Lystræninginn - 01.05.1979, Blaðsíða 22

Lystræninginn - 01.05.1979, Blaðsíða 22
Vernharður Linnet MINNISPUNKTAR UM DJASSGESTI Jazzvakning Jazzvakning heldur merki djassins hátt á lofti og á aðeins hálfu ári hefur félagið staðið fyrir tónleikum þriggja bopmeistara í Reykjavík. Dexter Gordon, Dizzy Gillespie og Art Blakely hafa músíkserar hér með hljómsveitum sínum. Skrifað hefur verið um tónleika þeirra á öðrum vettvangi og skal það ekki endurtekið hér. Hér verða aðeins rifjuð upp orð og atburðir úr Keflavík-Reykjavík-Keflavík tónahraðlestinni. Long Tall Dex Dexter Gordon kom hingað í október sl. ásamt félög- um sínum: píanistanum George Cables, bassaleikaran- um Rufus Reid og trommaranum Eddie Gladden. í morgunskímunni lenti Flugleiðavélin frá New York á Keflavíkurflugvelli. Ömurlegir braggarnir kúrðu við malbikið og flugvélin spýtti farþegunum útí morgun- svalann. Síðastur fór Dexter sem þurfti að spjalla við flugfreyjurnar. Hann var hress áleiðinnitilReykjavíkur en Eddie Gladden kúrði í aftursætinu. - Það er lifsnauðsyn að djassinn fái sama uppslátt í fjölmiðlum og poppið, sagði hann og hélt síðan áfram og kryddaði enskuna á stundum með dönsku. - Hvað haldiði að margir blaða- og útvarpsmenn hefðu verið á flugvellinum núna ef Frank Sinatra eða Rolling Stones hefðu verið að koma? Djassinn er í sókn, og það þarf að kynna hann fyrir fólki. Bítlamúsíkantarnir fóru að fitla við að spinna stutta sóló og það kom krökkunum á bragðið. Við höfum verið að leika um þver og endilöng Bandaríkin og allstaðar fullt af ungu fólki. Var Niels- Henning að leika hjá ykkur? Stórkostlegur músíkant Niels-Henning. Við lékum Iengi saman á Montmartre þegar hann var krakki. Hann er stjúpsonur minn í músíkinni. Hvað segirðu! Fæst Manhattan Symphonie í búðunum hérna! Heyrirðu þetta Eddie? Nýja platan okkar er komin í búðirnar hérna. Það sem stóru félögin gefa út er komið um allan heim á örskotsstundu. Það þarf að kynna djassinn betur. Það er aðalatriðið Við gerum stuttan stans við heita lækinn. - Hér væri gaman að skola af sér. Ekki satt Eddie? Of kalt. Kannski á þurru en vatnið er heitt. Það vareinhver van- viti í New York sem hélt að ísland þýddi eyja. Ég vissi betur. Þetta er land elds og íss. Einhverntíma hef ég leikið með íslendingum í Skandinavíu. Ég á enn húsið mitt í Valby. í allflestum djasstímaritum heimsbyggðarinnar var Dexter kjörinn djassleikari ársins eða tenórsaxafón- leikari ársins nema hvortveggja væri. Það var ekki fullt þegar hann lék í Háskólabíói. Héðan hélt hann til Evrópu. í Lissabon voru níu þúsund manns á tónleikum hans. Dexter og Eddie Gladden við heita lækinn. 22

x

Lystræninginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lystræninginn
https://timarit.is/publication/1228

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.