Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Qupperneq 18
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
18 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Vikublað 5.–7. janúar 2016
Brimbrjótur kveður
Þá rofnar
eitthvað
Þorgrímur Þráinsson segir Facebook geta valdið tilfinningarofi milli barns og móður. – Morgunvaktin
Ó
lafur Ragnar Grímsson mun
ekki gefa kost á sér til endur-
kjörs sem forseti þjóðarinnar.
Það er að minnsta kosti stað-
an eftir nýársávarp hans. Ólafur
Ragnar reyndist þessari þjóð af-
skaplega vel. Hann var brimbrjótur
– landsfaðir – og hann breytti stöðn-
uðu embætti.
Icesave-deilan og hvernig Ólafur
Ragnar stóð þá með íslensku þjóð-
inni er hápunktur ferils hans. Þar
stóð hann í lappirnar og skýldi þjóð
sinni. Hann veitti lýðræðinu far-
veg og fyrir hans tilstuðlan braut ís-
lenska þjóðin Breta og Hollendinga
á bak aftur og hafði fullnaðarsigur.
Betri talsmaður íslenskra hags-
muna á erlendri grund hefur ekki
áður stigið fram. Ólafur Ragnar hef-
ur markað spor í Íslandssöguna
og það eru djúp spor. Sagan mun
ekki afmá þau, þvert á móti munu
þau dýpka og kynslóðirnar munu
sjá hversu mikilvægur maður sat á
Bessastöðum á viðsjárverðum tím-
um.
Það var ekki með pólitískan vilja
að vopni sem Ólafur Ragnar tók að
sér að vera brimbrjótur þjóðarinn-
ar. Það var fyrst og fremst vegna þess
að stjórnmálamenn höfðu ekki dug
eða þor til að standa með íslenskum
hagsmunum. Hræðsla við svokallað
almennings álit og skoðana kannanir
lömuðu þá stjórnmálamenn sem
áttu að standa í stafni þjóðarskút-
unnar. Þess í stað voru þeir neðan
þilja til að verjast sjógangi og ágjöf.
Stjórnmálamenn eru ráðnir
á fjögurra ára fresti til að vera á
dekkinu og takast á við það sjólag
sem bíður skútunnar hverju sinni.
Kannski er raunveruleg ástæða þess
að embætti forseta breyttist sú að
það var enginn á dekki þegar versn-
aði í sjóinn. Í stað þess að skútan
hrektist upp í fjöru tók Ólafur Ragnar
við stýrinu og kom fleyinu í höfn.
Nú skal gengið til forsetakosn-
inga. Strax kemur í ljós að löggjöf
um kosningarnar er úrelt. Ekki er
gerlegt að breyta þeirri löggjöf sem
gildir um slíkt kjör fyrir kosningar í
vor. Breyta þarf stjórnarskrá og það
ferli er tímafrekt.
Fjöldi manns telur sig eiga erindi
á Bessastaði til að veita þjóðinni for-
ystu. Það ætti enginn að bjóða sig
fram til þessa embættis með hálf-
kæring í huga eða til þess að vekja
á sér athygli umfram það sem emb-
ættið kallar á.
Við kveðjum góðan forseta og
þökkum honum vaktina sem var
löng og á köflum ströng. Því miður
er allt útlit fyrir að við taki einhvers
konar framboðssirkus sem mun
þegar upp verður staðið veikja þetta
veigamikla embætti. n
Helgi náttfari?
Vefurinn Hringbraut hefur sætt
nokkurri gagnrýni fyrir rótarleg
skrif huldumannsins Ólafs Jóns
Sívertsen og Náttfara sem virð-
ist einkum skrifa á kvöldin og
um nætur. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson prófessor segir liggja
í augum uppi hver skrifi fyrir Ólaf
Jón og Tryggvi Þór Herbertsson,
fyrrverandi þingmaður, segir það
vera Helga Magnússon fjárfesti.
„Af hverju ekki að segja einfald-
lega frá því að hér er um að ræða
annan eigenda Hringbrautar?
HM!“ segir Tryggvi Þór.
Á
rið 2015 hangir í minninu
sem árið þegar yfir milljón
flóttamenn flúðu frá Sýrlandi
og nágrannalöndum yfir til
Grikklands og Ítalíu. Flestir
sjóleiðina á litlum skektum og yfir
3.000 þeirra drukknuðu á leiðinni,
börn, konur og menn. Þetta fólk var
að flýja stríð á heimaslóðum en þar
verður nú stöðugt ófriðlegra m.a.
vegna breytinga á hitastigi og þar með
gróðri og þetta stefnir lífsafkomu fólks
í hættu, milljóna, milljónatuga.
Þegar til Evrópu var komið tók við
sannkölluð píslarganga til norður-
hluta Evrópu, einkum til Þýska-
lands. Yfirvöld hvarvetna reyndu að
hefta för fólksins eða beina því ann-
að, þráttuðu um hver ætti að taka við
því, fólk spýtti á það og kastaði grjóti
en víðast hvar var gott fólk sem reyndi
hvað það gat að aðstoða mann-
eskjurnar sem höfðu flúið föðurland
sitt í leit að betri stað til að lifa á a.m.k.
tímabundið.
Aðstoða þau sem var hægt að að-
stoða. Of seint var að aðstoða þá eða
þau sem höfðu látið lífið í stríðs-
átökum, dáið úr vosbúð eða drukkn-
að á leið sinni til betra lífs.
Ferð okkar manna til betra lífs hef-
ur tekið á sig margvíslegar myndir. Ein
myndin er Messíasarmyndin. Myndin
af Jesú frá Nazaret sem var borinn til
að „flytja fátækum gleðilegan boð-
skap“, þeim hinum sama og var úthýst
úr gistihúsinu áður en hann fæddist,
fjarri ríkidæmi heimsins og völdum.
En Jesús, þessi mikla fyrirmynd, mátti
eftir að hann var sestur við hlið föður
síns sætta sig við það að vera gerður
að viðhlæjanda valdsins, grunnur
að helstu valdastofnunum heims,
ekki bara kirkjunnar, heldur heims-
velda og þjóðríkja. Hann sjálfur dó á
krossi, sem var rafmagnsstóll Róm-
verja, neitaði að undirgangast valdið
eða yfirgefa málstað þeirra fátæku og
smáðu en eina ráð þeirra sem héldu
upp merki hans var að giftast valdinu
ef svo má segja, flestra. Meðal þeirra
hafa ætíð verið uppreisnarseggir en
þeir ná sjaldnast langt, eru í besta falli
sendir í afskekktar sóknir.
Annað sem situr í minninu
eru hryðjuverkin í París í nóvem-
ber þar, sem vel á annað hundrað
manns, einkum ungt fólk, lét líf sitt
fyrir hendi bilaðra manna, svokall-
aðra hryðjuverkamanna. Það set-
ur að manni ógeðshroll að hugsa til
þessara atburða og hvernig ungt fólk
er spólað upp í það að drepa mis-
kunnarlaust með köldu blóði í nafni
hugsjóna og trúar, koma þá í hug-
ann hryðjuverk þess tíma sem maður
hefur fylgst með, nasisminn, stalín-
isminn, morð Tyrkja á Armenum
svo ekki sé farið lengra aftur í blóð-
ugri sögu mannkyns. Satt að segja
virðist friðar boðskapur þess sem hér
stendur yfir mér í horni farið fyrir lítið
og honum meira að segja verið att
fram í óteljandi orrustum. Það hefur
verið barist fyrir hann, fallið fyrir
hann og Guð má vita hvað. Nú um
stundir virðist okkur einkum standa
ógn af ISIS í Miðausturlöndum sem
drepa fólk í nafni ALLAH, bæði Mú-
hameðstrúarmenn og kristna.
Er maður svona sjálfur, eruð þið
svona, væri hægt að gera úr okkur
kaldrifjaða manndrápara? Ekki vafi,
sagan hefur dregið fram þennan
veikleika mannsins og við erum
merkilegri en aðrir menn, alls ekki.
Um leið og við þróuðum með okkur
vitund, vitundina um okkur sjálf, hver
við erum og stöðu okkar, komumst
þannig fram úr sauðkindinni og rott-
unni, urðum við lömb sem föllum fyrir
ídeólógíu og trú og hlýðni við vald að
við getum meira að segja orðið þátt-
takendur í skipulögðum drápum. Í
stað þess að drepa okkur til matar af
dýrslegri svengd öðluðumst við greind
til þess að drepa meðvitað og skipu-
lega. Drepa til þess að vinna, ryðja íd-
eólógíu og trú braut, drepa væri okkur
skipað, drepa væri okkur innrætt.
Allir muna umræðuna um al-
bönsku fjölskyldurnar sem vísað var
héðan úr landi, en fengu svo íslenskan
ríkisborgararétt eftir allt saman. Mað-
ur vísar ekki veikum frá sér, var víða
sagt. Allra síst barni. Allra, allra síst
langveiku barni. Ýmiss konar rök voru
notuð, þar á meðal var vísað beint
í fæðingu Jesúbarnsins, sem þjóð-
in væri að fara að halda upp á. Enda
kominn undirbúningstími jólanna,
aðventan hafin, þegar umræðan fór
fram. Stundum var líka vitnað til mis-
kunnsama Samverjans, útlendingsins
sem gaf sig að særða manninum sem
lá særður við veginn, eftir að prestur
og levíti höfðu gengið hjá, og sagt var:
Maður hjálpar. Punktur.
Þessi reynsla kennir okkur að boð-
skapur frelsarans frá Nazaret er lif-
andi meðal vor. Við erum upp til hópa
gott fólk sem finnur til með öðru fólki.
Það sjáum við líka í góða fólkinu sem
hjálpaði flóttamönnunum og í öllu því
góða fólki sem hefur stuðlað að friði í
heiminum, lagt líkn við þraut annarra.
Því góða fólki sem gerir samfélög
manna að bærilegum stað fyrir flesta.
Því góða fólki sem starfar í anda Jesú
frá Nazaret, innan kirkju hans eða
utan. Sum okkar eru trúuð, öll höfum
við alist upp við kristna menningu,
meira að segja þeir sem kalla guð sinn
Allah hafa alist upp við Krist, hann er
einn af aðalspámönnum íslam. Og
nú fögnum við fæðingu hans, hann
er okkar maður og Guð, en situr samt
Guði til hægri handar.
Og við erum heilar hans og hendur
hér á jörðu, er sagt. n
Áramótahugleiðing
Baldur Kristjánsson
sóknarprestur í Ölfusi
Af Eyjunni
Ég hlýt að vera
eitthvert ógeð
Alma Ýr Ingólfsdóttir hefur verið kölluð frík. – DV
Við erum venju-
leg fjölskylda
Bryndís Kjartansdóttir segir sorg fjölskyldu stúlkunnar í fangelsinu í Brasilíu hryllilega. – dv.is
Leiðari
Eggert Skúlason
eggert@dv.is
Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð
og samþykkt af Mannvirkjastofnun.
Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna
og léttir þrif.
Stigahúsateppi
Mikið úrval!
Mælum og gerum tilboð
án skuldbindinga og kostnaðar
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Sérverslun með teppi og parket