Fréttablaðið - 13.02.2017, Qupperneq 30
Þau
helgina
áttu
Elvar Ásgeirsson
handboltamaður úr Aftureldingu
Afturelding varð um helgina
síðasta liðið til þess að tryggja sér
farseðilinn í und-
anúrslit í bikar-
keppni HSÍ, Coca
Cola-bikarnum.
Elvar átti stór-
leik og skoraði
sjö mörk er
Afturelding vann
fjögurra marka sigur
á Gróttu, 22-26. Elvar Ásgeirs-
son átti mjög öflugan leik
fyrir Mosfellinga og skoraði
sjö mörk í leiknum. Jafnt var
í hálfleik, 12-12, en Mosfell-
ingar voru sterkari í síðari
hálfleiknum. Valur, Haukar og
FH verða einnig í pottinum þegar
dregið verður í undanúrslit í dag. Í
kvennaflokki eru það lið Stjörn-
unnar, Hauka, Fram og Selfoss sem
verða í pottinum góða. Undanúr-
slitin og úrslitin fara fram í Laugar-
dalshöll eftir tæpar tvær vikur.
Valdís Þóra Jónsdóttir
kylfingur úr Leyni
Valdís Þóra Jónsdóttir
keppti á sínu fyrsta
móti á LET-mótaröð-
inni sem er Evrópu-
mótaröð kvenna. Hún
komst í gegnum niður-
skurðinn en var ekki í hópi
þeirra 35 kylfinga sem fengu að
spila lokahringinn á mótinu sem
fram fór í Ástralíu. Skagakonan
endaði í 51. sæti. Mjög viðunandi
árangur hjá okkar konu á sínu
fyrsta móti á þessari næststerkustu
mótaröð kvenna.
Aníta Hinriksdóttir
hlaupakona úr ÍR
Aníta Hinriksdóttir er í flottu formi í upphafi
innanhússtímabilsins og hún sýndi það og sannaði
með því að vinna til silfurverðlauna í 800 metra
hlaupi á Copernicus Cup í Póllandi. Hlaupið fór
fram í Torun í Póllandi og Aníta kom í mark
á 2:01,56 mínútum en sigurvegarinn var
heimastúlkan Joanna Józwik sem kom í
mark á 1:59,29 mín. Aníta Hinriksdóttir setti
nýtt Íslandsmet á Reykjavíkurleikunum
fyrir rúmri viku þegar hún hljóp á 2:01,18
mínútum.
Aníta náði ekki því meti en hún hefur
aftur á móti aldrei hlaupið hraðar
innan húss á erlendri grundu en í
kvöld. Hún jafnaði sitt besta hlaup
sem var á EM í Prag 2015 en þó
kom hún einnig í mark á 2:01,56
mínútum. Þetta var jafnframt í
sjöunda skiptið sem Aníta hleypur á tíma
undir 2:02,00 mínútum innanhúss.
eldbakaðar
eðal pizzur
sími 577 3333
www.castello.is
Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði*Gildir aðeins fyrir sóttar pizzur vikuna 13. – 19. feb. 2017
Við erum
10 ára!
ALLAR STÓRAR PIZZUR Á MATSEÐLI
Á AÐEINS 1.890 Kr.*
2 L. af Coke fylgir fyrstu 200 pöntunum!
mma Hin hollenska Germaine de
Randamie varð um helgina sú fyrsta
til að vinna fjaðurvigtartitil kvenna í
UFC. De Randamie vann Holly Holm
eftir dómaraákvörðun.
Þetta var fyrsti bardaginn í fjaður-
vigt kvenna í sögu UFC. Bardaginn
var jafn en tilþrifalítill og er ekki mikil
eftir spurn eftir endurati. Bardaginn fór
í allar fimm loturnar og að mati allra
þriggja dómaranna vann de Randamie
þrjár lotur en Holm tvær. De Randa-
mie fór því með sigur af hólmi, 48-47,
og er nýjasti meistarinn í UFC.
De Randamie
kláraði Holm
De Randamie og Holm takast á.
fRéttablaðið/afp
fótbolti Borghildur Sigurðardóttir,
Magnús Gylfason, Guðrún Inga
Sívertsen og Vignir Már Þormóðsson
voru öll kosin í aðalstjórn KSÍ á 71.
ársþingi Knattspyrnusambandsins í
Vestmannaeyjum í dag.
Guðrún Inga fékk 123 atkvæði,
Vignir 101, Magnús 76 og Borgildur
74. Þau voru kosin til tveggja ára.
Gísli Gíslason, Jóhannes Ólafsson,
Ragnhildur Skúladóttir og Rúnar Vífill
Arnarson sitja áfram í stjórninni. Kjör-
tímabili þeirra lýkur í febrúar 2018.
Þrjár konur
í stjórn KSÍ
frjálsar Hlaupakonan Arna Stefanía
Guðmundsdóttir varð um helgina
Norðurlandameistari í 400 metra
hlaupi en mótið fór fram í Tampere
í Finnlandi.
„Ég er mjög ánægð að hafa unnið.
Þetta var kannski ekki bæting hjá
mér en það er kannski ekki hægt að
ætlast til þess að maður bæti sig um
hverja helgi. Það var samt gaman að fá
hlaup og enn skemmtilegra að vinna
líka,“ segir Arna Stefanía en hún var
þá nýlent frá Finnlandi.
Fyrir rúmri viku setti hún mótsmet
á Reykjavíkurleikunum og tryggði sér
um leið þátttökurétt á EM í Belgrad
en það mót fer fram í upphafi næsta
mánaðar. Tími hennar í Finnlandi var
54,21 sekúnda en á Reykjavíkurleik-
unum hljóp hún á 53,92 sekúndum.
Það var líka ástæða fyrir því að tíminn
var ekki alveg eins góður að þessu
sinni.
„Það var keppt á 300 metra braut
sem margir voru óánægðir með því
hún er ólögleg og ef menn setja met á
svona braut þá er það ekki löglegt. Ég
hafði ekki keppt á svona braut áður
og það var svolítið skrítið.“
Þessi magnaða hlaupakona er nú
farin að horfa til Belgrad þar sem hún
ætlar sér að gera það gott á EM.
„Þessi tvö síðustu hlaup hjá mér
sýna að formið er gott. Ég er aðeins
tæp í lærinu núna en vonandi verður
það ekkert vandamál. EM er númer
eitt á tímabilinu hjá mér og frábært að
hafa náð lágmarkinu í fyrsta hlaupi.
Allur undirbúningur snýst um það
núna og svo er meistaramót og annað
í millitíðinni,“ segir Arna Stefanía en
hvert er markmiðið fyrir EM?
„Ég ætla að bæta mig vel og held að
ég geti það alveg. Auðvitað væri gaman
að komast í undanúrslit. Ef ég verð
alveg heil og næ að æfa almennilega
fram að móti er ég bjartsýn á að það
takist. Ég finn að formið er gott og ég
finn að ég á nóg inni. Það er gott að ná
því besta fram á stóru mótunum.“ – hbg
Gaman að fá hlaup og
skemmtilegra að vinna
arna Stefanía er á hraðri uppleið. fRéttablaðið/Hanna
1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 7 m á N U D a G U r14 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
1
3
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:1
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
3
7
-E
B
5
8
1
C
3
7
-E
A
1
C
1
C
3
7
-E
8
E
0
1
C
3
7
-E
7
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K