannski óhjá- kvæmilega, dottið í vissar formúlur sem farnar eru að plaga þær. Borgir eyðileggjast, tölvubrellur drekkja nær öllu á skjánum, fræjum er stráð fyrir komandi kafla og stöðugt verð- ur erfiðara að bjóða upp á ferskleika svo áhorfendur þreytist ekki á geir- anum. Verst er samt hvað oft getur verið erfitt að trekkja upp spennu þegar ósigrandi fólk í þröngum búningum eltist sífellt við það að koma í veg fyrir heimsenda. Serían um stökkbreyttu X-menn- ina hefur bæði átt sína slæmu daga og góðu á þeim 17 árum sem hún hefur verið í gangi, en með Logan er breytt algjörlega um tón og stíl, hún er frábrugðin allflestu sem hefur einkennt myndasögumyndir síðustu áraraða. Þetta setur hana í ákveðinn sérflokk. Til að byrja með eru engar stórar hættur í þessari mynd og er hún heldur ekki mestmegnis gíruð að unglingum eða gerð til þess að selja varning. Öllu heldur er þetta dökk, mannleg og töluvert lágstemmdari saga sem á meira sameiginlegt með vestra af gamla skólanum heldur en hefðbundinni ofurhetjumynd. Logan er tæknilega séð tíunda myndin í stærri seríu og í rauninni sú þriðja í hinum svokallaða Wolver- ine-þríleik, en myndin er líka hönn- uð til þess að standa sjálfstæð. Sagan gerist árið 2029 og heimurinn er allt öðruvísi en við höfum áður séð í X-myndunum. Ofurhetjuteymið er löngu horfið, titilpersónan starfar núna sem bílstjóri og lætur lítið fyrir sér fara. Til að bæta gráu ofan á svart er maðurinn drykkfelldur og með takmarkaðan lífsvilja. Dag einn er honum gefið það verkefni að flytja dularfulla, mállausa stúlku þvert yfir landið, en fljótlega kemur í ljós að það mun ekki reynast áhættulaust verkefni. Það sem í fyrstu hljómar eins og dæmigerð vega(hasar)mynd reynist á endanum vera merkilega þýðing- armikil, falleg en ekki síður grimm saga sem tekur á dauðleika, aflausn og syndum feðranna. Leikstjórinn James Mangold sækir innblástur frá myndum á borð við Unforgiven, Children of Men og meira að segja Mad Max: Beyond Thunderdome. En að þessu frátöldu er það einfald- lega flugbeitt og áhrifaríkt handrit sem keyrir þessa sögu. Mangold gætir þess að leggja áherslu á smá- atriði hjá persónunum án þess að útskýra hlutina fullmikið. Ofbeldi spilar líka stóran hluta og 16 ára aldursstimpillinn er nýttur til hins ítrasta. Mangold er hins vegar ekki að leita eftir því að áhorfendur reki stöðugt hnefann upp í loftið að gefnu tilefni, þó hetjurnar fái að sjálfsögðu sín augnablik. Hér kemur þó eitthvað fram sem ofurhetju- myndir eru minna fyrir að sýna, sem er að ofbeldi hefur ljótar afleiðingar og við finnum fyrir þeim út söguna og hvernig atburðirnir hemla og móta karakterana. Tengsl og sam- bönd þeirra eiga allan forgang. Öfl- ugur hasar og tilheyrandi brellur eru í öðru sæti, en koma prýðilega út engu að síður. Hugh Jackman er auðvitað þræl- vanur fígúrunni og fer létt með að rúlla upp eldri, bugaðri gerðinni af Wolverine. Handritið býður líka upp á það að leyfa honum að finna nýja, dýpri vinkla á þessu hlutverki. Svipað má segja um Patrick Stew- art, leikur hans er áhrifaríkur og hann sýnir að dáendum seríunnar átakanlegri hliðar á Charles Xavier sem ekki hafa áður sést. Senuþjófur myndarinnar er ann- ars nýstirnið Dafne Keen í hlutverki hinnar mállausu Lauru. Myndin hefði auðveldlega getað molnað í sundur með rangri leikkonu í þessu hlutverki en Keen hefur bæði þá hörku og mýkt sem þarf til þess að gæða persónuna heilmiklu lífi og með eftirminnilegum hætti. Þegar allt kemur til alls er Logan svo miklu meira en „bara ofurhetju- mynd“ og gengur sagan alveg upp þó viðkomandi þekki ekki X-Men seríuna. Hún er ekki hnökralaus en gallarnir eru smáir (til að mynda passar lokalagið með Johnny Cash ekki alveg við endi myndarinnar) og draga ekkert úr krafti framvind- unnar. Útkoman tekur ekki bara fyrri Wolverine-myndirnar léttilega í nefið heldur er þetta albesta mynd- in í seríunni sem hún tilheyrir. Ef þetta á að vera síðasta skiptið þar sem Jackman spreytir sig í hlut- verkinu er þetta stórglæsilegur og grípandi svanasöngur hjá kapp- anum. Tómas Valgeirsson Niðurstaða: Flott handrit og spennandi saga tryggir það að Wolver­ ine hefur aldrei verið beittari á hvíta tjaldinu, eða tilfinningaríkari. Ofurhetjusaga með vestrakryddi Hugh Jackman og Patrick Stewart fara með tvö aðalhlutverkin í myndinni Logan. NORDICPHOTOS/AFP Heilsársþjónusta vetur, sumar, vor & haust 554 1989 gardlist.is Tunguhálsi 7, 110 Reykjavík gardlist@gardlist.is Þegar kemur að garðþjónustu erum við hjá Garðlist ávallt til þjónustu reiðubúin, allan ársins hring. Við leggjum áherslu á að svara öllum fyrirspurnum og pöntunum samdægurs og höfum samband eftir að fagmenn okkar hafa lokið verki til að tryggja að allt sé eins og það á að vera. Garðsláttur, trjáklippingar, beðahreinsun, stubbatæting, þökulagning ofl. Járn & Gler hf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin 104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is Bjóðum upp á sjálfvirkan hurðaopnunarbúnað, hringhurðir, hurðir og gluggakerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi á búnaði. Áratuga reynsla. Bíó Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi Sími 557 4848 / www.nitro.is FERMINGAGJAFIR Bensín- og rafmagnsvespur á góðu verði 199.900,- Svört, rauð eða grá 149.900,- Svört, rauð eða hvít KEMUR 1. APRÍL Þarf ekki próf, tryggja eða skrá! 9 . m a r s 2 0 1 7 F i m m t u D a G u r46 0 9 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K _ N Ý.p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 9 -A F 5 4 1 C 6 9 -A E 1 8 1 C 6 9 -A C D C 1 C 6 9 -A B A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 8 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.