Fréttablaðið - 09.03.2017, Page 64
Þetta er draumurinn okkar – við létum hann verða að veruleika,“ segir Sindri Snær Jens-son en hann og Jón Davíð Davíðsson eru
eigendur og stofnendur tískuvöru-
verslunarinnar Húrra Reykjavík.
Þeir félagarnir höfðu þekkst lengi
og báðir unnið við tísku og verslun í
mörg ár, en að eiga eigin búð hafði
ávallt verið draumur þeirra beggja.
„Ég var búinn að vinna í tísku-
búðum síðan ég var 17 ára og sá það
fljótlega að þetta var það sem mig
langaði til að gera. Svo byrjaði Jón að
vinna þar með mér – þetta var í Retro
sem var í Smáralind. Við vorum auð-
vitað báðir – veit ekki hvort þetta er
kannski ofsagt – ástfangnir af tísku
en þetta fangaði huga okkar,“ segir
Sindri.
„Smásölu auðvitað líka,“ bætir Jón
við.
„Já, einmitt, þetta er svo skemmti-
legt,“ segir Sindri um að vinna í
verslun, „þú ert að díla við fólk allan
daginn, það getur í raun hver sem
er komið inn um dyrnar og þú þarft
að takast á við það. Þannig að ég sá
það mjög fljótt að mig langaði til að
eignast eigin búð einn daginn.“
Hugmyndin varð til árið 2013
þegar Jón var að keyra Sindra út á
flugvöll eftir jólafrí. „Þá varð til þessi
hugmynd um að opna fatabúð með
„streetwear“. Við ræddum
þetta hvern einasta dag
eftir að hann fór út í gegn
um Skype í klukkutíma,
einn og hálfan tíma á dag
– upp úr því ákváðum við
að kýla á þetta og hófum
undirbúningsvinnuna.“
Úr kjallaranum hennar
mömmu á Hverfis-
götuna
Í apríl árið eftir flytur Sindri
heim og þá snýst allt um
að hrinda hugmyndinni í
framkvæmd. „Við erum þá
með aðstöðu í kjallaranum heima
hjá mömmu minni. Þar erum við
með „stjórnherbergi“ þar sem við
tökum heila tvo mánuði í að vinna
viðskiptaáætlun.“
„Við lögðum allt það fé sem við
áttum á þessum tíma í þetta, seldum
vörur fyrirfram til vina og vanda-
manna fyrir þrjár milljónir og
fengum síðan bankalán – sem við
erum svo gott sem búnir
að greiða.“
Það var að vonum stór
stund þegar þeir fóru sjálfir
og sóttu fyrstu sendinguna
í verslunina.
„Við vorum að missa
okkur úr gleði. Ég átti ekki
bíl en Jón Davíð átti lítinn
Polo, sem hann á reyndar
enn, og við fórum sex ferðir
niður á Sundahöfn af því
að við vildum ekki borga
sendiferðabíl. Þeir hlógu
svo mikið að okkur í Vöru-
hótelinu, einhverjir tveir
gæjar að koma þarna margar, margar
ferðir með pallettuna fyrir utan.“
Margir sperrtu þó eyrun þegar þeir
heyrðu að verslunin yrði til húsa á
Hverfisgötunni.
„Það voru vinir okkar sem spurðu
okkur hvað við værum að pæla,
„ætliði að selja einhverjar tuskur á
Hverfisgötunni? Það er enginn að
labba þarna, þetta er rónagata“.“
Hvað er næst?
Sindri og Jón hafa prófað sig áfram
með ýmislegt, þar á meðal að gefa
út tískutímarit og segjast vilja gera
meira af því. Síðan vilja þeir opna
vefverslun sína fyrir erlendar pant-
anir.
„Svo er gaman að segja frá því þó
að það sé á frumstigi að við höfum
fengið fyrirspurnir frá erlendum fjár-
festum sem hafa áhuga á að opna
Húrra-búðir þar.
Aðspurðir hvort standi til að fram-
leiða eigin fatalínu segja þeir að það
sé ákveðinn draumur sem þeir séu
að skoða.
„Við erum með stóra drauma og
viljum gera hlutina vel.“
stefanthor@frettabladid.is
ætliði að
selja ein-
hverjar tusk-
ur á hverfis-
götunni? Það
er enginn að
labba Þarna,
Þetta er róna-
gata.
ER Í FULLUM GANGI!
YFIR 100 VINSÆL
VÖRUMERKI
OPNUNARTÍMAR :
MÁN - FÖS : 12 - 18 | LAU : 12 - 18 | SUN : 13 - 17
L A G E R S A L A
R I S A I
@ GLÆSIBÆR
(áður Útilíf)
verð frá
: 500 kr
.
ALLT AÐ
80% AF
SLÁTTUR
Sindri Snær og Jón Davíð hönnuðu og smíðuðu eigin verslun sjálfir og náðu í fyrstu sendinguna sjálfir niður á höfn. MynD/Snorri BJörnSSon
Þeir sindri snær
jensson og jón Davíð
Davíðsson höfðu
báðir unnið lengi
í tískuverslunum
og fengu þá flugu í
höfuðið ein jólin að
stofna eigin verslun.
FréttaBlaðið/Hanna
létu
sameiginlegan
draum
rætast
9 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r52 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð
Lífið
0
9
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
9
-D
1
E
4
1
C
6
9
-D
0
A
8
1
C
6
9
-C
F
6
C
1
C
6
9
-C
E
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K