Fréttablaðið - 09.03.2017, Side 48
Körfubolti Svo gæti farið eftir leiki
kvöldsins í lokaumferð Domino’s-
deildar karla að eitt lið með 22 stig
missi af úrslitakeppninni en að
annað lið með 22 stig endi í fimmta
sæti. Úrvalsdeild karla hefur sjaldan
verið jafnari en í ár og þótt úrslit síð-
ustu umferðar hafi komið í veg fyrir
úrslitaleiki um deildarmeistaratitil
og fall þá er mikið undir í leikjum
kvöldsins.
Margir möguleikar í stöðunni
Fréttablaðið hefur legið yfir mögu-
legum útkomum eftir lokaumferð-
ina í kvöld og þar eru margir mögu-
leikar fyrir liðin sem keppa um laus
sæti í úrslitakeppninni.
KR hefur tryggt sér deildarmeist-
aratitilinn, Skallagrímur og Snæfell
eru fallin og Haukarnir eru fastir
í einskismannslandi í 10. sætinu.
Stjarnan og Tindastóll keppa um 2.
sætið og mögulegan heimavallar-
rétt í undanúrslitum komist þau
þangað, þannig að það er mikið
undir hjá þeim þótt sætið í úrslita-
keppninni og heimavallarréttur í
átta liða úrslitum séu í höfn fyrir
löngu síðan. Tindastóll verður alltaf
ofar endi liðin með jafnmörg stig.
Málið flækist hins vegar þegar við
skoðum stöðu hinna fimm liðanna.
Keflavík og Þór Þorlákshöfn eru
bæði með 22 stig og örugg inn í
úrslitakeppnina. Hin þrjú liðin sem
gætu endað með 22 stig, Þór Akur-
eyri, ÍR og Njarðvík, eru ekki örugg
en þó í misgóðri stöðu. Akureyrar-
Þórsarar búa að því að vera með
betri innbyrðisstöðu á móti Njarð-
vík en eru hins vegar verri innbyrðis
á móti ÍR. ÍR-ingar gætu því komist
í úrslitakeppnina þrátt fyrir tap á
móti Keflavík ef Snæfell vinnur Þór
Akureyri og Njarðvík vinnur Þórs-
ara úr Þorlákshöfn.
Verða að vinna í kvöld
Eina liðið sem verður að vinna til að
eiga einhverja von er Njarðvík. Það
er ekki hægt að reikna liðið inn í
úrslitakeppnina nema ef það vinnur
í Þorlákshöfn. Það gæti meira segja
ekki dugað ef öll fimm liðin verða
jöfn með 22 stig því þá sæti Njarðvík
eftir í 9. sætinu. Njarðvíkingar eru
verri innbyrðis á móti öllum.
Akureyrar-Þórsarar eru í mjög
góðri stöðu enda á heimavelli á
móti neðsta liðinu í deildinni. Snæ-
fell hefur ekki unnið leik í vetur og
Þórsliðið er öruggt inn með sigri.
ÍR-ingar geta hoppað hæst af
liðunum í sjöunda til níunda sæti
eða alla leið upp í 5. sætið og þeir
eru á heimavelli þar sem liðið hefur
unnið sex leiki í röð. Mótherjinn er
hins vegar ekki af verri endanum,
eða endurfætt Keflavíkurlið sem
hefur unnið fjóra af síðustu fimm
leikjum sínum.
Horfa líka upp
Lið Keflavíkur og Þórs úr Þorláks-
höfn geta bæði horft ofar
í töfluna og draum-
ur um heima-
vallarrétt í átta
liða úrslitum
lifir hjá báðum
l i ð u m . Þ a ð
ve r ð u r þ ó
aldrei nema
e f G r i n d a -
víkinga mis-
stíga sig á móti
föllnum Borg-
nesingum.
Hér á síðunni er farið
yfir möguleika liðanna fimm sem
þurfa að treysta bæði á sig og aðra
í kvöld. ooj@frettabladid.is
Liðin í 5. til 9. sæti geta
öll endað með 22 stig
Lokaumferð Domino’s-deildar karla fer fram í kvöld og þar kemur í ljós hvaða
lið hreppa síðustu sætin í úrslitakeppnina. Fréttablaðið skoðar möguleikana.
Matthías Orri Sigurðarson á mikinn þátt í uppgangi ÍR eftir áramót en liðið
þarf að ná í úrslit í kvöld til að komast í úrslitakeppnina. FRéttablaðið/ERniR
KR 1. sæti
tindastóll 2. eða 3. sæti
Stjarnan 2. eða 3. sæti
Haukar 10. sæti
Skallagrímur 11. sæti
Snæfell 12. sæti
Grindavík: 4. til 6. sæti
Fyrir bjartsýna: Grindavík tryggir
sér fjórða sætið með sigri á Skalla-
grími á heimavelli.
Fyrir svartsýna: Grindavík getur
dottið niður í 6. sætið, tapi liðið
fyrir Skallagrími á sama tíma og
Þór Þorlákshöfn og Keflavík vinna
sína leiki. Grindavík er verri inn-
byrðis á móti bæði Keflavík og Þór
Þorl.
Þór Þorl: 4. til 7. sæti
Fyrir bjartsýna: Þórsarar geta
náð 4. sætinu, vinni þeir Njarð-
vík á sama tíma og Grindavík og
Keflavík tapa bæði sínum leikjum.
Þór er með betri innbyrðisstöðu á
móti Grindavík og Keflavík.
Fyrir svartsýna: Þórsarar geta farið
alla leið niður í 7. sæti. Það myndi
gerast ef þeir tapa á móti Njarðvík
á sama tíma og Keflavík vinnur ÍR
og Þór Akureyri vinnur Snæfell.
Keflavík: 4. til 7. sæti
Fyrir bjartsýna: Keflvíkingar geta
náð 4. sætinu, vinni þeir ÍR á sama
tíma og Grindavík og Þór Þorláks-
höfn tapa bæði sínum leikjum.
Keflavík er með betri innbyrðis-
stöðu á móti Grindavík.
Fyrir svartsýna: Keflvíkingar
geta farið alla leið niður í 7.
sæti en þá þurfa úrslitin að vera
þeim afar óhagstæð. Það myndi
gerast ef þeir tapa stórt á móti ÍR
sama tíma, Njarðvík vinnur Þór
naumlega og Snæfell vinnur Þór
Akureyri.
Þór ak.: 6. til 9. sæti
Fyrir bjartsýna: Þórsarar komast
ekki ofar en í sjötta sætið en þeir
myndu enda þar með sigri á Snæ-
felli á sama tíma og Keflavík vinnur
ÍR og Njarðvík vinnur Þór Þorláks-
höfn.
Fyrir svartsýna: Þórsarar missa
ekki af úrslitakeppninni nema ef
þeir tapa á móti Snæfelli á sama
tíma og Njarðvík vinnur sinn leik.
Þórsarar eru bestir innbyrðis ef
þeir eru jafnir ÍR og Njarðvík en ÍR
er aftur á móti betra innbyrðis á
móti Þór verði þau tvö bara jöfn.
ÍR: 5. til 9. sæti
Fyrir bjartsýna: ÍR-ingar geta kom-
ist alla leið upp í fimmta sætið en
til þess þurfa þeir að vinna Keflavík,
Snæfell að vinna Þór Akureyri og
Njarðvík að vinna Þór Þorlákshöfn.
Fyrir svartsýna: ÍR-ingar missa af
úrslitakeppninni ef þeir tapa á
móti Keflavík á sama tíma og Þór
Akureyri vinnur Snæfell og Njarðvík
vinnur Þór úr Þorlákshöfn.
njarðvík 6. til 9. sæti
Fyrir bjartsýna: Njarðvíkingar
komast hæst upp í sjötta sætið ef
þeir vinna Þór Þorlákshöfn með
meira en 16 stigum, Keflavík vinnur
ÍR og Snæfell vinnur Þór Ak.
Fyrir svartsýna: Njarðvíkingar
missa af úrslitakeppninni ef þeir
tapa á móti Þór Þorlákshöfn.
Stig liðanna fyrir lokaum-
ferðina:
34 stig KR
30 stig Tindastóll og Stjarnan
24 stig Grindavík
22 stig Þór Þorl. og Keflavík
20 stig Þór Ak., ÍR og Njarðvík
16 stig Haukar
14 stig Skallagrímur
0 stig Snæfell
Svona lítur lokakvöld deildarkeppninnar út fyrir liðin í Domino’s-deildinni
Fyrstu landsliðsmörkin tryggðu fyrsta sigurinn á Algarve-mótinu
fótbolti Ísland bar sigurorð af
Kína, 2-1, í leik um 9. sætið á Al-
garve-mótinu í gær. Þetta var fyrsti
sigur íslenska liðsins á mótinu en
það tapaði einum leik og gerði tvö
jafntefli.
Málfríður Erna Sigurðardóttir
skoraði bæði mörk Íslands í leikn-
um. Þetta voru fyrstu landsliðsmörk
Málfríðar, í þrítugasta landsleik
hennar.
Bæði mörkin komu eftir horn-
spyrnur. Málfríður kom Íslandi í 1-0
á 8. mínútu með skoti úr þröngu færi
eftir hornspyrnu Thelma Bjarkar
Einarsdóttur og skalla Guðmundu
Brynju Óladóttur. Wang Shanshan
jafnaði metin á 36. mínútu en Mál-
fríður skoraði annað mark sitt á 48.
mínútu eftir hornspyrnu Margrétar
Láru Viðarsdóttur.
„Sigurinn nærir alltaf. Það er
alveg sama hvenær hann kemur.
Leikmenn voru klókir að teygja
sig eftir sigrinum,“ sagði landsliðs-
þjálfarinn Freyr Alexandersson í
samtali við Fréttablaðið. Hann var
að vonum ánægður með hvernig
íslenska liðið nýtti föstu leikatriðin
í leiknum í gær.
„Kínverjarnir eru reyndar mjög
öflugir í loftinu en við vorum búin
að undirbúa okkur vel og eitt af
markmiðum leiksins var að skora
eftir fast leikatriði. Það kom ekk-
ert annað til greina en skora og við
gerðum tvö,“ sagði Freyr sem var
glaður fyrir hönd Málfríðar.
„Ég veit alveg hvað Fríða getur
gert í föstum leikatriðum, þannig
að þetta kom ekkert eins og þruma
úr heiðskíru lofti.“
Freyr kvaðst að mestu ánægður
með frammistöðu Íslands í leiknum
í gær, fyrir utan kaflann um það
leyti sem Kínverjar jöfnuðu metin.
Markið kom eftir slæm og sjaldséð
mistök Glódísar Perlu Viggósdóttur.
„Ég var ánægður með nokkra
sóknarkafla. Við vorum að spila á
móti liði sem spilar 4-4-2 og ætl-
uðum okkur að reyna að spila á
milli línanna hjá þeim. Ég var hins
vegar mjög óánægður með kaflann
í kringum markið sem við fengum á
okkur,“ sagði Freyr. „Þar vorum við
að reyna barnalega hluti sem okkur
var refsað fyrir. En leikmenn unnu
sig út úr því og sýndu vilja með því
að ráðast á andstæðinginn og ná
aftur tökum á leiknum. Svo fannst
mér gott að sjá hugarfarið að vilja
gera allt til að vinna.“ – iþsMálfríður Erna skoraði bæði mörk íslenska liðsins í gær. FRéttablaðið/GEtty
9 . m a r s 2 0 1 7 f i m m t u D a G u r36 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
0
9
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
9
-C
8
0
4
1
C
6
9
-C
6
C
8
1
C
6
9
-C
5
8
C
1
C
6
9
-C
4
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K