Fréttablaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 1
Ferðaþjónusta Stjórnvöld hafa til skoðunar að beita frekari úrræðum til þess að takmarka skammtíma útleigu á íbúðum, til dæmis í gegn- um Airbnb. Þetta segir Karl Pétur Jónsson, aðstoðarmaður félags- og húsnæðismálaráðherra. Þetta er ein þeirra tillagna sem rætt er um í starfs- hópi fjögurra ráðuneyta til að bregð- ast við aðstæðum á íbúðamarkaði. Áformað er að kynna tillögur hópsins öðrum hvorum megin við páska. Karl Pétur segir að í dag sé verið að ræða um 20 hugmyndir sem verði fækkað niður í tíu. „Ég get staðfest það að einn af þeim hlutum sem er verið að skoða eru frekari takmarkanir á Airbnb. En það er ekki komið á það stig að það sé hægt að ræða einhverjar frekari útfærslur,“ segir Karl Pétur. Næstum sjö af hverjum tíu sem afstöðu taka í nýrri könnun Frétta- blaðsins, Stöðvar 2 og Vísis telja að takmarka eigi leigu á íbúðum til ferðamanna. Þriðjungur svarar slíkri spurningu hins vegar neitandi. Í nýlegri skýrslu Íslandsbanka um ferðaþjónustuna kemur fram að á síðastliðnu ári var meðalfjöldi virkra gistirýma á Airbnb í Reykjavík 2.000, sem er tvöfalt fleiri en árið á undan. Búist er við því að eftirspurn eftir Airbnb-íbúðum og annars konar gistingu aukist enn frekar. Líkur eru á að leiguverð hækki enn meira. Könnunin var gerð 20. og 21. mars. Hringt var í 1.242 manns þar til náðist í 791 samkvæmt lagskiptu úrtaki. Svarhlutfallið var 63,7 prósent. – jhh /sjá síðu 4 — M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —7 4 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r þ r i ð j u d a g u r 2 8 . M a r s 2 0 1 7 FrÍtt Vilja hertar reglur um heimagistingu ✿ á að takmarka leigu á íbúðum til ferðamanna? 31 ,4 % já nei 68 ,6% EF ÞÚ BORGAR MEÐ KASS! 7.000 KR. MIÐAÐ VIÐ FULLT MIÐAVERÐ EFTIR AÐ FORSÖLU LÝKUR AFSLÁTTUR Á ÞJÓÐHÁTÍÐ Fréttablaðið í dag skoðun Oddný G. Harðar- dóttir skrifar um fjármálastefnu ríkisins. 10 sport Úrslitakeppni Domino’s- deildar kvenna hefst í kvöld á heimavelli Íslandsmeistara Snæ- fells í Stykkishólmi. Fréttablaðið fékk sjö leikmenn úr hinum liðum deildarinnar til að spá um hverjir komist í lokaúrslitin í ár. 12 sport Roy Keane skoraði tvö mörk síðast þegar Ísland mætti Írlandi. Liðin mætast í kvöld. 13 plús 2 sérblöð l Fólk l  Húsnæði og viðHald *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 EF ÞÚ BORGAR E ! MIÐAÐ VIÐ FULLT MIÐAVERÐ EFTIR AÐ FORSÖLU LÝKUR saMFélag Að verða fyrir áreitni af ýmsu tagi er ömurlegur partur af starfi skemmtikrafta að sögn Mar- grétar Erlu Maack. Salka Sól sagði frá áreitni á Twitter um helgina og Margrét Erla hefur lent í svipuðu. „Þetta er alveg helmingur af þeim giggum sem ég tek, þá lendi ég í einhvers konar káfi, áreitni eða óvið- eigandi athugasemdum,“ segir hún. „En núna þegar ég er ráðin þá segi ég oft í gríni: „Ég kosta þetta en ef það kemur dónakall þá er það 30.000 krónur auka.“ Þá eru allir meðvitaðir um hver staðan er,“ segir hún. – gha / sjá síðu 22 Skemmtikraftar eru oft áreittir vikmörk 3,23% Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, gengur framhjá Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur og Gunnari Braga Sveinssyni, þingmönnum Norðvesturkjördæmis, á fundinum í gærkvöldi. Fréttablaðið/Ernir akranes Bæjarstjórn og bæjarstjóri Akraness funduðu í gær með þing- mönnum Norðvesturkjördæmis og Vilhjálmi Birgissyni, formanni Verkalýðsfélags Akraness, í ráð- húsi sveitarfélagsins. Umræðuefni fundarins var fyrirhuguð breyting á rekstri HB Granda en fyrirtækið stefnir að því að hætta botnfisk- vinnslu á staðnum og flytja starf- semina til Reykjavíkur. Forsvars- menn HB Granda hafa haft samráð við trúnaðarmenn stéttarfélaganna um aðgerðina. Á Akranesi starfa um 270 starfs- menn innan samstæðu HB Granda, þar af starfa 93 við botnfiskvinnsl- una. Helmingur alls kvóta HB Granda kom í gegnum sameiningu félagsins við Harald Böðvarsson & co í árslok 2004, en fyrir þann tíma hét félagið Grandi ehf. Er það stefna bæjaryfirvalda að tryggja að ef vinnslan á að sameinast á einum stað þá verði það á Akranesi. „Við Skagamenn erum slegnir yfir þessum fréttum. Við viljum halda starfsemi áfram á Akranesi og byggja upp. Staðan er ótrúlega döpur og vekur upp spurningar um hvort við séum á réttri leið,“ sagði Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferða- mála-, iðnaðar- og nýsköpunarráð- herra, að fundi loknum. Í tilkynningu frá HB Granda segir að hvorki sé hafnaraðstaða né að- staða til vinnslu alls botnfiskafla ísfisktogara á Akranesi. Forsvars- menn félagsins og Akranesbæjar eiga í viðræðum um mögulegar breytingar á því. „Það eru miklar áhyggjur hjá bæjarstjórninni og við þingmenn tökum undir þær. Menn eru ekki úrkula vonar um að stjórnarmenn fyrirtækisins horfi til samfélags- legrar ábyrgðar og langrar sögu fyrirtækisins,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna í kjördæminu. „Hérna eru heimamenn tilbúnir til að byggja upp og bæta aðstöðu sem þarf til hér við höfnina. Það er okkar von að þeir fái frest til að skoða þessi mál í samhengi áður en afdrifaríkar ákvarðanir verða teknar.“ – jóe / sjá síðu 4 Neyðarfundur vegna aðgerða HB Granda Tæplega hundrað starfsmönnum í botnfiskvinnslu HB Granda á Akranesi verður sagt upp og vinnslan færð til Reykjavíkur. Þingmenn kjördæmisins og bæjarstjórn funduðu í gærkvöldi vegna málsins. Það er okkar von að þeir fái frest til að skoða þessi mál í samhengi áður en afdrifaríkar ákvarð- anir verða teknar. Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG 2 8 -0 3 -2 0 1 7 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 8 B -A D A C 1 C 8 B -A C 7 0 1 C 8 B -A B 3 4 1 C 8 B -A 9 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.