Fréttablaðið - 13.02.2017, Side 12
Jón Arnór vann loksins bikarinn og sefur nú rótt
KR varð Maltbikarmeistari karla í körfubolta annað árið í röð eftir sigur á Þór Þorlákshöfn annað árið í röð. Jón Arnór Stefánsson er loksins orðinn bikarmeistari og and-
vökunóttum hans eftir tapið 2009 er lokið. Ungt kvennalið Keflavíkur varð bikarmeistari eftir æsispennandi úrslitaleik gegn Skallagrími þar sem úrslit réðust í blálokin.
körfubolti „Þessi titill skiptir mig
rosalega miklu máli,“ sagði sigurreif-
ur og sáttur Jón Arnór Stefánsson,
leikmaður KR, eftir að vesturbæjar-
liðið varð bikarmeistari annað árið
í röð og í tólfta sinn í sögu félagsins
á laugardaginn. KR vann Þór úr Þor-
lákshöfn, 78-71, eins og í fyrra og er
því áfram ríkjandi Íslands- og bikar-
meistari.
Þrátt fyrir að hafa orðið Íslands-
meistari og náð lengra en nokkur
annar íslenskur körfuboltamaður
átti Jón Arnór eitt eftir á sínum ferli;
verða bikarmeistari. Það er loksins
komið og ferillinn því að einhverju
leyti orðinn fullkominn hjá þessum
besta körfuboltamanni þjóðarinnar
fyrr og síðar.
Ungt lið Keflavíkur bar sigur úr
býtum í Maltbikar kvenna eftir
dramatískan sigur á sterku liði
Skallagríms, 662 í spennandi leik.
„Litlu slátrararnir“, eins og þetta
virkilega efnilega Keflavíkurlið er
svo gjarnan kallað, sýndu mikinn
karakter undir lokin þegar liðið virt-
ist vera að missa leikinn úr höndum
sér og landaði flottum sigri. Kannski
sá fyrsti af mörgum en meðalaldur
liðsins er alls ekki hár.
Misst svefn síðan 2009
Jón Arnór fékk gullið tækifæri til
að verða bikarmeistari árið 2009
þegar hann fór í úrslitaleikinn á
móti Stjörnunni með, því sem flest-
ir halda fram, besta liði sem hefur
verið sett saman á Íslandi. Með Jón
Arnór og Jakob Sigurðarson bjugg-
ust flestir við því að liðið myndi
vinna tvöfalt og ekki tapa leik en
svo varð ekki. Það tapaði fyrir læri-
sveinum Teits Örlygssonar í Stjörn-
unni í Höllinni árið 2009 sem eru
ein óvæntustu úrslit í sögu bikar-
keppninnar.
„Ég er búinn að missa mikinn
svefn síðustu ár út af bikarúrslita-
leiknum 2009. Án gríns! Mig langaði
rosalega mikið að vinna þetta. Mig
vantaði eitthvað í safnið og nú er
þetta komið. Það hefði verið gaman
að spila á móti Stjörnunni en Þór
er líka með frábært lið,“ sagði Jón
Arnór eftir leikinn þar sem hann var
í óða önn að sitja fyrir á myndum
með ungum aðdáendum.
Kvíðir engu
KR-liðið var ekki í gírnum framan
af leik gegn Þór en stakk af undir
lok fyrri hálfleiks og í byrjun þess
síðari þar sem liðið skoraði 29 stig
á móti níu. Jón Arnór var sjálfur frá-
bær á þeim kafla en hann var valinn
besti maður leiksins. KR-liðið setur
nú stefnuna á að vinna rest og það
sannfærandi.
Leikmenn helgarinnar
„Það er ákveðinn léttir að vinna
þetta. Bikarinn er kominn í hús.
Sálfræðilega er þetta gott. Þetta er
góður titill til að byggja ofan á. Við
vitum að við eigum rosalega mikið
inni og ég er að komast í betra stand.
Ég kvíði engu. Við ætlum að valta
yfir alla andstæðinga sem við spil-
um við í framhaldinu. Það er enginn
að fara að stöðva okkur,“ segir Jón
Arnór Stefánsson.
Upphafið að einhverju stóru?
Í Keflavík gæti verið að fæðast
lið sem mun taka yfir íslenskan
kvennakörfubolta á næstu árum.
Litlu slátrararnir hans Sverris Þórs
Sverrissonar sýndu mikið baráttu-
þrek og karakter og spiluðu eins
og alltaf góða vörn þegar liðið varð
bikar meistari eftir sigur á Skalla-
grími. Leikurinn var frábær skemmt-
un og einn sá besti í kvennaflokki í
manna minnum en á endanum voru
það ungu stelpurnar úr Keflavík sem
stóðu uppi sem sigurvegarar.
Keflavíkurliðið er byggt upp á
stelpum fæddum 1998-2000. Þótt
þær hefði langað til að mála bæinn
rauðan eftir sigurinn var það ekki
í boði því þær hafa ekki aldur til
að komast neins staðar inn. Það
Ég er búinn að
missa mikinn svefn
síðustu ár úr af bikarúrslita-
leiknum árið 2009. Án
gríns! Mig langaði rosalega
mikið að vinna þetta.
Jón Arnór Stefánsson
leikmaður KR
Besti körfuboltamaður Íslandssögunnar varð loksins bikarmeistari um helgina og naut þess í botn. Gleði hins unga kvennaliðs Keflavíkur var líka fölskvalaus í Höllinni um helgina. fréttaBLaðið/andri
Í dag
18.50 Valur - fjölnir Sport 2
19.40 Eibar - Granada Sport 3
19.50 Bournem. - Man. City Sport
22.00 Messan Sport
Keflavík - Skallagr. 65-62
Keflavík: Ariana Moorer 26/15 fráköst/7
stoðsendingar, Erna Hákonardóttir 12,
Birna Benónýsdóttir 11/7 fráköst, Katla Rún
Garðarsdóttir 5, Emelía Ósk Gunnarsdóttir
4/7 fráköst, Irena Sól Jónsdóttir 3, Salbjörg
Ragna Sævarsdóttir 2/11 fráköst, Thelma
Dís Ágústsdóttir 2.
Skallagrímur: Tavelyn Tillman 26/7
fráköst/6 stoðsendingar, Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir 13/11 fráköst, Fanney Lind
Thomas 11, Guðrún Ósk Ámundadóttir 5/4
fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 3/9 frá-
köst, Ragnheiður Benónísdóttir 2/5 fráköst,
Kristrún Sigurjónsdóttir 2.
Nýjast
Maltbikar kvenna, úrslit
Kr - Þór Þorlákshöfn 78-71
Kr: Philip Alawoya 23/18 fráköst, Jón Arnór
Stefánsson 19/8 stoðsendingar, Sigurður Á.
Þorvaldsson 10/8 fráköst, Pavel Ermolinskij
10/11 fráköst, Snorri Hrafnkelsson 5, Darri
Hilmarsson 5/7 fráköst, Þórir Guðmundur
Þorbjarnarson 4, Brynjar Þór Björnsson 2.
Þór Þ.: Tobin Carberry 29/8 fráköst/9 stoð-
sendingar, Emil Karel Einarsson 15/11 frá-
köst, Maciej Stanislav Baginski 10/5 fráköst,
Ragnar Örn Bragason 10, Halldór Garðar
Hermannsson 7.
Maltbikar karla, úrslit
Grótta - afturelding 22-26
Mörk Gróttu: Aron Dagur Pálsson 7, Leon-
harð Harðarson 3, Þráinn Jónsson 3, Júlíus
Stefánsson 2, Finnur Ingi Stefánsson 2,
Elvar Friðriksson 2, Árni Árnason 1, Nökkvi
Elliðason 1, Vilhjálmur Hauksson 1.
Mörk aftureldingar: Elvar Ásgeirsson 7, Árni
Bragi Eyjólfsson 5, Kristinn Bjarkason 4,
Gunnar Þórsson 2, Pétur Júníusson 2, Ernir
Hrafn Arnarson 2, Davíð Svansson 1, Jón
Heiðar Gunnarsson 1, Guðni Kristinsson 1,
Mikk Pinnonen 1.
Coca-Cola-bikar karla
Stjarnan - Selfoss 32-29
Stjarnan: Helena Örvarsdóttir 7, Sólveig
Kjærnested 6, Elena Birgisdóttir 5.
Selfoss: Margrét Jónsdóttir 8, Kristrún
Steinþórsdóttir 8, Arna Einarsdóttir 6.
Valur - Grótta 21-22
Valur: Diana Satkauskaite 8, Morgan
McDonald 4, Vigdís Þorsteinsdóttir 4.
Grótta: Lovísa Thompson 6, Sunna Einars-
dóttir 3, Unnur Ómarsdóttir 3.
fylkir - ÍBV 27-27
fylkir: Thea Imani Sturludóttir 9, Christine
Rishaug 7, Þórunn Friðriksdóttir 3.
ÍBV: Ester Óskarsdóttir 7, Greta Kavaliuska-
ite 5, Telma Amado 3, Karólína Lárudóttir 3.
Haukar - fram 26-23
Haukar: Ramune Pekarskyte 10, Guðrún
Bjarnadóttir 4, Erla Eiríksdóttir 3.
fram: Steinunn Björnsdóttir 5, Ragnheiður
Júlíusdóttir 4, Hildur Þorgeirsdóttir 4.
Efri
Fram 25
Stjarnan 25
Haukar 16
Valur 14
neðri
ÍBV 13
Grótta 13
Selfoss 8
Fylkir 6
Olís-deild kvenna
STeRKUR SigUR Í ceLJe
Íslendingaliðið Kristianstad vann
mjög góðan sigur, 27-28, á útivelli
gegn celje í Meistara-
deildinni. Arnar
Freyr Arnarsson
og Ólafur Andr-
és guðmunds-
son skoruðu
báðir þrjú mörk
fyrir Kristianstad í
leiknum og gunnar
Steinn Jónsson skoraði tvö. Aron
Pálmarsson lék ekki með Veszp-
rém vegna meiðsla er liðið tapaði,
25-30, gegn Barcelona. Aron hefur
ekki spilað leik síðan í nóvember
og missti auðvitað af HM í Frakk-
landi í síðasta mánuði.
ariana Moorer, bandarískur leik-
stjórnandi Keflavíkurliðsins,
gaf tóninn í upphafi með því
að skora 13 af fyrstu 15 stigum
úrslitaleiksins og
kom Keflavík þar
með í 13-2 næstum
því upp á eigin
spýtur. Moorer
var mjög góð
allan leikinn
með 26 stig,
15 fráköst, 10
fiskaðar villur, 7
stoðsendingar
og 3 stolna bolta.
Hún var efst Kefl-
víkinga í öllum
þessum fimm töl-
fræðiþáttum.
Jón arnór Stefánsson fór
fyrir KR-liðinu og var duglegur að
finna félaga sína þegar verst gekk
í sókninni í fyrri hálfleik. Hann var
síðan aðalmaðurinn í 29-9
spretti KR-liðsins þar
sem Vesturbæingar tóku
yfir leikinn. Jón Arnór
skoraði 11
stig á þeim
kafla eða
meira en
Þórsliðið til
samans. Jón
Arnór endaði
með 19 stig og
8 stoðsend-
ingar og hitti úr
öllum 9 vítum
sínum.
1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M Á N u D a G u r12 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
1
3
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:1
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
7
-F
0
4
8
1
C
3
7
-E
F
0
C
1
C
3
7
-E
D
D
0
1
C
3
7
-E
C
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K