Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Side 8
Vikublað 5.–7. janúar 20168 Fréttir A ðstandendur heimilda- myndarinnar Drag Dad söfnuðu um 22 þúsund dollurum, tæpum þremur milljónum íslenskra króna, á vefsíðunni Kickstarter um mitt ár 2012. Myndin var aldrei kláruð og voru aðstandendur hennar meðal annars sakaðir um að hafa eytt pen- ingunum í ferðalög á Facebook-síðu myndarinnar. Forsprakki verkefnis- ins, Björn Erlingur Flóki Björnsson, segir að ásakanirnar séu úr lausu lofti gripnar en að sú staðreynd að myndin hafi runnið út í sandinn hafi verið „persónulegur ósigur“ fyrir sig. Byrjaði sem skólaverkefni Í apríl 2012 var Björn Flóki í kvik- myndanámi við The New School í New York þegar hann gerði stutt- mynd fyrir verkefni í skólanum. Stuttmyndin fjallaði um einstæða föðurinn James Ross, sem er betur þekktur sem dragdrottningin Tyra Sanchez. Björn Flóki heillaðist af sögu Ross og aðstæðum hans og taldi að um prýðilegan efnivið í heimildamynd væri að ræða. Stutt- myndin heppnaðist vel og lá bein- ast við að taka upp meira efni með James og syni hans til að framleiða heimildamynd í fullri lengd. Ótrúlegur stuðningur „Ég var í góðu sambandi við James á þessum tíma, þar sem við töluðum reglulega á Skype um líf hans, fjöl- skyldu og framavonir. James var mjög spenntur að taka þátt í verkefni þar sem hann fengi tækifæri til að segja sína sögu á opinskáan hátt. Á þeim tíma bjuggu James og sonur hans Jer- emiah einir í lítilli íbúð í Atlanta þar sem James vann fyrir þeim feðgunum með því að skemmta sem dragdrottn- ingin Tyra Sanchez,“ segir Björn Flóki. Hann og framleiðandi myndarinn- ar, Denis Deck, settu saman tökuplan og fjárhagsáætlun og söfnun var sett af stað á Kickstarter. „Viðbrögðin við verkefninu voru vonum framar. Við fundum fyrir ótrúlegum stuðn- ingi og áhuga frá fólki víðs vegar að í heiminum, sem eins og okkur fannst vanta sögur eins og þessa, um hvernig „óhefðbundið“ fjölskyldulíf getur heppnast vel. Við náðum 16.000 dollara takmarki okkar og rúmlega það,“ segir Björn Flóki og telur að alls hafi safnast um 22.000 dollarar með styrkjum í gegnum Paypal. Sam- kvæmt upplýsingum frá Kickstarter styrktu 633 aðilar gerð myndarinnar með fjárframlagi. Aðstæður gjörbreyttust Stuttu eftir að fjáröfluninni á Kickstarter lauk gjörbreyttust aðstæð- ur viðfangsefnisins. James Ross flutti frá Atlanta til Orlando þar sem fjöl- skylda hans og barnsmóðir, Cynthia, bjuggu. „Hann hafði lent í fjárhagserf- iðleikum í Atlanta og gat ekki haldið þeim feðgum uppi fjárhagslega einn síns liðs og var knúinn til að gista á sófum félaga sinna í Orlando. Hann vildi ekki láta son sinn búa við þannig lífsstíl svo Jeremiah flutti til móður sinnar haustið 2012. Þetta var ákveðið áfall því að sagan snerist um uppeldi James á Jeremiah en nú bjuggu þeir ekki lengur saman,“ segir Björn Flóki. Fótunum hafi í raun verið kippt und- an myndinni. Með tökulið til Orlando Í viðleitni sinni til að klára myndina þrátt fyrir breyttar aðstæður þá ferð- aðist Björn með fjögurra manna tökulið frá New York til Orlando og var ætlunin að taka upp efni í tvær vikur. „Við náðum góðum augna- blikum en vegna breyttra kringum- stæðna áttum við ekki efni til að klára heimildamynd sem segði söguna sem við ætluðum okkur að segja. Þetta var ekki „Drag Dad“-sagan sem við sáum í Atlanta. Auk breyttra að- stæðna vildi móðir Jeremiah ekki taka þátt í myndinni og bókstafs- trúarfjölskylda James, sem skamm- aðist sín fyrir kynhneigð sonar síns, hafnaði þátttöku,“ segir Björn Flóki. Um sextíu klukkustundir af efni voru til taks en sagan var ekki heilsteypt. Játa sig sigraða Ári síðar gerði Björn aðra tilraun til þess að fylla upp í götin í myndinni og fór í fimm daga tökuferð til Or- lando. Barnsmóðir James hafði hins vegar fulla umsjón með syni þeirra alla daga og tilraunir James til þess að safna nægu fé til þess að kaupa íbúð og hefja nýtt líf með syninum höfðu ekki gengið eftir. Að sögn Björns hafa aðstandendur myndarinnar vonast til þess að taka þráðinn upp aftur síð- ar þegar að aðstæður feðganna hafi breyst til batnaðar en með hverjum mánuðinum hafi sú von dvínað og nú er svo komið að þeir hafi ákveðið að játa sig sigraða. Barnsmóðir James er flutt til Boston ásamt syni þeirra og James býr í Orlando. „Það er búið að taka langan tíma að sætta sig við þess- ar lyktir mála, sérstaklega þar sem svo margir stuðningsaðilar höfðu trú á þessu verkefni með okkur. Hins vegar geta því miður mörg „observational“ heimildamyndaverk efni endað, þar sem efniviðurinn getur breyst á augnabliki án viðvörunar,“ segir Björn Flóki og bætir við að hann sjálfur hafi stutt við heimildamyndarverkefni á Kickstarter þar sem hætt hefur verið við tökur vegna breyttra aðstæðna. Engin laun fyrir vinnuna Eins og títt er með hópfjármögnun þá fengu stuðningsaðilar Drag Dad loforð um ýmiss konar glaðning (e. rewards) fyrir stuðninginn. Að sögn Björns Flóka stóðu aðstandend- ur Drag Dad við þessi loforð eins og unnt var. Stuðningsaðilar fengu glaðning eins og ljósmyndabók fra tökum, áritaðar myndir og plaköt af stjörnu myndarinnar, persónu- legar þakkir og ýmislegt fleira. Eðli málsins samkvæmt var hins vegar ekki hægt að senda DVD-eintak af myndinni til þeirra. Björn Flóki segist engin laun hafa tekið sér fyrir þá vinnu og tíma sem fór í undirbúning og tökur á ver- kefninu. Stærsti kostnaðarliður- inn var fyrri ferðin til Orlando með fjögurra manna tökulið en hún kost- aði um 1,4 milljónir. Inni í þeirri tölu eru ferðakostnaður, gisting, fæði, leiga á búnaði og tryggingar. Seinni ferðin kostaði rúmlega 500 þúsund krónur. Um 300 þúsund kostaði að senda umbun til stuðningsaðila úti um allan heim og 250 þúsund krón- ur runnu til Kickstarter sem þóknun. Afgangurinn fór í upphaflegu tökurn- ar í New York og þá eftirvinnslu sem þó var lagt í. „Ég skil óánægju þeirra sem lögðu til fjármuni í þetta verkefni. Myndin var mér sjálfum mjög kær og að svona skyldi fara er persónu- legur ósigur fyrir mig,“ segir Björn Flóki. James Ross kaus að tjá sig ekki um málið þegar DV hafði sam- band við hann og vísaði á Björn Flóka. n „Persónulegur ósigur fyrir mig“ n Söfnuðu tæpum þremur milljónum á Kickstarter n Myndin rann út í sandinn Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Björn Erlingur Flóki Björnsson Hefur játað sig sigraðan varðandi heimildamyndina Drag Dag. Feðgar Hér má sjá James Ross, í gervi dragdrottningarinnar Tyru Sanchez, ásamt syni sínum Jeremiah. Ross skaust upp á stjörnuhim-ininn þegar hann bar sigur úr býtum í annarri þáttaröð Drag Race. Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is Sérfræðingar í prenthylkjum prentari: 16.900 kr. 5 hylkja sett: 3.900 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.