Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Side 20
Vikublað 5–7. janúar 20162 Borðaðu hollt og gott - Kynningarblað Betri heilsa á nýju ári með Mamma veit best V ið leggjum áherslu á fag- lega og persónulega þjón- ustu og bjóðum alla vel- komna til okkar í spjall. Við erum hérna til að styðja og gefa góð ráð. Við hvetjum fólk frekar til að gera litlar og varan- legar breytingar fremur en að reyna að umturna öllu á einni nóttu því þá er hætta á að maður gefist upp. Við hvetjum alla til að huga að bæði líkamlegri og andlegri heilsu á nýju ári.“ Þetta segir Ösp Viðarsdóttir hjá heilsuvörufyrirtækinu Mamma veit best sem hjálpar fólki til að þróa með sér heilsusamlegt líferni með ráðgjöf og sölu á fjölbreyttum há- gæða heilsuvörum. Fyrirtækið var stofnað árið 2010. Í nafninu Mamma veit best er vísun í virðingu eigenda fyrirtækisins fyrir móður jörð. „Í upphafi var þetta eins manns fyrirtæki en síðan hefur það vaxið og dafnað og vöruvalið aukist mikið. Þetta er lítið fyrirtæki sem rekið er af hugsjón öðru fremur og með það markmið að bjóða gæða- vöru á sanngjörnu verði. Við berum líka mikla virðingu fyrir móður jörð eins og nafnið okkar gefur til kynna. Í náttúrunni má nefnilega oft finna ráð við hinum ýmsu kvillum og með hollu mataræði og heilbrigðum lífs- stíl getum við haldið heilsunni í lagi,“ segir Ösp. Mamma veit best er allt í senn heildsala, verslun og netverslun. Fólk getur ýmist nálgast vörur fyrir tækisins í flestum apótekum og heilsubúðum landsins, í versl- un fyrirtækisins að Laufbrekku 30 í Kópavogi eða í vefversluninni þar sem einnig má finna ítarlegar upp- lýsingar um vörurnar og fyrirtækið. Gefum Ösp aftur orðið: „Við leggjum höfuðáherslu á gæðavörur sem eru framleiddar á heiðarlegan máta, hafa rannsóknir og reynslu á bak við sig og innihalda það sem ætlast er til og hafa þá virkni sem þær eiga að hafa. Við erum með mikið úrval hágæða bætiefna en einnig t.d. lífrænar og umhverfis- vænar sápur og lífræna matvöru.“ Nokkrar af helstu vörunum Sem fyrr segir býður Mamma veit best upp á fjölbreytt úrval af há- gæða heilsuvörum sem hjálpa okk- ur að þróa með okkur heilbrigðan lífsstíl á nýju ári. Hér eru nokkur góð dæmi: Magnesíum slökun: Magnesíum duft – magnesíum er mikilvægt fyrir alla tauga- og vöðvaslökun. Gagnast oft vel við hægðatregðu, sinadrætti, fótapirringi og svefn- leysi svo eitthvað sé nefnt. Dr. Bronner's sápurnar: Lífrænar og umhverfisvænar. Bestu sápurnar fyrir viðkvæma húð. Henta fólki á öllum aldri og hægt að nota í bók- staflega allt: í sturtuna, þvottavél- ina, öll heimilisþrif o.fl. Kísill í dufti: Kísill er steinefni sem oft vantar í fæðuna okkar en líkaminn þarf til margra starfa. Hann er t.d. góður fyrir hár, húð, neglur, bein og liði. Þeir sem taka hann inn taka oft eftir því að ástand þessara líkamshluta batnar auk þess sem mörgum finnst meltingin lagast. Vinveittir meltingargerlar: Alltaf vinsælir enda meltingar- vandamál mjög algeng. Gerlarnir hjálpa við að koma þarmaflórunni í jafnvægi en heilbrigð þarmaflóra er hornsteinn góðrar heilsu. Magnesíum L-threonate frá Dr. Mercola: Margir kalla þetta kraftaverkamagnesíum en fólk finnur oft ótrúlegan mun á verkjum og bólgum auk þess sem flestir sofa betur af því. D-vítamín: Sérstaklega vinsælt á þessum árstíma og eftir að fólk varð upplýst um mikilvægi D-vítamíns og hvað okkur hér á norðurhveli skortir hefur það verið ein af mest seldu vörunum hjá Mamma veit best. MyNDir ÞorMar VigNir guNNarssoN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.