Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Qupperneq 16
Vikublað 5.–7. janúar 201616 Sport
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is
M.BENZ C 180 CDI
07/2014, ekinn 39 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur. OKKAR BESTA VERÐ
5.490.000 kr. Raðnr.254586
BMW 520D XDRIVE M-PACK F10
04/2015, ekinn 5 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur. OKKAR BESTA VERÐ
8.750.000 kr. Raðnr.254416
AUDI A6 2.0 TDI S-LINE
08/2014, ekinn 16 Þ.km, disel,
sjálfskiptur, gríðarlega vel búinn!
Verð: 7.980.000 kr. Raðnr.254356
M.BENZ E 200CDI T BLUETEC
AVANTGARDE 11/2014, ekinn
28 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.
Verð: 6.990.000 kr. Raðnr.254418
AUDI A6 2.0 TDI
05/2012, ekinn 50 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur. OKKAR BESTA VERÐ
6.290.000 kr. Raðnr.254089
Þ
að er hnefaleikakappinn
Floyd Mayweather sem þén-
ar íþróttamanna mest, sam-
kvæmt lista Forbes fyrir árið
2015. Mayweather ber höfuð
og herðar yfir aðra íþróttamenn
þegar kemur að launatölum. Boxar-
inn Manny Pacquiao er í öðru sæti og
er hálfdrættingur á við Mayweather.
Inn á listann yfir tíu hæst launuðu
íþróttamennina nær engin kona, en
sú kona sem er launahæst kemst í
26. sæti yfir alla íþróttamenn. Það er
Maria Sharapova tenniskona. Serena
Williams, sem á dögunum var út-
nefnd besta íþróttakona heims, er í
47. sæti. n
Þeir þéna mest
n Þetta eru launahæstu íþróttamenn heims 2015 n Konur komast ekki á topp tíu listann
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
1 Floyd
Mayweather
300 milljónir dollara
Mayweather er 300 milljóna dollara
virði, eða tæplega 39 milljarða ís-
lenskra króna. Hann er langlauna-
hæstur, laun og vinningsfé hans
nemur 285 milljónum dollara og
auglýsinga- og styrktarsamningar
hans nema fimmtán milljónum
dollara. Mayweather er 38 ára,
fjögurra barna faðir og býr í Los
Angeles. Hann nær einnig að vera
launahæstur á lista yfir „fræga fólkið“,
hjá Forbes. Mayweather hefur slegið
öll met, en áður hafði Tiger Woods,
sem er í níunda sæti á þessum lista,
þénað langmest. Það var árið 2008
þegar Woods hafði upp úr krafsinu
115 milljónir dollara.
2 Manny
Pacquiao
160 milljónir dollara
Ferill Pacquiao hefur verið fjöl-
breyttur. Á árunum 2001–2010 var
hann valinn hnefaleikari áratugar-
ins, en hann hefur að auki tekið sæti
á fulltrúaþinginu á Filippseyjum,
verið leikari, tónlistarmaður og spil-
að og þjálfað körfubolta. Hann fékk
148 milljónir dollara í laun og vinn-
ingsfé á árinu 2015 og hefur gert aug-
lýsingasamninga að virði 12 milljóna
króna Bandaríkjadollara.
3 Cristiano
Ronaldo
79,6 milljónir dollara
Besti fótboltamaður heims, marka-
kóngurinn Cristiano Ronaldo, er í
þriðja sæti listans. Ronaldo spilar
fyrir Real Madrid þar sem hann fær
ríflega fimmtíu milljónir dollara í
laun árlega, auk bónusa. Hann hefur
að auki gert auglýsinga- og styrktar-
samninga fyrir 27 milljónir dollara.
Hann er vinsælasti íþróttamaður
heims, eins og auglýsingasamn-
ingarnir sýna, en hann þykir að auki
sérstaklega laglegur og því einstak-
lega vinsæll sem fyrirsæta.
4 Lionel Messi
73,8 milljónir dollara
Knattspyrnumaðurinn Lionel Messi,
sem spilar fyrir Barcelona, hefur líkt
og Cristiano Ronaldo, gert launa-
samninga fyrir 50 milljónir dollara.
Hann hefur gert 22 milljóna dollara
auglýsinga- og styrktarsamninga.
5 Roger Federer
67 milljónir dollara
Tennisspilarinn Roger
Federer er sá fyrsti á
listanum sem hefur
meiri tekjur af aug-
lýsingasamningum
en í laun og verð-
launafé. Verðlauna-
féð er níu milljónir
dollara, en styrktar- og auglýsinga-
samningar hans eru að andvirði 58
milljóna dollara. Hann hefur undan-
farin sautján ár verið meðal tíu bestu
tennisspilara heims og hefur sett met
þegar kemur að því að sanka að sér
verðlaunafé, sem samanlagt í gegnum
ferilinn nemur 90 milljónum dollara.
6 LeBron James
64,8 milljónir dollara
LeBron James var fyrsti NBA-leik-
maðurinn til að spila fimm sinnum í
röð til úrslita í tæp fimmtíu ár. Laun
hans nema 20 milljónum dollara
á ársgrundvelli, en styrktarsamn-
ingar og auglýsingasamningar alls
44 milljónum dollara. LeBron spilar
fyrir Cleveland Cavaliers.
7 Kevin Durant
54,2 milljónir dollara
Körfuboltamaðurinn Kevin Durant,
sem spilar fyrir Oklahoma Thunder,
gerði 85 milljóna dollara samning
við liðið árið 2010. Hann er á síðasta
ári samningsins og tekjur hans á ár-
inu nema því 19 milljónum dollara
auk þess sem auglýsingasamningar
ársins nema 35 milljónum dollara.
Auglýsingasamningur hans, sem
hann gerði við Nike árið 2014, gæti
orðið allt að 200 milljóna króna virði
á endanum, ef allt gengur að óskum.
Það er stærsti auglýsingasamningur
sem nokkur íþróttamaður hefur gert.
8 Phil
Mickelson
50,8 milljónir dollara
Golfarinn Phil Mickelson fær 40
milljónir dollara árlega vegna aug-
lýsingasamninga og viðburða sem
hann tekur þátt í á vegum íþróttar-
isans Callaway, Barclays-bankans,
endurskoðunarfyrirtækisins KPMG,
Exxon Mobil, Rolex og lyfjafyrir-
tækisins Amgen. Hann gerði samn-
ing við Amgen um að vera andlit
soríasis- lyfsins Enbrel árið 2010.
Hann hefur upp úr krafsinu 2,8 millj-
ónir króna í laun og verðlaunafé fyrir
sjálft golfið en alls veita auglýsinga-
og styrktarsamningar hans 48 millj-
ónir á ársgrundvelli.
9 Tiger Woods
50,6 milljónir dollara
Tiger Woods er eitt þekktasta nafn
íþróttasögunnar, bæði af góðu og
illu. Sem stendur fær hann 50 millj-
ónir vegna styrktarsamninga auk
þess að hafa upp úr krafsinu í sjálfu
golfinu 600 þúsund dollara á árs-
grundvelli. Þetta er allt langt frá því
meti sem hann setti árið 2008 þegar
hann var hæst launaði íþróttamaður
sem heimurinn hafði séð, með sam-
anlagðar tekjur upp á 115 milljónir
dollara. Það verður þó ekki annað
sagt en að hann geti vel við unað,
svona miðað við aldur og fyrri störf.
10 Kobe Bryant
49,5 milljónir dollara
Körfuboltamaðurinn Kobe Bryant
hefur verið hæst launaður í körfu-
boltanum fimm ár í röð. Fyrir leik-
tíðina 2014–2015 hafði hann upp úr
krafsinu 23,5 milljónir dollara. Hann
tók þó á sig sjö milljóna launa lækkun.
Þrátt fyrir að meiðsl hafi haft mikil
áhrif á hann á síðustu leiktíð liggur
fyrir að hann hefur talsverðar tekjur
af spilamennskunni. Laun hans í
fyrra fyrir auglýsinga- og styrktar-
samninga námu 26 milljónum
dollara.