Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Qupperneq 4
4 Fréttir Vikublað 5.–7. janúar 2016
og
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR
Hagnaður fisk-
eldis tífaldaðist
Eignir Fiskeldis Austfjarða jukust um 1.690 milljónir
F
iskeldi Austfjarða var rekið með
559 milljóna króna afgangi árið
2014 og var hagnaður tímabils-
ins tífalt meiri en árið á und-
an. Eignir fiskeldisins jukust úr 910
milljónum í lok 2013 í 2,6 milljarða
ári síðar.
Fyrirtækið er með 11.000 tonna
framleiðsluleyfi á laxi í Beru- og Fá-
skrúðsfirði, ásamt því að eiga 50%
eignarhlut í seiðastöðinni Ísþór í
Þorlákshöfn og fiskvinnslunni Bú-
landstindi á Djúpavogi. Eigið fé þess
nam 1.207 milljónum í árslok 2014
og hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði (EBITDA) 801 milljón.
MNH Holding AS, eitt stærsta fisk-
eldisfyrirtæki Noregs, keypti í nóv-
ember síðastliðnum 50% hlut í Fisk-
eldi Austfjarða. Fjárfesting norska
fyrirtækisins var þá sögð tengjast
áformum um aukin umsvif við lax-
eldi í sjókvíum á Austfjörðum. Fisk-
eldi Austfjarða, sem var stofnað 2012,
var áður alfarið í eigu innlendra aðila
og Eggjahvíta ehf., félag í eigu Guð-
mundar Gíslasonar, stjórnarfor-
manns fyrirtækisins, var langstærsti
hluthafinn. Guðmundur vildi ekki
svara spurningum blaðamanns um
afkomu fyrirtækisins 2014 þegar eftir
því var leitað. n haraldur@dv.is
Berufjörður Fiskeldi Austfjarða
er meðal annars með starfsemi í
Berufirði á Austurlandi.
Fengju þriðjung
Píratar fengju þriðjung atkvæða
ef gengið yrði til alþingiskosninga
nú, ef marka má spánnýja og um-
fangsmikla könnun sem Gallup
gerði á fylgi flokka í lok nóvember
og út desember. Þá voru sjö þús-
und spurðir en þátttökuhlutfall
var 60 prósent.
Píratar fengju 33 prósent at-
kvæða og eru enn langvinsæl-
astir. Sjálfstæðisflokkurinn fengi
25 prósenta fylgi en Framsóknar-
flokkurinn 12 prósent. Samfylk-
ingin og VG fengju hvor um sig
10 prósent. Aðrir flokkar ná ekki 5
prósenta fylgi.
Birgit safnar fyrir eina
kanínubúi landsins
Birgit Kositzke hefur sett af stað söfnun á Karolina Fund til bjargar kanínubúi sínu
B
irgit Kositzke hefur ræktað
kanínur til manneldis á
Syðri-Kárastöðum undan-
farin fjögur ár. Reksturinn
stendur ekki enn undir sér
og nú er svo komið að hana vantar
fjármagn til þess að halda ræktun-
inni áfram.
Hún hefur því sett af stað söfnun
á Karolina Fund undir yfirskriftinni
„Björgum eina kanínubúi landsins
– valkostur á íslenska kjötmarkaðn-
um“. Framtakið hefur vakið tals-
verða úlfúð hjá dýravinum sem
finna Birgit og hennar rekstri allt til
foráttu.
„Aldrei stór markaður“
Í söfnuninni óskar Birgit eftir að
lágmarki 3.000 evrum, um 420
þúsund krónum. Hún hefur þegar
safnað 45% af upphæðinni og enn
eru 12 dagar til stefnu. Hún telur
að kanínukjöt sé áhugaverður val-
kostur á íslenskum kjötmarkaði
og er bjartsýn á að reksturinn geti
orðið sjálfbær. „Þetta verður aldrei
stór markaður en þetta er hágæða-
vara og ég verð vör við áhuga neyt-
enda. Íslendingar ferðast mikið og
hafa bragðað kanínukjöt erlendis
og einnig hafa margir íslenskir
matreiðslumenn komist í kynni
við hráefnið þegar þeir eru í starfs-
námi erlendis,“ segir Birgit. Nokkrir
veitingastaðir, til dæmis Kolabraut-
in í Hörpu, kaupa af henni kjöt auk
þess sem einstaklingar geta keypt
vöruna í Matarbúrinu úti á Granda.
Leitar að samstarfsaðila
Að sögn Birgitar er hún ekki síst að
leita eftir samstarfi við hæfa aðila
og vonar að athyglin sem söfnun-
in vekur muni opna augu áhuga-
samra fjárfesta. „Það fer mikill tími
í að hugsa um kanínurnar og því er
erfitt að komast frá Hvammstanga.
Það þýðir að sölu- og markaðsstarf
situr á hakanum og það tefur fyrir
því að reksturinn geti staðið undir
sér,“ segir Birgit en búið telur nú um
fjögur hundruð dýr.
Að hennar sögn slátraði hún
650 kanínum í fyrra. „Það er ekkert
mál að fjölga kanínum en það er
vandasamt að rækta þær. Það þarf
að velja réttu dýrin til undaneldis,“
segir Birgit.
Dýrvinir ósáttir
Á vef Karolina Fund hafa
dýravinir farið hörðum orð-
um um söfnun Birgitar. Þar er
frumkvöðulsstarfsemi hennar sögð
vera ljót, sjálfselsk og ónauðsyn-
leg. „Ég skil ekki hvernig þér finnst
að fólk eigi að „bjarga“ kanínunum
frá því að þú drepir þær með því að
borga þér pening til þess að þú getir
framleitt fleiri kanínur bara til þess
að drepa þær?“ spyr Kristín Helga-
dóttir. „Mikið vona ég að það verði
ekkert úr þessu. Íslendingar hafa
margt annað hollt og gott að borða
svo þessi búskapur er algjörlega
óþarfi,“ segir Tinna Björg Hilmars-
dóttir.
Dýrahjúkrunarfræðineminn
Svava Kristjana Lövdal gerir
athugasemdir við aðbúnað dýr-
anna. Af myndum að dæma segir
hún að kanínurnar séu of margar
í hverju búri og að aðbúnaður
þeirra sé ekki nógu góður. Að sögn
Birgitar koma þessi viðbrögð henni
ekki á óvart en henni sárnar um-
ræðan um aðbúnað dýranna. „Ég
skil vel að þeir sem hafa vanist kan-
ínum sem gæludýr kunni ekki að
meta þetta framtak, ég átti von á
því. Hins vegar legg ég mikla alúð í
velferð og aðbúnað dýranna og ég
er á móti hefðbundinni kanínurækt
þar sem dýrunum er gefið prótín-
ríkt fæði til þess að hægt sé að slátra
þeim innan þriggja mánaða,“ segir
Birgit. Hún segir skrítið að aðbún-
aður dýranna sé gagnrýndur af
einstaklingum sem hafa ekki kynnt
sér aðstöðuna. „Ég ætla að halda
opið hús í lok maí og þá er öllum
velkomið að kíkja við og skoða sig
um,“ segir Birgit. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„Ég ætla að halda
opið hús í lok maí
og þá er öllum velkomið
að kíkja við og skoða sig
um.
Birgit Kositzke Hefur unnið ötullega að því að byggja upp kanínurækt til manneldis
undanfarin fjögur ár. Hún telur að reksturinn muni standa undir sér síðar á árinu en brúa þurfi
bilið fram að því.
Kanínur Mynd
frá búi Birgitar.
Maðurinn
var Breti
Er lendi ferðamaður inn, sem
fannst lát inn við Skóg ar nes á
Snæ fellsnesi á sunnudagskvöld,
var Breti. Maðurinn, sextugur,
fannst skammt frá bíl sem hann
hafði tekið á leigu og átti að skila á
sunnudag. Grunsemdir vöknuðu
eftir að hann skilaði sér ekki í flug
á tilsettum tíma. Ekk ert bend ir
til þess að and lát manns ins hafi
borið að með sak næm um hætti
en mikill viðbúnaður var á Vest-
urlandi eftir að bíll hans fannst
mannlaus. Björgunarsveitar menn
og sporhundar voru kallaðir út
en í fyrstu var talið að tveir menn
væru týndir.