Fréttablaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 26
Náttúran er
ósnortin. Litirnir
og kyrrðin eru engu lík.
Meira að segja vatnið er
betra þar en annars
staðar.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Gróu finnst Hornstrandir magnaðar og töfrum líkar. MYND/ERNIR
Á leiðinni út á Horn. Hornvík í bakgrunni og Hælavíkurbjarg til vinstri við víkina.
Hornstrandir eru alveg magn-aðar og töfrum líkast að vera þar. Náttúran er ósnortin,
litirnir og kyrrðin eru engu lík.
Meira að segja vatnið er betra þar en
annars staðar. Þetta skilja allir sem
hafa komið til Hornstranda,“ segir
Gróa, sem dvaldi þar í nokkra daga í
fyrrasumar.
„Ég fór í jógaferð sem starfs-
maður á plani. Vinkona mín, Björk
Sigurðardóttir, hefur farið oft þangað
og þekkir svæðið eins og lófann á
sér. Hún vildi sýna mér gönguleiðir
og kynna mér þær vel svo ég geti
farið sjálf með hópa. Við sigldum frá
Bolungarvík lengst inn í Jökulfirði og
fórum í land í Lónafirði. Við gengum
yfir Snókaheiði og í Hrollaugsvík og
þaðan yfir í Látravík og Hornbjargs-
vita. Þar gistum við í þrjár nætur. Við
fórum í eina langa göngu og höfðum
einn hvíldardag þar sem við m.a.
skoðuðum Látravíkina,“ rifjar Gróa
upp en hún lærði leiðsögn og er vön
að ferðast um landið með hópa.
Paradís í góðu veðri
Gróa gekk einnig með hópnum yfir
Almenningsskarð og í Hornvík og
alla leið út á Horn sem strandirnar
eru nefndar eftir. „Við vorum frekar
heppin með veður. Margir segja að
Hornstrandir séu eins og Paradís í
góðu veðri, en hreint helvíti í vondu
veðri og ég trúi að það sé nokkuð til
í því,“ segir hún. „Þetta góða veður
hafði þau áhrif að okkur fannst allt
svo gott. Vitavörðurinn eldaði fyrir
okkur bestu kjötsúpu sem við höfum
smakkað. Við fengum bestu fiski-
bollurnar, búnar til úr nýveiddum
þorski, nýbakað brauð og svo tíndu
nokkrir úr hópnum hráefni í salat,
m.a. skarfakál. Þetta var allt svo
dásamlegt.“
Njóta en ekki þjóta
Tilgangurinn með ferðinni var að
njóta en ekki þjóta, lifa í núinu, og
upplifa staðinn. „Einnig gerðum við
léttar jógaæfingar,“ segir Gróa.
Undirbúningur fyrir næstu ferð er
í fullum gangi en í sumar fer hún til
Hornstranda ásamt Þórlaugu Sveins-
dóttur, á vegum Ferðafélags Íslands.
Gróa mælir með að þeir sem vilji
koma með þjálfi sig vel fyrir ferðina.
„Við munum ganga þrjár til fjórar
dagleiðir upp um fjöll og firnindi.
Þess vegna er gott fyrir fólk að vera
í góðu formi. Við ætlum þó ekki að
hlaupa þetta, heldur ganga á góðum
en stöðugum hraða svo hægt sé að
njóta umhverfisins og fá sem mest út
úr ferðinni.“
Kennir jakkafatajóga
Sjálf byrjaði Gróa að stunda jóga
fyrir fimmtán árum og eftir það
varð ekki aftur snúið. „Ég hef verið
jógakennari síðan 2005. Ég kenndi í
tólf ár hjá World Class en hætti um
áramótin og vinn núna fyrir Jakka-
fatajóga. Við förum inn í fyrirtæki
og kennum fólki léttar jógaæfingar.
Það er svakalega skemmtilegt. Ég hef
kynnst fjölda fyrirtækja sem ég vissi
ekki einu sinni að væru til. Jóga er
eins og verkfæri í verkfæratöskunni
hjá fólki til að láta sér líða vel,“ segir
Gróa sem ætlar að kynna Jógaferðina
í húsnæði Ferðafélagsins í Mörkinni
6 í kvöld.
Jóga á
Hornströndum
Gróa Másdóttir lærði fornleifafræði en
hefur kennt jóga í meira en áratug. Hún
undirbýr jógaferð á Hornstrandir í sumar.
www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is
Yfir 300 vörutegundir
fyrir veitingastaði,
mötuneyti og fyrir þig !
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
M
ER
K
IÐ
M
IT
T
hollur kostur á 5 mín.
Gríms fiskibollur
®
365.IS1817MARGFALT SKEMMTILEGRI
SUNNUDAGA KL. 21:15
and related channels and service marks are the property of Home
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . M a r s 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
2
8
-0
3
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
8
B
-D
F
0
C
1
C
8
B
-D
D
D
0
1
C
8
B
-D
C
9
4
1
C
8
B
-D
B
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K