Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2016, Blaðsíða 20
Vikublað 5–7. janúar 20162 Borðaðu hollt og gott - Kynningarblað
Betri heilsa á nýju ári
með Mamma veit best
V
ið leggjum áherslu á fag-
lega og persónulega þjón-
ustu og bjóðum alla vel-
komna til okkar í spjall.
Við erum hérna til að
styðja og gefa góð ráð. Við hvetjum
fólk frekar til að gera litlar og varan-
legar breytingar fremur en að reyna
að umturna öllu á einni nóttu því
þá er hætta á að maður gefist upp.
Við hvetjum alla til að huga að bæði
líkamlegri og andlegri heilsu á nýju
ári.“
Þetta segir Ösp Viðarsdóttir hjá
heilsuvörufyrirtækinu Mamma veit
best sem hjálpar fólki til að þróa
með sér heilsusamlegt líferni með
ráðgjöf og sölu á fjölbreyttum há-
gæða heilsuvörum.
Fyrirtækið var stofnað árið 2010.
Í nafninu Mamma veit best er vísun
í virðingu eigenda fyrirtækisins fyrir
móður jörð.
„Í upphafi var þetta eins manns
fyrirtæki en síðan hefur það vaxið
og dafnað og vöruvalið aukist
mikið. Þetta er lítið fyrirtæki sem
rekið er af hugsjón öðru fremur og
með það markmið að bjóða gæða-
vöru á sanngjörnu verði. Við berum
líka mikla virðingu fyrir móður jörð
eins og nafnið okkar gefur til kynna.
Í náttúrunni má nefnilega oft finna
ráð við hinum ýmsu kvillum og með
hollu mataræði og heilbrigðum lífs-
stíl getum við haldið heilsunni í
lagi,“ segir Ösp.
Mamma veit best er allt í senn
heildsala, verslun og netverslun.
Fólk getur ýmist nálgast vörur
fyrir tækisins í flestum apótekum
og heilsubúðum landsins, í versl-
un fyrirtækisins að Laufbrekku 30
í Kópavogi eða í vefversluninni þar
sem einnig má finna ítarlegar upp-
lýsingar um vörurnar og fyrirtækið.
Gefum Ösp aftur orðið: „Við
leggjum höfuðáherslu á gæðavörur
sem eru framleiddar á heiðarlegan
máta, hafa rannsóknir og reynslu
á bak við sig og innihalda það sem
ætlast er til og hafa þá virkni sem
þær eiga að hafa. Við erum með
mikið úrval hágæða bætiefna en
einnig t.d. lífrænar og umhverfis-
vænar sápur og lífræna matvöru.“
Nokkrar af helstu vörunum
Sem fyrr segir býður Mamma veit
best upp á fjölbreytt úrval af há-
gæða heilsuvörum sem hjálpa okk-
ur að þróa með okkur heilbrigðan
lífsstíl á nýju ári. Hér eru nokkur
góð dæmi:
Magnesíum slökun: Magnesíum
duft – magnesíum er mikilvægt
fyrir alla tauga- og vöðvaslökun.
Gagnast oft vel við hægðatregðu,
sinadrætti, fótapirringi og svefn-
leysi svo eitthvað sé nefnt.
Dr. Bronner's sápurnar: Lífrænar
og umhverfisvænar. Bestu sápurnar
fyrir viðkvæma húð. Henta fólki á
öllum aldri og hægt að nota í bók-
staflega allt: í sturtuna, þvottavél-
ina, öll heimilisþrif o.fl.
Kísill í dufti: Kísill er steinefni
sem oft vantar í fæðuna okkar en
líkaminn þarf til margra starfa.
Hann er t.d. góður fyrir hár, húð,
neglur, bein og liði. Þeir sem taka
hann inn taka oft eftir því að ástand
þessara líkamshluta batnar auk
þess sem mörgum finnst meltingin
lagast.
Vinveittir meltingargerlar:
Alltaf vinsælir enda meltingar-
vandamál mjög algeng. Gerlarnir
hjálpa við að koma þarmaflórunni í
jafnvægi en heilbrigð þarmaflóra er
hornsteinn góðrar heilsu.
Magnesíum L-threonate frá
Dr. Mercola: Margir kalla þetta
kraftaverkamagnesíum en fólk
finnur oft ótrúlegan mun á verkjum
og bólgum auk þess sem flestir sofa
betur af því.
D-vítamín: Sérstaklega vinsælt á
þessum árstíma og eftir að fólk varð
upplýst um mikilvægi D-vítamíns og
hvað okkur hér á norðurhveli skortir
hefur það verið ein af mest seldu
vörunum hjá Mamma veit best.
MyNDir ÞorMar VigNir guNNarssoN