Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2016, Blaðsíða 19
Vikublað 19.–21. janúar 2016 Kynningarblað - Íslenskt sjávarfang 5
R
eykhúsið Reykhólar hefur
frá upphafi ákveðið að
halda uppi kröfum um
góð gæði í framleiðslunni
og halda bæði ferskleika
og bragðgæðum. „Það gerum við
með kaupum á íslenskum gæða-
laxi frá laxeldisfyrirtækinu Fjarða-
laxi þar sem laxinn er alinn við
bestu hugsanlegar aðstæður,“ segir
Oddur Friðrik Vilmundarson,
framkvæmdastjóri Reykhóla. „Með
þessum ráðstöfunum þykir okkur
við hafa getað uppfyllt kjörorð okk-
ar, sem er og verður gæði og gott
bragð,“ segir Oddur.
Sérhæfðir í reyktum fiski
„Við sérhæfum okkur í reyktum
og gröfnum laxi og öðrum bleik-
fiski en ákveðið var fyrir tveimur
árum að einfalda vinnsluna með
því að taka nánast út alla fersklax
söluna og sérhæfa okkur í því sem
við erum bestir í,“ segir Oddur. Hjá
okkur eru fimm stöðugildi í fullu
starfi og veitir ekki af, því vinnsla
okkar byggir á mikilli handavinnu,
við handflökum laxinn, handsneið-
um hann og notum ekki mikið vél-
ar til verka. Á álagstíma er bætt við
fólki eftir því sem þarf,“ segir Oddur.
Reykti laxinn frá Reykhúsinu Reyk-
hólum þykir einstaklega bragðgóð-
ur og hefur hann fengið gullverð-
laun árið 2014 í keppni MFK sem
er haldin annað hvert ár og hlaut
fyrirtækið silfurverðlaun fyrir graf-
laxinn.
Íslenskar matvöruverslanir og
erlendur markaður
„Aðaláherslurnar okkar eru sala
innanlands til matvöruverslana
og hægt er að fá framleiðslu okkar
víða eins og til dæmis í Krónunni,
Fjarðarkaupum, Hagkaupum,
Melabúðinni, Nóatúni, Kjarval og
Kvosinni. Við dreifum líka til hót-
ela, veitingastaða og í sælkera-
verslunina Pure Food Hall í flug-
stöðinni. Það er alltaf þó nokkur
útflutningur hjá okkur og eykst
hann á hverju ári, aðallega til Sviss,
Spánar, Bretlands og Þýskalands,“
segir Oddur. „Við höfum verið með
trygga viðskiptavini innanlands
og erlendis í fjölda ára sem vilja fá
okkar gæðavöru. Við bjóðum fyrst
og fremst upp á gæði og gott bragð
og hefur það skilað okkur sterkum
viðskiptatengslum við viðskipta-
vini,“ bætir hann við.
Starfsemin byggð á
mikilli þekkingu
Reykhúsið Reykhólar var stofn-
að í desember 2009 af Oddi Vil-
mundarsyni og Aðalsteini Finsen.
Báðir hafa langa reynslu af vinnslu
sjávar afurða. Drög að stofnun Reyk-
hússins Reykhóla voru lögð á vor-
mánuðum 2009, en stofnendur
fyrir tækisins voru sammála um að
rými væri fyrir gæðavöru á þessu
sviði á markaði hérlendis sem og
erlendis. Fenginn var ráðgjafi til liðs
með Oddi og Aðalsteini sem kom
sér vel þar sem viðkomandi aðili
hafði mjög mikla reynslu af fram-
leiðslu og meðhöndlun á laxi. n
Gæðin í fyrirrúmi hjá
Reykhúsinu Reykhólum