Fréttablaðið - 13.02.2017, Blaðsíða 31
Bæjarhrauni 2 | Hafnarfirði | Sími: 4370000 | hafis@hafis.is
Komdu og fáðu rjómaís og laktósafrían vegan ís
Íslenskur ís með ítalskri hefð
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
M
ER
KI
Ð
M
IT
T
Nýjar vörur frá
Útsöluaðilar:
Útilíf – Kringlunni – Smáralind • Sportver Akureyri • Toppmenn & Sport Akureyri
K Sport Keflavík • Nína Akranesi • Sportbær Selfossi • Axel Ó Vestmannaeyjum
Dreifingaraðili: DanSport ehf. Hægt að sjá vörur á dansport.is
Hinar ýmsu starfstéttir njóta mismikillar virðingar í samfélaginu. Okkur virðist
ákaflega í nöp við þingmennina
sem við höfum kosið til starfa og
ekki þarf að hafa mörg orð um
það álit sem bankamenn hafa
notið hér á landi, þó að það kunni
að fara að breytast með aukinni
braskgleði landsmanna. Okkur
er hlýtt til kennara, umönnunar-
stéttanna og annarra sem bæta líf,
fræða, græða og líkna en gnístum
tönnum yfir iðnaðarmönnum
sem segjast koma eftir helgi um
leið og við öfundum þá af frjáls-
legri umgengni sinni við tímann.
Og við eigum í flóknu sambandi
við listamennina – að sjálfsögðu –
sem starfa eftir boðorðinu „Mitt er
að yrkja, ykkar að styrkja“.
Sterkar tilfinningar
Og svo framvegis. Svo eru það
sjómennirnir. Ég held að þjóðin
standi í sérstöku og sterku tilfinn-
ingalegu sambandi við sjómenn-
ina, sem kannski má líkja við það
álit sem hermenn annarra landa
njóta. Án þess að samanburður-
inn nái lengra – og guði sé lof fyrir
að Íslendingar skuli ekki vera með
neinn her – sjómennirnir standa
ekki í vígaferlum á öðru en þorski,
loðnu og öðrum sjávarlífverum.
En þeir hafa lagt sig í hættu og
fært fórnir í þágu samfélagsins.
Samfélagslegt gagn af her-
mennsku er einatt tóm blekking
en sjómennirnir færa okkur á
hinn bóginn mikil verðmæti.
Sjómenn njóta virðingar hér á
landi umfram flestar stéttir. Flest
erum við af sjómönnum komin,
mislangt aftur, og í ótal íslenskum
fjölskyldum eru til sögur af sjávar-
háska og ótímabærum dauðs-
föllum í tengslum við sjósókn.
Við búum á eyju, erum
umkringd hafi, skynjum nálægð
þess, ógn þess og fegurð. Við
vitum að við eigum allt undir
því komið hvernig háttað er
umgengni okkar við þá ómetan-
legu auðlind sem við eigum
aðgang að þar og líka hitt: að við
stöndum í þakkarskuld við þá sem
sækja sjávaraflann – draga björg
í bú. Starfið er erfitt og krefjandi,
kostar langdvalir að heiman og
ýmsar fórnir og við viljum að sjó-
menn séu vel launaðir.
Hvernig sýnir samfélagið þessa
almennu virðingu sem borin
er fyrir sjómannsstarfinu? Þeir
hafa sinn dag – Sjómannadaginn
sem víða um land er einn helsti
hátíðisdagur ársins. Sú var tíð að
þeir höfðu sinn sérstaka óska-
lagaþátt í útvarpinu – ásamt
sjúklingum; þetta var eina fólkið
landinu sem Ríkisútvarpið leyfði
að heyra það sem það langaði til;
öll hin máttu hlusta á sinfóníur
og Victor Silvester og hljómsveit.
Það var náttúrlega viss heiður. Og
svo var það sjómannaafslátturinn
á þeim tímum þegar útgerðin
barðist í bökkum og það þurfti að
lokka menn til sjós.
Nú bregður svo við að fólk
lætur lítið í sér heyra til stuðnings
sjómönnum. Ekki þarf endilega
að gera því skóna að það sé vegna
þess að fólk styðji ekki kröfur
þeirra heldur kann það allt eins að
vera vegna þess að erfitt er að átta
sig á þessari deilu og hvers vegna
hún dregst svona á langinn.
Frekjan er vondur förunautur
Eftir því sem maður kemst næst
er nú deilt um fæðiskostnað,
þátttöku sjómanna í olíu-
kostnaði, gott ef ekki kostnað
við internettengingar um borð.
Kröfur sjómanna eru sagðar upp
á þrjá milljarða, en útgerðirnar
ósveigjanlegu eru sagðar tapa
ævintýralegum fjárhæðum á þessu
verkfalli: 700 milljónir á dag er
tala sem sést hefur og þarf þá ekki
að hafa mörg orð um fórnarkostn-
aðinn við að berja þessar kröfur
niður. Ég sá Jóhann Hauksson
fyrrum fréttamann gera því skóna
að stóru útgerðirnar kunni hér að
ráða ferðinni og hugsi sér jafnvel
gott til glóðarinnar þegar minni
útgerðir fara í þrot vegna verk-
fallsins því þá verður auðvelt að
nálgast kvóta þeirra á nauðungar-
uppboðum. Jóhann spyr hvort
það sé kannski „uppboðsleiðin á
kvóta sem þeim hugnist“.
Hér er hvað sem öðru líður
miklu kostað til við að standa
gegn kröfum sem virðast hóflegar.
Það er að minnsta kosti með
hreinum ólíkindum að ekki takist
að semja svo lengi, þegar svo
mikið er í húfi fyrir þjóðarbúið
og smærri byggðarlög. Óneitan-
lega hvarflar að manni að hér sé
dæmi um þann frekjukúltúr sem
við höfum séð þróast hjá ráðandi
útgerðarmönnum og hvernig slíkt
lífsviðhorf er vonlaust leiðar-
ljós til að leysa mál og komast að
Frekjan er vondur förunautur
Þjóðir heims, hver um sig, vilja styðja við bakið á tungu sinni og menningu. Á sögueyjunni
Íslandi er þetta markmið sérstak-
lega mikilvægt en um leið viðkvæmt,
sökum hins takmarkaða fjölda, sem
talar fallega tungumálið okkar. Fjöl-
miðlar og framleiðendur gæðaefnis
gegna hér mikilvægu hlutverki og
vilja nær undantekningalaust sinna
því af myndugleik. Talsverða burði
þarf til geta framleitt, keypt, talsett,
þýtt eða miðlað íslensku efni, hvort
sem er við fréttaöflun, frumsköpun
eða aðra dagskrárgerð. Frjálsir fjöl-
miðlar hafa reynt að sinna þessu eftir
fremsta megni – samhliða ríkismiðl-
inum – og eru býsna stoltir af fram-
lagi sínu til þessa. Róðurinn verður
hins vegar sífellt þyngri, sökum
margvíslegrar alþjóðlegrar þróunar
og afar sérstaks fyrirkomulags í fjöl-
miðlun á Íslandi. Útlitið væri mun
bjartara ef ríkið tæki ekki bróður-
part tekna á fjölmiðlamarkaði til sín.
Tekjur ríkisrekinna fjölmiðlafyrir-
tækja í Evrópu, utan Ríkisútvarpsins,
eru eingöngu í formi árlegs útvarps-
eða afnotagjalds og af sölu á sjón-
varpsefni framleiddu í heimahögum.
NRK í Noregi, SVT í Svíþjóð, DR í
Danmörku og BBC í Bretlandi eru
nær eingöngu rekin fyrir almannafé.
Alls 97% tekna NRK á árinu 2015
fengust með afnotagjöldum, sem
norskum almenningi ber að greiða.
Hlutfallið var 96,5% hjá SVT sama
ár, 92% af tekjum DR og 77,5% hjá
BBC. Afgangurinn var afrakstur sölu
velheppnaðra sjónvarpsþáttaraða og
heimildamynda til annarra landa.
Svipuð upphæð á hvern íbúa
Íslenska ríkið greiðir næsthæstu
upphæð á hvern í íbúa til síns ríkis-
miðils. Einungis Norðmenn greiða
hærri upphæð á haus en við. Engum
þessara miðla utan Íslands er gert
að afla sér auglýsingatekna á sam-
keppnismarkaði, Ríkisútvarpið eitt
býr við þá kvöð. Þriðjungs af tekjum
Ríkisútvarpsins er aflað í harðri
samkeppni um auglýsingafé, sem
háð er daglega við einkamiðla. Sam-
kvæmt ársreikningi 2015 voru aug-
lýsingatekjur Ríkisútvarpsins um 2,8
milljarðar á tímabilinu 1. september
2014 til 31. desember 2015. Í þessari
baráttu nýtur Ríkisútvarpið yfir-
burðastöðu, sem fæst með skyldu-
áskrift og fjölbreyttum aðstöðumun
gagnvart einkamiðlunum. Þannig
dregur hið opinbera til sín sífellt
stærri hluta íslensks auglýsingafjár í
ljósvaka. Eins og gefur að skilja setur
þetta fyrirkomulag verulegar hömlur
á möguleika einkarekinna miðla til
að skapa dýra og metnaðarfulla dag-
skrá. Einkareknir miðlar geta hvorki
stundað öfluga fjölmiðlun – né stuðl-
að að sífelldu og auknu framboði af
íslensku gæðaefni fyrir almenning
– nema hafa möguleika á að afla sér
tekna.
Einfaldar og markvissar umbætur
Illugi Gunnarsson, fyrrverandi
menntamálaráðherra, skipaði
nefnd á dögunum sem á að hafa
það hlutverk að skoða stöðu einka-
rekinna fjölmiðla á Íslandi. Það ætti
að vera fyrsta verkefni nefndarinnar
að skapa íslenskum fjölmiðlum
sama rekstrarumhverfi og þekkist
í nágrannalöndum okkar. Ríkis-
útvarpið stendur sig að mörgu
leyti ágætlega. Vart er þó leiðarljós
íslenska ríkisins að ríkismiðillinn,
einn ljósvakamiðla, sinni íslenskri
tungu og menningu. Einkareknir
fjölmiðlar vilja gjarnan taka þátt í
að styðja með fjölbreyttum hætti við
bakið á blómlegri dagskrárgerð og
efnisframleiðslu á Íslandi. Hægðar-
leikur er fyrir íslenska ríkið að gera
þeim það kleift til framtíðar.
Íslenska ríkið sér á báti
Arnþrúður Karlsdóttir
fyrir hönd Útvarps Sögu
Kristján Kristjánsson
fyrir hönd ÍNN
Orri Hauksson
fyrir hönd Símans
Rakel Sveinsdóttir
fyrir hönd miðla Hringbrautar
Sævar Freyr Þráinsson
fyrir hönd 365 miðla
Í dag
Guðmundur
Andri Thorsson
niðurstöðum. Það er eins og menn
ætlist til að einhver leysi þetta
fyrir þá; komi einhver mamma
og greiði úr öllu. Hér virðist um
að ræða ábyrgðarleysi þeirra sem
aldrei telja sig þurfa að semja við
aðra til að fá eitthvað fram heldur
hafa komist upp með að knýja
fram niðurstöðu í krafti styrks,
auðs og valda. Og hafa það leiðar-
ljós í lífinu að gefa aldrei eftir í
neinu.
Hið eina sem útgerðarmenn
virðast reiðubúnir til að fallast
á sjómönnum til handa á að
koma frá ríkinu, úr sameigin-
legum sjóðum; nokkurs konar
niðurgreiðsla á launum, í formi
skattaafsláttar eða annarra viðlíka
leiða. Sjómenn eru ástsæl stétt og
við teljum að þeir eigi að njóta
góðra kjara og fá sinn sanngjarna
hlut af aflaverðmætinu. En á
meðan veiðigjöld eru svo lág sem
raun ber vitni, og gróðinn jafn
ofsa mikill og verið hefur undan-
farin ár, þá er það til nokkuð
mikils mælst að útgerðarmenn,
sem telja sig ekki muna um að
tapa 700 milljónum á dag, þurfi
samfélagslega aðstoð til að greiða
sjómönnum það sem þeim ber.
En á meðan veiðigjöld eru
svo lág sem raun ber vitni,
og gróðinn jafn ofsamikill
og verið hefur undanfarin ár,
þá er það til nokkuð mikils
mælst að útgerðarmenn, sem
telja sig ekki muna um að
tapa 700 milljónum á dag,
þurfi samfélagslega aðstoð
til að greiða sjómönnum það
sem þeim ber.
Engum þessara miðla utan
Íslands er gert að afla sér aug-
lýsingatekna á samkeppnis-
markaði, Ríkisútvarpið eitt
býr við þá kvöð. Þriðjungs
af tekjum Ríkisútvarpsins er
aflað í harðri samkeppni um
auglýsingafé, sem háð er dag-
lega við einkamiðla.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15M Á n u d a g u R 1 3 . F e B R ú a R 2 0 1 7
1
3
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:1
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
7
-F
5
3
8
1
C
3
7
-F
3
F
C
1
C
3
7
-F
2
C
0
1
C
3
7
-F
1
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K