Fréttablaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 40
Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Bakþankar Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Það er kannski til marks um það hversu miklir snobbarar við Íslendingar erum, að við teljum orðspor okkar í hættu ef upp kemst að við eigum ekki peninga. En ef heimurinn vissi hvernig við hegðum okkur þegar við eigum pening, þá værum við heimsfræg fyrir leiðindi. Ég er hvað stoltastur af því hversu margt skemmtilegt fólk býr á Íslandi og hversu margir eru frjóir í hugsun, eins og sjá má á okkar blómstrandi menningarlífi. Hins vegar finnst mér eins og sífellt sé verið að reyna að stemma stigu við þessum skemmti- legheitum með því að gera landið einsleitt, óréttlátt og leiðinlegt. Stjórnmálamenn tryggja leiðindin með því að varða leið fyrir lénsherra vora. Það getur til dæmis farið svona fram: Skorin var upp herör gegn Airbnb, og dugði ekkert minna en lagasetning og svo hefur bæjarstjóri í Kópavogi talað um að banna það á vissum svæðum til að tryggja eðlilegt framboð af litlum og meðalstórum íbúðum á húsnæðismarkaði. Gott og vel. En frá 2013 hafa félög eins og Gamma, Heimavellir, BK Eignir og Ásbrú ehf. keypt upp hátt í þrjú þúsund íbúðir og mokgræða á að leigja þær út. Leigan hefur á sama tíma hækkað von úr viti og er svo komið að fólk sem er ekki með háar tekjur er á vonarvöl. Stjórnvöld hafa brugðist við og í þessum mánuði undirritaði borgarstjóri samning við fyrirtæki í eigu Ólafs Ólafssonar um að reisa 332 íbúðir. Býsna ólík viðbrögð við svipuðum vanda sem staðfesta viðleitnina. Þar sem pólitíkusar duga engan veginn, biðla ég beint til auðmanna: Þið fenguð fiskinn, og völdin, og fáið fjármálastofnanirnar jafnóðum og almenningur hefur lagað þær. Hvernig væri nú að fara að njóta lífsins og hætta þessum leiðindum? Ekki þessi leiðindi BIG LITTLE LIES ® SUNNUDAGA KL. 21:15 365.IS1817 and related channels and service marks are the property of Home OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA 2 8 -0 3 -2 0 1 7 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 8 B -A D A C 1 C 8 B -A C 7 0 1 C 8 B -A B 3 4 1 C 8 B -A 9 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.