Fréttablaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 28.03.2017, Blaðsíða 24
Ragnheiður Tryggvadóttir heida@365.is Tískuliturinn í ár. Anna Pála Pálsdóttir Dökkir litir eru einnig afar vinsælir. Aðaltískulitur Pantone í ár er grasgrænn, sem tengist sennilega þeim vinsældum sem grænar plöntur hafa í dag,“ segir Anna Pála Pálsdóttir, arkitekt FAÍ og innan- hússhönnuður, spurð út í helstu tískustrauma innanhúss. „Annars má segja að tvær stefnur séu í gangi varðandi litaval, annars vegar ljósir pastellitir sem henta vel í minni rými; fölbleikur, ljós- blágrænn, ljósgrænn og ljósgrár, og hins vegar þessir möttu, dökku og þungu litir eins og dökkblár, dökkgrænn og dökkgráir tónar, sem henta betur í stærri rými og á einstaka veggi. Hráir steypuveggir geta líka komið mjög vel út, þá sérstaklega í rými þar sem lofthæð er mikil. Þó þarf að athuga að þessir dökku litir henta ekki öllum rýmum. Mér finnst anddyri og svefnherbergi mega vera í dekkri litum, en herbergi þar sem verið er að vinna, er betra að hafa í ljósari litum sem endurkasta birtu um rýmið. Sterkir litir og veikari passa líka oft fallega saman.“ Hvers konar gólfefni eru vinsæl? „Ég er alltaf hrifnust af viðar- parketi eða gegnheilu viðargólfi inni á heimilum. Það er lifandi efni, mjúkt og verður fallegra með tímanum þótt sjái á því. Fallegar flísar eru líka alltaf klassískar en hafa stækkað mikið síðustu ár. Sjálfri finnast mér stórar flísar ekki henta í lítil rými. Ég er einnig mjög hrifin af flotuðum gólfum sem hægt er að skreyta fallegum mottum. Í rými þar sem huga þarf að hljóð- ísogi koma munstraðar teppaflísar sterkar inn.“ Lýsing „Lýsing hefur ótrúlega mikið að segja og getur gjörbreytt rýmum. Með því að nota dimmera má stjórna lýsingunni úr því að lýsa upp allt rýmið niður í „kertaljósa- birtu“. Mikilvægt er að hafa góða lýsingu þar sem verið er að vinna en leika sér með áberandi loftljós, borð- og gólflampa í stofu og borð- stofu, sérstaklega ef lítið er um inn- fellda lýsingu í loftum til að skapa notalegt andrúmsloft.“ Frískað upp á einfaldan máta „Bara það að mála einn vegg á heimilinu í sterkum, fallegum Plöntugrænt á veggina Anna Pála Pálsdóttir, arkitekt FAÍ og innanhússhönnuður, fer yfir helstu tískustrauma og trix fyrir sumarið þegar fríska á aðeins upp á heimilið. Hágæða stigahúsateppi Stigahúsateppin okkar eru slitsterk, ofnæmisprófuð og auðveld í þrifum. Gerum verðtilboð að kostnaðarlausu. Komdu og sjáðu úrvalið. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig. Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570 lit getur gert mjög mikið. Einnig mætti skipta um höldur á gömlum innréttingum, setja nýja borðplötu í eldhús og baðherbergi, polýhúða eldri járnhluti, setja nýtt áklæði á gamlan sófa og stóla, nota spegla til að stækka rými eða klæða sökkla upp á nýtt. Oft er gaman að skipta út skrautmunum eins og púðum og kertastjökum eftir t.d. árstíðum, ásamt því að huga að lýsingu og fallegum plöntum. Algengustu mistökin? „Kostnaðarsömustu rýmin til að taka í gegn eru eldhús og baðher- bergi, meðal annars vegna þess að það þarf að fá iðnaðarmenn á öllum sviðum í vinnu, ásamt hönn- uði til að skipuleggja rýmið. Algengustu mistök sem fólk gerir er að leggjast sjálft í of stórar framkvæmdir og týna þræðinum á miðri leið. Því er nauðsynlegt að hafa hönnuð með sér frá byrjun í skipulaginu Þá eru algeng mistök að byrja á því að kaupa fullt af nýjum hlutum inn í nýkeypta íbúð. Betra er að búa á nýju heimili í smá tíma til að átta sig á hvað hentar inn. En aðalatriði í hönnun heimila er að heimilisfólkinu líði vel og leggi áherslu á að huga að þörfum sínum og líðan.“ 8 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . m A r s 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 8 -0 3 -2 0 1 7 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 8 B -E 3 F C 1 C 8 B -E 2 C 0 1 C 8 B -E 1 8 4 1 C 8 B -E 0 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 2 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.