Fréttablaðið - 13.02.2017, Qupperneq 13
fólk
kynningarblað 1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M Á N U D a G U r
„Stefnumótið er haldið að frum-
kvæði Félags íslenskra húsgagna- og
innréttingaframleiðenda í samvinnu
við Hönnunarmiðstöð, til að efla nýj-
ungar og nýsköpun. Hugmyndin er
að leiða saman, annarsvegar hóp
framleiðenda og þeirra sem hafa
tækni- og efnisþekkinguna, og hins
vegar hóp þeirra sem hafa hugmynd-
ir um hversu langt er hægt að ganga
í að skapa nýja hluti. Ég held að þetta
sé í fyrsta sinn sem þetta er gert hér
á landi,“ segir Birgir Fannar Birgis-
son, iðnhönnuður hjá Driftwood, en
hann heldur utan um stefnumót ís-
lenskra húsgagna- og innréttinga-
framleiðenda við íslenska hönnuði í
dag í Hönnunarsafni Íslands.
„Stefnumótið sprettur upp úr
þeirri grósku sem einkennt hefur
íslenska hönnun undanfarin ár. Ís-
lensk sérstaða í húsgögnum í dag
er þó ekki öllum ljós. Lítið hefur
verið framleitt af íslenskri sérstöðu
en meira af „main stream“ hlutum.
Með undantekningum þó. Felst ís-
lensk sérstaða í efnisvali? Í aðferðum
eða útiliti? Við munum ræða hvern-
ig koma megi íslenskri sérstöðu í
hönnun á framfæri á sama hátt og
til dæmis hefur verið gert í ferða-
þjónustu,“ segir Birgir.
Hann vonast til þess að í fram-
haldinu verði til verkefni sem muni
skila vörum á markað sem fyrst.
Framleiðslumöguleikar á Íslandi
hafi staðið íslenskum hönnuðum
fyrir þrifum meðal annars vegna
smæðar markaðarins. Með auknum
fjölda gesta til landsins og netversl-
un sé staðan önnur.
„Fyrir iðnframleiðslu eins og
á húsgögnum hefur markaðurinn
verið óþægilega smár, en það er að
breytast. Meðal annars vegna þess
að fjöldi erlendra gesta til landsins
hefur stóraukist, fleiri ferðamenn
sækja landið heim og stórir hópar
erlendra fyrirtækja koma hingað í
hvatningarferðir. Sýningarglugg-
inn er orðinn stærri en hann var.
Það geta fleiri séð hlutina til dæmis
í hóteluppbyggingu, ef hótelin eru
innréttuð með íslenskum húsgögn-
um. Það hefur einnig áhrif að í dag
þykir miklu minna mál en var að
kaupa sér hvað sem er og láta senda
sér hvert sem er. Íslendingar kaupa
hjól og jafnvel bíla yfir netið, hvers
vegna ekki ferðamenn sem sjá hér
stól eða sófa? Það að varan sé ís-
lensk framleiðsla hefur einnig að-
dráttarafl.“
Stefnumótið er byggt upp með ör-
fyrirlestrum fulltrúa beggja hópa og
verkefnavinnu. Birgir segir að meðal
annars verði farið yfir þá árekstra
sem geta orðið milli tækniþenkjandi
framleiðandans og skapandi aðilans
vegna ólíkra sjónarhorna.
„Við ætlum að athuga hvort við
getum ekki bara leyst þá hnökra
með fyrirlestrum og verklegum æf-
ingum sem miða að því að opna fyrir
nýsköpunarhugsunina. Í Hönnunar-
safninu gefst okkur tækifæri á að
skoða þverskurð íslenskrar hönnun-
ar sem veitir innblástur. Í lok dags
ættum við að hafa yfirstigið allar
hindranir.“
koma þarf sérstöðu íslenskra
húsgagna á framfæri
Stefnumót íslenskra húsgagna- og innréttingaframleiðenda og hönnuða fer fram í Hönnunarsafni Íslands í dag. Birgir
Fannar Birgisson iðnhönnuður leiðir stefnumótið. Efla á nýsköpun og koma íslenskri sérstöðu í hönnun á framfæri.
BLAÐ UM FASTEIGNAGEIRANN
Í þessu blaði verður hægt að kaupa bæði auglýsingar
sem og kynningar. Blaðinu er ætlað að fjalla um allt sem
viðkemur fasteignageiranum, allt frá hönnun, til byggingar,
til fjármögnunar, til sölu og viðhalds.
Áhugasamir auglýsendur hafið samband við
Jóhann Waage sölumann Sérblaða:
johannwaage@365.is
Sími 512 5439
Kemur út 22. febrúar.
Á myndinni má sjá Appollo-hægindastólinn eftir Gunnar Magnússon frá árinu 1969 og kollinn Fuzzy eftir Sigurð Má Helgason
frá árinu 1970. Mynd/HönnunArSAFn ÍSlAndS
ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Fjólubláu stólana hannaði Þorkell G. Guðmundsson árið 1972.Birgir Fannar Birgisson og Svavar Konráðsson hjá driftwood halda utan um stefnu-
mót íslenskra iðnframleiðenda og hönuða sem fram fer í Hönnunarsafni Íslands í
dag. Mynd/AnTon BrinK
1
3
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:1
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
7
-F
F
1
8
1
C
3
7
-F
D
D
C
1
C
3
7
-F
C
A
0
1
C
3
7
-F
B
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K